10.04.1986
Efri deild: 73. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3635 í B-deild Alþingistíðinda. (3313)
415. mál, skiptaverðmæti og greiðslumiðlun innan sjávarútvegsins
Skúli Alexandersson:
Virðulegi forseti. Það var hugmynd mín að vera ekki langorður við þessa umræðu og hafði ég reyndar sagt það við hæstv. ráðh. að ég mundi ekki telja ástæðu til að fara mörgum orðum um það frv. sem hér liggur fyrir til umræðu, enda held ég að það eigi eftir að vinna og fá ýmsar upplýsingar um frv. sem nauðsynlegar eru til þess að menn úttali sig um ýmsa þá þætti sem hér er lagt til og ýmsar þær breytingar sem frv. gerir ráð fyrir. Ég taldi þó nauðsynlegt að koma upp og benda á nokkra þætti sem ég tel ástæðu til að undirstrika og ekki síst þann fréttaflutning sem átt hefur sér stað í sambandi við framlagningu þessa frv. á hv. Alþingi og snertir kannske beint þá spurningu sem hv. 5. landsk. þm. lagði hér fram og bar undir ráðherra, hvort þetta væri ríkisstjórnarfrv. og hvort við mættum búast við því að þetta væri frv. sem ríkisstj. styddi öll. Þetta frv. hefur verið kynnt fyrst og fremst sem frv. sjútvrh. Mörg hver stjfrv. eru fyrst og fremst sem stjfrv. en ekki frv. ráðherra. Ég tel að þetta frv. hefði fyrst og fremst átt að kynna sem stjfrv. en ekki sem sérstakt frv. hæstv. sjútvrh. vegna þess að frv. var unnið á þann máta að ekki er hægt að eigna einum ráðherra ríkisstj. frv. frekar en öðrum. Þetta frv. var unnið af hagsmunasamtökum og fulltrúum þingflokka. Ég mundi frekast orða það þannig að þetta hafi verið samið úti í bæ og afhent hæstv. ríkisstj. og þá fyrst og fremst vitaskuld hæstv. sjútvrh. til að koma því í gegnum þingið. Þetta er svipað plagg og gengið var frá uppi í Garðastræti sællar minningar í sambandi við launasamninga. Þetta er plagg sem búið er að ganga frá úti í bæ og afhent ríkisstj.: Viljið þið láta koma þessu í gegnum þingið. Gjörið þið svo vel.
Það er af og frá að það sé hægt að eigna hæstv. sjútvrh. þetta plagg frekar en öðrum í ríkisstj. eða þeim sem sömdu þetta, en vitaskuld gerðu það fyrst og fremst hagsmunasamtökin, þ.e. LÍÚ, Sjómannasamband Íslands og Farmanna- og fiskimannasamband Íslands og samtök fiskvinnslustöðvanna, sem þarna áttu fulltrúa, og Samband íslenskra samvinnufélaga.
En fréttaþjónustan hefur verið á þann veginn að hæstv. ráðh. hefur verið kallaður til að útskýra frv. og síðan hafa fulltrúar hagsmunasamtaka verið kallaðir til og spurðir um hvernig þeim þætti þessi gangur mála. Ég held að hefði átt að fara að á þveröfugan veg. Hagsmunasamtökin höfðu útbúið plaggið í hendurnar á ráðherra og það hefði verið ósköp eðlilegt að þau hefðu verið kölluð til til að útskýra það og ráðherra síðan kallaður fyrir og spurt hvernig honum fyndist afurðin sem honum væri fengin í hendur.
Þetta er vitaskuld aukaatriði, en það er samt spaugilegt að meira að segja blessaður Mogginn kemst ekki fram hjá því að tíunda þetta fyrst og fremst sem frv. sjútvrh. en alls ekki sem frv. ríkisstj. Að mjög litlu er getið þeirra aðila sem stóðu að samningu þessa frv. í fréttatilkynningum bæði ríkisfjölmiðla og blaða.
Hæstv. ráðh. hefur lýst frv. mjög vel. Ég tók ekki eftir neinu að ráði sem þar mætti túlka á annan veg en að hann væri að útskýra það plagg sem hann hefur fengið í hendur til að bera upp á hv. Alþingi þó að þar væru vissir hnökrar á.
Í fyrsta lagi nefndi ráðherra að um væri að ræða hækkun fiskverðs. Þetta er að mínu mati hártoganlegt. Það verða sjálfsagt hærri tölur í dálkum þar sem einingarverð verður skráð á hverja fisktegund eftir samþykkt þessa frv., en í eðli sínu verður ekki nein hækkun sem skiptir máli. Hér er um að ræða að það er verið að breyta reikningsútfærslu. Það kemur ein tala sums staðar fyrir vissum millifærsluþætti og sjóðahlut. Flestar stærðir eru í eðli sínu algjörlega óbreyttar, eins og hæstv. ráðh. undirstrikaði reyndar. En hæstv. ráðh., bæði í ræðustól og í fréttaviðtali við útvarpið, nefndi að hér væri um hækkun að ræða, sem í eðli sínu er ekki rétt, enda vildi aðalsmiðurinn, Kristján Ragnarsson, þegar hann var kallaður til og beðinn um útskýringu, ekki taka undir að hér væri um neina hækkun að ræða. Hér væri fyrst og fremst verið að breyta reikningsleiðum til að ná sömu lokaniðurstöðum.
Ég held líka að umtalið um að við séum að leggja niður óskaplegan frumskóg sé allt orðum aukið. Þær millifærslur sem eru núna í sjávarútveginum eru ekki neinn frumskógur. Ríkisstj. hefur talið þægilegra að hafa þær eins og þær eru um stund, þ.e. millifærslurnar sem eiga sér stað í gegnum Aflatryggingasjóð. Vitaskuld var mjög auðvelt fyrir verðlagsráð og þá menn sem nú eru að tala um frumskóg að gera þetta við síðustu fiskverðsákvörðun, koma millifærslu þeirri sem Aflatryggingasjóður hefur verið að greiða beint inn í fiskverðið. Það þurfti ekkert að búa til sérstakt frv. um að koma því fyrir á þann veg sem er verið að gera með þessu frv. En þrátt fyrir það er ég á því, og hef samþykkt þetta frv., að hér sé verið að einfalda hluti og gera þá hentugri og betri en áður hefur verið þótt hér sé alls ekki um neinar stórkostlegar breytingar að ræða.
Það hefur verið rætt hér áður og ég hef nefnt það úr þessum ræðustól að um leið og sú fiskveiðistjórnun var samþykkt sem nú er við lýði var Aflatryggingasjóður gerður að millifærslusjóði fyrir sjútvrn. Þar með var hans upphaflega verkefni lagt til hliðar. Ég fagna því að hæstv. ráðh. skuli hafa gefið þá yfirlýsingu nú við þessa umræðu að hann muni jafnvel leggja til og standa að því að hið gamla hlutverk Aflatryggingasjóðs verði nú endurvakið og jafnvel búinn til, eins og ráðh. nefndi, nýr aflatryggingasjóður eða tekjutryggingasjóður. Þrátt fyrir það mikla skipulag, skömmtunarkerfið sem við búum við, gæti það átt sér stað að aflabrestur yrði í einhverjum landshluta og þá væri til tryggingasjóður eins og Aflatryggingasjóður var áður. Ég fagna því að ráðh. gefi það fyrirheit og ég vona að um leið og gengið verður frá því að leggja Aflatryggingasjóð niður sem millifærslusjóð verði búinn til nýr sjóður sem tryggir eldri þáttinn, þann þátt sem Aflatryggingasjóður sinnti áður en kvótalögin voru sett hér á.
En með því að leggja niður Aflatryggingasjóð er kannske fleira að gerast en að millifærslusjóður sjútvrn. verði afnuminn. Aflatryggingasjóðurinn stuðlaði að því með sínum millifærslum að viðkomandi útvegsmenn, viðkomandi fiskkaupendur, sendu Fiskifélagi Íslands skýrslur. Þessar skýrslur voru bráðnauðsynlegar til að vita hvað mikið væri sótt af afla á Íslandsmið, til ýmissa hluta í þjóðfélaginu, m.a. grundvöllur verðlagsráðs til að reikna út sitt fiskverð, grundvöllur Hafrannsóknastofnunar til að taka ákvarðanir um það hvað megi sækja mikinn afla í sjóinn og grundvöllur þess að við fáum fullkomnar og réttar upplýsingar um það hverju aflamarkið sé að skila okkur í land.
Með því að leggja Aflatryggingasjóð niður í þeirri mynd sem hann er núna erum við raunverulega að kippa fótum undan vissum ákvörðunartökum í þjóðfélaginu og vissu upplýsingastreymi. Það er ekki lengur jafnmikið öryggi fyrir því að skýrslur berist Fiskifélagi Íslands um það hvað mikill afli er sóttur í sjóinn. Það er ekki lengur neitt sem hvetur viðkomandi aðila, þ.e. það eru engir peningar lengur til að sækja í Aflatryggingasjóð og ekkert sérstakt sem hvetur viðkomandi aðila til að láta þessar skýrslur í té. Jafnvel þó að við treystum því að viðkomandi aðilar muni senda þessar skýrslur þá verður það alltaf á þann veg að þær koma seinna og koma verr en annars skyldi.
Ætli það sé ekki verið að hlaupa þarna frá ákveðnum þætti sem okkur sé alveg bráðnauðsynlegur til að halda í gangi upplýsingum sem er mjög mikið atriði fyrir okkur að hafa nokkurn veginn klárar og öruggar í hvert skipti? Ég sé ekki hvernig þeir í sjútvrn. ætla að fylgjast með því hvernig aflamarkið verður, hvernig haldið verður utan um aflamarkið ef skýrslur berast ekki örugglega til Fiskifélags Íslands og Fiskifélag Íslands getur ekki gefið því upplýsingar um það hvað aflinn hafi verið mikill. Á sama máta verða upplýsingar, sem verðlagsráð hefur, vafasamar og á sama máta verða þær upplýsingar, sem Hafrannsóknastofnun hefur, vafasamar. Það getur vel verið að það verði fundnar einhverjar aðrar leiðir til að tryggja að eðlileg skil eigi sér stað á eðlilegum tíma í sambandi við þessar upplýsingar. En það liggur ekki fyrir með þessu frv.
Við skoðun þessa máls í nefnd gefur það auga leið að þrátt fyrir það samkomulag sem varð í þeim hópi sem vann að undirbúningi og samningu þessa frv. eru ýmsir aðilar sem þarf að kalla til og fá þeirra afstöðu og upplýsingar um það sem hér er verið að breyta. Ég vil í fyrsta lagi nefna forustumenn Fiskifélags Íslands. Hvað er verið að gera gagnvart Fiskifélagi Íslands með þeim breytingum sem hér eiga sér stað? Það liggur nokkurn veginn ljóst fyrir að þessi breyting kallar þar á mikinn samdrátt og minnkandi tekjur þeirrar stofnunar.
Það þarf að kalla fyrir forustumenn Fiskveiðasjóðs. Verið er að taka stóran tekjustofn af Fiskveiðasjóði og verið er að veita Stofnfjársjóði fiskiskipa nýtt verkefni, að skammta þessi 2% af 15% til ýmissa aðila. Það er verið að búa til nýtt skrifstofufargan. Til hvers? Ég veit ekki betur en að við eigum og höfum fyrir hendi allt það sem þarf til að skipta þessum 2% hjá Fiskifélagi Íslands. Þar mun vera skrá yfir hvert einasta skip, hvern einasta smábát. En það er talið eðlilegt samkvæmt þessu frv. að færa þetta yfir til Stofnfjársjóðs. Ég held að það sé nauðsynlegt að spjalla við þá forustumenn Fiskveiðasjóðs um það hvort þetta sé heppileg ráðstöfun. Vera má að það séu einhver rök fyrir því og gild en þetta þarf að skoða.
Jafnvel þó að lagt sé til í frv. því sem hér liggur fyrir hv. Alþingi að sameina Fiskimálasjóð og Fiskveiðasjóð þurfum við að heyra afstöðu þeirra manna sem fara þar með stjórn. Ég held að það sé ekki laust við að við þyrftum að fá að spjalla við tryggingafélögin, því að þó að nú sé mikið talað um að það sé verið að hreinsa til og það sé verið að hætta öllum millifærslum þá er ansi stór millifærsla áfram látin vera í þessum lögum, þ.e. millifærsla í sambandi við tryggingariðgjöldin. Hún er ekki neitt smáræði, hún er tvöfölduð frá því sem áður var, frá því þegar verið var að greiða í Tryggingasjóðinn og þá til Landssambands ísl. útvegsmanna, sem er þarna milliliðurinn og millifærsluaðilinn.
Áður var þetta 60% af iðgjöldum - ég held ég fari rétt með það, það hafi verið frekar 60 en 40% - en nú er talið að þetta muni nægja til að standa undir meginhluta tryggingariðgjalda. Það er ekki verið að borga þetta t.d. í gegnum opinbera stofnun eins og Fiskifélag Íslands eða jafnvel Stofnfjársjóð beint til tryggingafélaganna. Nei, það er búinn til millifærslupottur hjá Landssambandi ísl. útvegsmanna sem þetta á fyrst að safnast saman í og er síðan deilt til hvers fiskiskips. Ég held að við þurfum að fá að spjalla dálítið vel um þetta við tryggingafélögin.
Það eru nýmæli í þessu frv. að búinn er til einn nýr millifærslupóstur, þ.e. smábátarnir eru nú teknir til og millifært frá þeim. Í þeim potti er hlutur til Félags smábátaeigenda. En smábátaeigendur hafa verið í tveimur félögum jafnvel þó að sömu mennirnir hafi kannske verið í báðum félögunum, Félagi grásleppubátaeigenda og smábátaeigenda. Það þarf ábyggilega að spjalla svolítið við þessa menn um hvernig þeirra samstarf á að verða í framtíðinni.
Ég tek það fram að ég tel að þarna sé verið að fara rétta leið. Það er ósköp eðlilegt að smábátaeigendur skipti sér ekki upp í tvö félög og millifærsluleiðin, sem verið er að gera þarna, þ.e. taka 10% af aflaverðmæti smábátanna til sérstakra skipta, er spor í rétta átt. Með því er verið að tryggja það að smábátamenn tryggi skipshafnir sínar, borgi til lífeyrissjóða og tryggi skipin sín auk þess sem þeir láta ákveðið framlag til þeirra félaga sem þeir hafa verið á undanfarandi árum að byggja upp.
Þó að höfð séu stór orð um það að nú sé verið að hætta og nú séu skiptin komin á hreint o.s.frv. er það nú ekki alveg rétt. Í lokin tel ég rétt að ég lesi hér upp bókun fulltrúa sjómanna þar sem þeir undirstrika það að þrátt fyrir þessar breytingar og þrátt fyrir það að þeir standi að þessu og hafi unnið og búið til þetta frv. sem við erum að ræða, þá séu þeir þar með ekki að samþykkja þann hlut sem enn fer fram hjá skiptum. Eftir samþykkt frv. eru ákveðnar prósentutölur sem teknar eru til skipta, annað er utan skipta. Ég ætla að leyfa mér, virðulegi forseti, að lesa upp bókun fulltrúa sjómanna sem eru þeir Óskar Vigfússon, Sjómannasambandi Íslands, og Guðjón A. Kristjánsson frá Farmanna- og fiskimannasambandinu. Hún er svohljóðandi:
„Fulltrúar sjómanna í nefnd til endurskoðunar á sjóðakerfi sjávarútvegsins vilja taka eftirfarandi fram:
Með vísan til þeirra brbl. sem sett voru á árinu 1983 um sérstakan kostnaðarhlut útgerðar var tekinn sérstakur 29% kostnaðarhlutur fram hjá skiptum. Af þessum kostnaðarhlut komu út til skipta 10,5% á bátum 240 brúttólestir og minni en 18,5% ekki. Af bátum stærri en 240 brúttólestir koma 6,5% til skipta en 22,5% ekki. Sú kostnaðarhlutdeild, sem nú er utan skipta, samsvarar 12-14% af því fiskverði sem mun taka gildi eftir einföldun sjóðakerfisins.
Þrátt fyrir stuðning við einföldun sjóðakerfisins teljum við að með þeim lagabreytingum sem væntanlegar eru, þar sem skiptaverð er ákveðið með lögum af því fiskverði sem Verðlagsráð sjávarútvegsins ákveður, séu sjómenn þar með ekki að afsala sér þeim kostnaðarhlut sem nú fer fram hjá skiptum. Samfara lækkandi olíukostnaði og minni fjármagnskostnaði útgerðar hlýtur því krafa sjómanna að vera sú að það sem enn er utan skipta eftir einföldun sjóðakerfisins verði síðan tekið inn í skiptaverð til sjómanna. Jafnframt óska fulltrúar sjómanna að meðfylgjandi bókun fylgi bréfi nefndarinnar til sjútvrh.
Óskar Vigfússon,
Guðjón A. Kristjánsson.“
Ég held að þessi yfirlýsing sjómannanna undirstriki það að þrátt fyrir það að hér sé verið að gera mikla einföldun á útreikningi fiskverðs sé því miður nokkuð í land að hlutaskiptin séu á þann máta sem sjómannasamtökin telja sig hafa rétt til og það sé, eins og ég hef verið aðeins að skýra hér, nokkuð langt frá því að öllum millifærslum sé hætt. Þær eru enn þá ansi stórar þó að þetta frv. verði að lögum sem ég vona að verði.