10.04.1986
Sameinað þing: 72. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3619 í B-deild Alþingistíðinda. (3300)
410. mál, kaupleiguíbúðir
Jón Baldvin Hannibalsson:
Herra forseti. Mér þykir miður að ég heyrði ekki þessar umræður frá upphafi en það litla ég hef heyrt gefur mér tilefni til þess að leggja nokkur orð í belg.
Fyrst þessi spurning: Hvað er það sem fyrst og fremst vakir fyrir þm. Alþfl. með því að brjóta hér upp á þessu nýja formi í sambandi við lausn húsnæðismálanna? Neyðarástandið í húsnæðismálum á undanförnum árum hefur verið rætt oft og iðulega hér úr þessum ræðustól. Menn hafa skipst á skoðunum um það af hverju það stafi, greint ástandið aftur í fortíðina og vissulega hefur verið á ýmsum tímum reynt að auka fjármagn til húsnæðismála. Engu að síður er það svo að m.a.s. neyðarástandið á umliðnum fimm árum hefur samkvæmt þolendum þess ekki verið leyst þannig að viðunandi geti talist. Nægir að vitna í því efni til þess sem fram hefur komið frá hinum svokallaða húsnæðismálahópi um það, þ.e. um það ástand sem skapast hefur vegna annars vegar misgengis launa og lánskjara og hins vegar vegna verulegrar hækkunar vaxta í kjölfar vaxtastefnu núv. ríkisstj.
Það sem gerst hefur að undanförnu er samkomulag sem náðist í kjölfar seinustu kjarasamninga milli aðila vinnumarkaðarins og svo hins vegar yfirlýsing ríkisstj. um það að reyna fyrir sitt leyti að framkvæma þær hugmyndir sem þar varð samkomulag um. Skipuð hefur verið nefnd í því efni sem nú er að störfum en um niðurstöður hennar er fátt hægt að fullyrða á þessu stigi málsins.
Hér var spurt: Þessi till., sem við flytjum hér um kaupleiguform, er hún eitthvert brot á samkomulagi eða lýsir hún ágreiningi við samkomulag við aðila vinnumarkaðarins? Hún gerir það út af fyrir sig ekki. Um samkomulagið er það að segja að þar er fyrsta spurningin sú, hver er hlutur ríkisstj. að þessu samkomulagi. Eftir er að leggja fyrir Alþingi niðurstöður nefndar sem nú er að störfum og ég tel mig ekki geta fullyrt eitt eða neitt um það með hvaða hætti ríkisstj. hyggst standa að því. Spurningin um t.d. auknar greiðslubyrðar á ríkissjóð vegna vaxtamunar er fyrst og fremst spurning sem verður að vísa til ríkisstj. sjálfrar. Að óbreyttri vaxtastefnu verður sá vaxtamunur gífurlega mikill sem þýðir þá að fram í tímann er verið að vísa á stóraukna skattheimtu væntanlega síðar. En ef þetta samkomulag felur í sér verulegar breytingar frá gildandi vaxtastefnu þá er auðvitað unnt að leysa það vandamál með eitthvað öðrum hætti.
Kjarni málsins í okkar hugmyndum er ósköp einfaldlega þessi: Við viljum styrkja hið félagslega kerfi og ganga út frá því sem gefnu að mánaðarlegur húsnæðiskostnaður láglaunafólks í landinu verði ekki nema viðráðanlegt hlutfall af launum. Og það er út frá þeirri grundvallarforsendu sem við gerum þessa tillögu með hliðsjón af reynslu með öðrum þjóðum af slíku fyrirkomulagi. Þetta þýðir í raun og veru að greiðslutíminn af þessum lánum getur verið mismunandi langur. Þó að talað sé um lán eða rétt til allt að 40 ára þá fer það síðan eftir samningum viðkomandi aðila hvort um er að ræða leigu eða kaupleigu. Það fer hreinlega eftir samningum viðkomandi aðila á hve löngum tíma lánið er greitt upp og fer þá eftir efnahag og efnahagslegri getu til þess.
Það er spurt: Er verið að draga hér burst úr nefi Byggingarsjóðs ríkisins? Það er ósköp eðlilegt að einhver misskilningur komi upp í sambandi við það. Hér er gengið út frá því sem gefnu að þeim auknu fjármunum, sem lífeyrissjóðirnir hyggjast veita samkvæmt samkomulaginu til Byggingarsjóðs ríkisins, verði að örlitlum hluta til varið til þess að gefa mönnum nýja valkosti um kaup eða leigu. Ef um er að ræða kaup þá er hér um að ræða lán að hámarki til 40 ára, 3,5% vextir, þ.e. óbreytt vaxtastig, engin frekari niðurgreiðsla á vöxtum. En það er hins vegar að hluti þessara íbúða er byggður innan ramma lánagetu Byggingarsjóðs ríkisins.
Dæmið sem hv. 3. þm. Reykv. tók er hins vegar óraunsætt að því leyti að hér er fyrst og fremst um að ræða mál sem yrði frumkvæðismál sveitarfélaga og við höfum gengið út frá því sem gefnu að a.m.k. helmingur ef ekki meir af þessum íbúðum verði byggður að þeirra frumkvæði og fjármagnaður úr Byggingarsjóði verkamanna. Það sem kynni að vera fjármagnað úr Byggingarsjóði ríkisins er þá um leið að hluta til styrking á hinu félagslega kerfi sem er væntanlega - ég geng út frá því sem gefnu - í samræmi við viðurkennd sjónarmið ekki aðeins Alþb. heldur þeirra forsvarsmanna verkalýðshreyfingarinnar sem beittu sér fyrir samkomulagi um húsnæðismál í kjölfar kjarasamninganna.
Mig langar til þess að vekja athygli á því meginatriði að hér er verið að vísa til frumkvæðis sveitarfélaganna og þá vil ég líka vekja athygli á því, af því að spurt er um afstöðu manna til samkomulags aðila á vinnumarkaðnum, að í kjölfar þess samkomulags beitti ríkisstj. sér fyrir áskorun til forráðamanna sveitarfélaga um að þau fylgdu eftir breyttum verðlags- og verðbólguforsendum með því að lækka útsvarsálagningu sína. Fyrir liggur að Reykjavíkurborg hefur tilkynnt um lækkun útsvarsálagningar sinnar úr 10,8% í 10,2% og einnig að ýmis önnur sveitarfélög hafi gefið vilyrði um slíkar breytingar eða jafnvel ákvarðað þær.
Samkvæmt upplýsingum sem ég hef aflað mér frá Þjóðhagsstofnun þýðir þetta samt sem áður að við útsvarsálagningu á þessum forsendum munu sveitarfélögin taka í sinn hlut verulega auknar tekjur að raungildi miðað við að forsendur kjarasamninga um verðbólguþróun, 8% verðhækkanir milli ára, standist. Í því efni nefni ég sem dæmi Reykjavík. Það kemur á daginn samkvæmt könnun á úrtaki framtala um breytingar á tekjum milli ára að tekjuaukningin að því er varðar Reykjavík virðist ætla að vera vel yfir 40% eða um 42% þar sem aftur á móti var gert ráð fyrir 36% hækkun milli ára í fjárhagsáætlunum flestra sveitarfélaga sem og í forsendum fjárlaga. Að vísu var Reykjavíkurborg þar í efri kantinum, gerði ráð fyrir 37,5% tekjuaukningu milli ára. Þetta mun þýða að Reykjavíkurborg hyggst taka í sinn hlut á þessu ári varlega áætlað við álagningu útsvara 50-60 millj. kr. að raungildi meira en henni ber ef miðað væri við að hún ætlaði sér ekki að auka útsvarsbyrðina. M.ö.o.: Reykjavíkurborg þyrfti að lækka útsvarsálagninguna a.m.k. niður í 9,7% ef hún ætlaði fyrir sitt leyti að standa við þau tilmæli að leggja ekki gegnum útsvarsálagninguna auknar byrðar á skattgreiðendur í Reykjavík.
Það sem Reykjavíkurborg er m.ö.o. að gera: Hún er að taka til sín um 50-60 millj. kr. að auki, en það þýðir að fyrir sveitarfélögin í heild er útsvarsálagningin á landsvísu 100-120 millj. kr. auknar útsvarsálögur miðað við að sveitarfélögin hins vegar ætluðu sér ekki að auka sinn hlut og að forsendur kjarasamninga haldist um verðbólguspár.
Í þessari tillögu er gert ráð fyrir, eins og ég sagði, frumkvæði sveitarfélaga að byggingu kaupleiguíbúða og gert ráð fyrir kostnaðarauka þeirra sem svarar 276 millj. Þær upplýsingar sem ég hef verið að lýsa þýða m.ö.o. að um það bil helmingur þessarar upphæðar væri reyndar þegar fenginn einungis með auknum útsvarsbyrðum eða aukinni útsvarsálagningu miðað við þær forsendur sem fyrir liggja. (Forseti hringir.) Ég skil þennan bjölluhljóm svo, herra forseti, að það sé verið að óska eftir því að gera hlé á fundi. (Forseti: Það er ekki rétt og ég hygg að hv. ræðumaður eigi að vita að þetta er ekki merki um það. Það er merki um að hv. ræðumaður hefur farið umfram ræðutíma sinn skv. þingsköpum.) Þá læt ég hér með lokið þessari ræðu, herra forseti.