09.04.1986
Neðri deild: 74. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3587 í B-deild Alþingistíðinda. (3268)

338. mál, stjórnarskipunarlög

Flm. (Ólafur Þ. Þórðarson):

Herra forseti. Ég vil byrja á því að færa þeim þakkir sem hér hafa kvatt sér hljóðs og rætt þetta frv.

Ég vil byrja á því að undirstrika að 62. gr. þessara laga er ekki á neinn hátt hugsuð á þann veg að kjörnir fulltrúar til sveitarstjórna hafi einir rétt til framboðs til fylkisþinga. Það er að sjálfsögðu ekki hugsunin á bak við þessa grein. Hugsunin á bak við greinina er sú að ef sveitarfélög breyttu sínum landamærum með samkomulagi eftir að búið væri að samþykkja fylkisfyrirkomulag - tökum dæmi: Hafnarfjarðarkaupstaður fengi meira land en hann ætti í áttina að Suðurnesjum - þá yrði litið svo á að það land bættist við höfuðborgarfylkið en ekki að hluti af þeim sem væru íbúar í Hafnarfirði ættu að tilheyra Suðurlandsfylki og hluti að tilheyra Stór-Reykjavíkurfylkinu. Þetta vil ég að sé alveg skýrt þannig að svona atriði valdi engum óþarfa misskilningi.

Ég vil taka undir það að þetta mál er þverpólitískt. Það gengur á alla flokka. Og ég held að það sé einnig atriði sem þm. dreifbýlisins verða að gera sér grein fyrir og hv. 5. þm. Austurl. undirstrikaði, ef þeir ekki bera gæfu til þess að taka á þessu máli af raunsæi á þann hátt að setja inn þriðja stjórnsýslustigið og koma þjónustunni út á land, þá eru þeir í reynd að tryggja það að æskan verði flutt til Reykjavíkur ef hún leitar sér menntunar í æðri skólum.

Ég var um það spurður margsinnis, eða í það minnsta að því ýjað alloft, hver væri afstaða Framsfl. í þessu máli, hver væri afstaða þingflokks Framsfl. í þessu máli. Ég tel að ekki sé óeðlilegt að menn spyrji um þá hluti. Mér vitanlega hefur þingflokkur Framsfl. ekki tekið neina afstöðu í þessu máli. Ég ákvað af þeirri ástæðu sem ég gat um hér áðan, af þeirri ástæðu að málið er þverpólitískt, að taka um það ákvörðun að bera það hér fram án þess að ræða það í þingflokki Framsfl. Ég vil geta þess að formaður þingflokksins er eins og allir vita vitmaður sem þarf stundum að taka sér góðan tíma til að hugleiða mál og ég minnist þess að sú nefnd, sem ég var skipaður í fyrir hönd míns þingflokks og kölluð hefur verið byggðanefndin, undir forsæti Lárusar Jónssonar, ritaði þingflokki Framsfl. bréf fyrir rúmu ári síðan og formaður þingflokksins tók sér eins árs umhugsunarfrest áður en hann sneri sér að því verki að svara því bréfi. Ég taldi eðlilegt að hann hefði ótakmarkaðan tíma til að hugleiða þetta mál sem hér er á dagskrá, en ég taldi ekki eðlilegt að ég tæki þá áhættu að það lægi hjá honum til umhugsunar, e.t.v. í jafnlangan tíma og það erindi sem kom frá Lárusi Jónssyni.

Ég get einnig gagnspurt í þessu sambandi. Bæði hv. 5. þm. Austurl. og hv. 5. þm. Reykv. töluðu mjög jákvætt um þriðja stjórnsýslustigið og ég fagna því. Mér er ekki ljóst hvort þeir hafa á bak við sig stuðning allra aðila í sínum þingflokki. Auðvitað væri það jákvætt fyrir málið ef það yrði upplýst hvort svo er. Ég vil aftur á móti fullyrða það að í röðum framsóknarmanna er verulegur skilningur á því og vaxandi að án þess að þriðja stjórnsýslustigið verði sett upp sé engin von á því að við náum jafnvægi í byggðaþróuninni.

Ég ætla þá að víkja að umræðunni um önnur efni þessa frv. Ég gat þess í minni framsögu hvaðan heimildir væru komnar fyrir þeim efnisatriðum sem hér eru. Vissulega er það rétt að hin endurskoðaða stjórnarskrá, og ég gat um það, er eitt grundvallarplaggið í þessu sambandi. Þeir sem unnu að samningi stjórnarskrárinnar höfðu aftur á móti ekki undir höndum ýmsar tillögur sem hafði verið hafnað hjá meiri hluta þessarar endurskoðunarnefndar en þeir aftur á móti tóku upp. Þannig að ég er sannfærður um það að hver sem les þetta frv. gerir sér grein fyrir því að gengið hefur verið mun meir í átt til vilja stjórnarandstöðunnar heldur en niðurstaða hafði fengist um í stjórnarskrárnefndinni.

Ég vil einnig undirstrika að það eru ýmis atriði í þessu frv. sem eru komin úr stjórnarskrám annarra landa, sem stjórnarskrárnefndin hafði ekki tekið með í sinni umfjöllun. Hv. 2. þm. Reykn., sem ræddi þessi mál hér áðan, gat um að komið væri fram frv. til l. um ármann Alþingis. Það er satt og rétt. Það frv. kom fram eftir að þetta frv. hafði verið lagt fram og þó að það ákvæði sé hér í 93. gr., um ármann Alþingis, þá er ekkert nema gott um það að segja að sjálfsögðu að hitt frv. sé komið fram. Ég tel aftur á móti að svona atriði þurfi að vera staðfest í stjórnarskrá. Ég tel að það þurfi að vera staðfest í stjórnarskrá og ég vona að það sé ekki ágreiningur hjá stuðningsmönnum um slíka hluti.

Hv. 2. þm. Reykn. talaði um þau kosningalög sem nú eru í gildi og taldi að óhjákvæmilegt væri að draga þau inn í þessa umræðu. Ég vil ógjarnan draga þau mikið inn í þessa umræðu vegna þess að stjórnarskrármálið sem heild markar þar ákveðna stefnu en ágreiningsatriði í kosningalögunum seinustu voru á sínum tíma þaulrædd hér í deildinni. Hann talaði um að það væri þrefalt vægi atkvæða í þeim lögum. Ég lít svo á að það sé ekkert misvægi atkvæða í þeim lögum, aftur á móti hafi formenn stjórnmálaflokkanna orðið ásáttir um það að fela uppbótarþingsætin í kjördæmunum úti á landi. Þannig má segja sem svo að Vestfirðingar eru í þeirri stöðu að trúlega munu þeir sjálfir í reynd með eðlilegum leikreglum ekki ráða nema þremur þm. af fimm. Hinir verða raunverulega ekki kosnir af Vestfirðingum, svo að ég taki dæmi úr því kjördæmi. Þess vegna finnst mér það helst til mikil þráhyggja þegar stöðugt er klifað á því að atkvæðavægið sé þrefalt. Það má alltaf um það deila hvernig eigi að koma uppbótarþingsætum fyrir, en þessi aðferð sem var valin er á þann veg að dulbúa þau í kjördæmunum. En það er enginn sem segir að stjórnmálaflokkur þurfi að láta viðkomandi kjördæmi ákveða framboðslistann. Einn stjórnmálaflokkur sem bauð fram við seinustu kosningar lét kjördæmin alls ekkert hafa með þessi framboðsmál að gera. Listarnir voru samþykktir hér í Reykjavík fyrir öll kjördæmin, þannig að mér finnst að við hv. 2. þm. Reykn. ættum ekki að fara að karpa hér um þennan þátt málsins.

Ég vil svo aftur á móti undirstrika það að í þessu frv. er þjóðaratkvæðagreiðslan sett inn, sem tryggir jafnrétti allra Íslendinga náist ágreiningsmál ekki fram með öðrum hætti. En með því að kjósa á annan hátt til Ed. en Nd. skapar það það aðhald að ég trúi ekki öðru en að þingdeildirnar leggi mun meiri vinnu í það að sættast á mál og komast að friðsamlegri niðurstöðu um ágreiningsmál, sem ella yrðu afgreidd af fullri hörku í atkvæðagreiðslu á milli, ef menn teldu að áfrýjunin væri ekki til staðar. Þess vegna bind ég miklar vonir við það að menn beri gæfu til þess víðsýnis að átta sig á því að neitunarvaldið, sem sett er upp í þinginu með þessum hætti, er neitunarvald sem þjóðin getur tekið ákvörðun um og þingið er þá bundið af þeirri niðurstöðu.

Mér er það mikið alvörumál að ég tel að þm. verði að stuðla að því eftir öllum hugsanlegum leiðum að í þessu landi búi ein þjóð um ókomna framtíð. Og það er löggjafans að reyna að standa þannig að málum að tilraunir til að etja saman landsvæðum og hagsmunum beri ekki árangur. En því eins skapast jarðvegur fyrir friðsamleg samskipti að það sé viðurkennt sjónarmið sem kemur fram í 69. gr. þessa frv. og hv. 2. þm. Reykn. vakti sérstaklega athygli á. Með leyfi forseta vil ég lesa greinina:

„Lýðveldið viðurkennir og styður sjálfstæði héraðanna. Það skal byggja gerðir sínar á almennri valddreifingu allrar stjórnsýslu og þjónustu sem ríkið veitir. Stefnumótun og setning löggjafar skal hafa að markmiði valddreifingu og sjálfsstjórn byggðanna.“

Við höfum lifað þá tíma í þessu landi að fámenn sveitarfélög hafa reiðst svo mjög aðgerðum á sínum heimaslóðum að þau hafa gripið til þess réttar sem þau hafa kallað nokkurs konar sjálfsvörn eins og menn kannast við í Laxárdeilunni. Auðvitað er það grundvallaratriði lýðræðis að menn ráði sem mestu í sínu nánasta umhverfi fram yfir þá íbúa sem búa víðs fjarri þeim í öðrum landshluta.

Ég tel að hv. 5. þm. Reykv. hafi að mörgu leyti með afgerandi hætti talað hér á þann veg að af því mætti ráða að þingflokkur Alþfl. sem heild hefði markað sér þá stefnu að hér skyldi vera þrískipt framkvæmdarvald. Það væri ákaflega jákvætt fyrir þessa umræðu alla, ef það fengist staðfest eða túlkað hvort Alþfl. lítur svo á að sú skipting, sem frv. gerir ráð fyrir, sé viðunandi í öllum aðalatriðum hvað hann snertir. Ég er sannfærður um að það er mikið gæfuleysi hjá þeim stjórnmálaflokkum sem bjóða fram í næstu kosningum ef þeir hafna þeim staðreyndum að ekki hefur tekist að tryggja jafnvægi í byggð landsins, hafna þeim og benda ekki á neinar leiðir sem þeir vilja fara til að leysa það mál. Þetta mál er þeim mun heitara vegna þess að kosningaaldur hefur verið lækkaður og æska þessa lands hefur í almennri skoðanakönnun lýst því yfir að hún vilji búa í þeim héruðum sem hún á rætur sínar í. Ef við ekki setjum upp þriðja stjórnsýslustigið tel ég að það sé tómt mál um það að tala, hún fær ekki þau atvinnutækifæri í þjónustu sem hún þarf að fá til þess að eiga nokkra möguleika á vinnu í þessum héruðum.

Herra forseti. Ég ætla ekki að hafa mál mitt lengra, en endurtek þakkir mínar til þeirra aðila sem hér hafa talað í þessu máli.