09.04.1986
Neðri deild: 74. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3576 í B-deild Alþingistíðinda. (3256)

336. mál, búnaðarmálasjóður

Pálmi Jónsson:

Herra forseti. Hv. 3. þm. Reykn. hefur gert grein fyrir andstöðu sinni við það frv. sem er á dagskrá, frv. til l. um breytingu á lögum um Búnaðarmálasjóð. Hv. formaður landbn. og frsm. nefndarinnar, 3. þm. Norðurl. e., hefur skýrt málið og'undir hans skýringar get ég tekið.

Ég vil hins vegar segja það um þetta mál að ég er sammála því sjónarmiði að það beri að standa af varúð að skattlagningu af þessu tagi. Þegar hér er gert ráð fyrir að skattlagning geti aukist á tilteknar greinar í framleiðslu landbúnaðarvara um allt að 1 % og í sumum tilvikum um 0,2% er þar um hámarkstölur að ræða sem landbrh. hefur heimild til að nota. Ætla verður að hæstv. landbrh. fari eigi lengra í slíkri skattheimtu en hlutaðeigandi greinar óska eftir og ætla má að varúð hæstv. landbrh. í þessum efnum verði það mikil að þar sé að fullu kannað hvort hlutaðeigandi búgrein vill standa að þeirri skattheimtu.

Ég vil segja það út af orðum hv. 3. þm. Reykn. að þessum inngangi mínum loknum að ýmsar þær greinar sem framleiða búvörur leggja upp úr því að halda sjálfstæði sínu innan landbúnaðarkerfisins. Svo er t.a.m. um grein sem hann spurðist hér fyrir um, sem er loðdýraræktin. Loðdýraræktin leggur talsvert kapp á að geta haldið sjálfstæði sínu, haft á sínum vegum hvort tveggja, sölustarfsemi og leiðbeiningarstarfsemi. Þessi grein hefur t.a.m. sérstakan starfsmann, sem er starfandi á sérstakri skrifstofu í Reykjavík, sem er ekki í beinum tengslum við aðrar greinar landbúnaðarkerfisins. Til þess að geta staðið straum af slíku sjálfstæði þarf þessi grein einhvers staðar að fá tekjur. Þessi grein hefur óskað eftir því að fá heimildir í lög í samræmi við það sem segir í þessu lagafrv. til að geta haldið sínu sjálfstæði. Þetta er í sumum tilvikum á þennan máta, en ekki að með þessu lagafrv. sé það tilgangurinn að keyra allar greinar landbúnaðarins inn í eitthvert tiltekið og gamalgróið kerfi.

Ég skal ekki fara í það að útlista þetta mál. Ég hef fallist á að vera flm. að þessu sem einn af landbnm. og styð það, en stuðningur minn er bundinn þeirri von minni að á þessari skattheimtu verði af hálfu hæstv. landbrh. haldið af fullri varúð og af fullri sanngirni að því leyti að ekki sé farið fram úr því sem hlutaðeigandi framleiðendur sjálfir óska.

En m.a. vegna umræðunnar, sem hér hefur farið fram, vil ég jafnframt segja að ég tel að ástæða sé til og tímabært að endurskoða þessi lög. Þrátt fyrir að við breytum þessu nú á þann máta að verða við óskum sérgreinasambandanna til þess að þau fái fjármuni til að geta starfað á sérstökum grundvelli séu þessi mál í því horfi að þau þurfi endurskoðunar við. Ég get greint frá því að það er að starfi stjórnskipuð nefnd til að endurskoða tekjustofna landbúnaðarsjóða. Ég tel eðlilegt að sú nefnd eða önnur fái það verkefni fyrir t.a.m. næsta reglulegt Alþingi að taka lög um Búnaðarmálasjóð til endurskoðunar og þá e.t.v. sumpart í ljósi þeirrar reynslu sem fæst með þeirri löggjöf sem hér er verið að setja, ef samþykkt verður.