10.04.1986
Efri deild: 73. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3639 í B-deild Alþingistíðinda. (3314)

415. mál, skiptaverðmæti og greiðslumiðlun innan sjávarútvegsins

Árni Johnsen:

Virðulegi forseti. Í því frv. sem hér um ræðir er fjallað um breytingar sem margar hverjar eru aðkallandi. Það er ljóst að núverandi kerfi er orðið allflókið, svo flókið í tilvikum að reyndustu menn þurfa stundum að staldra við í uppgjöri á afla og útgerð. En þetta frv. einfaldar mjög framkvæmd alla í útvegi. Einnig stuðlar það að því að menn verði að meta stöðuna á stað og stund, velja sér næturstað eftir verðmætamöguleikum og öðru og kallar það á betri nýtingu í heild.

Það eru þó ýmsar spurningar sem vakna í því frv. sem um ræðir. Í fyrsta lagi má nefna Aflatryggingasjóð. Það er ljóst t.d. að þær breytingar sem þar verða á skv. frv. koma sér illa fyrir suðursvæðið, sérstaklega þau skip sem veiða mikið af karfa - ufsinn er dreifðari á miðum landsins. Úr Aflatryggingasjóði hefur verið greidd eins konar uppbót, 16%, á karfa en 6% á aðrar fisktegundir. Það er því Ijóst að niðurfelling þessa sjóðs hefur áhrif á afkomu þeirra fjölmörgu togara á suðursvæði sem hafa veitt verulega mikið af karfa. Það er ástæða til að spyrja ráðherra hver hugsun sé þar á bak við, hvernig þarna jafnist út hlutir þegar til lengdar lætur.

Það er ástæða til þess í sambandi við umræðuna hér í hv. deild að ræða nokkuð um það hvernig aflinn, aflaverðmætin, vinnan á sjó og í landi, fjárfesting skipaflota og mannvirkja í fiskvinnslu spila inn í það dæmi sem hér um ræðir. Ég ætla að víkja sérstaklega að einum þætti sem mér finnst brýnt að fjalla um og er í brennidepli í dag. Það er sú þróun sem á sér stað í útflutningi fisks með gámum, skipum og flugvélum en þó sér í lagi gámafiskinn svokallaða.

Með þeim lögum og kvótareglum, sem við búum við, erum við búin að afmarka afla á ákveðin svæði og það er ekki heimilt að flytja á milli svæða. En er þá siðferðilega heimilt til lengdar að leyfa útflutning á ótakmörkuðum afla af þessum svæðum sem hafa um langan tíma byggt hluta vinnu sinnar á fiskverkun? Þarna spilar inn í að það er samkeppni um að kaupa aflann og unnt að fá hærra verð erlendis en hér heima að því er virðist. Á sama tíma þrengir að vinnu fólks í landi þegar afli er takmarkaður og ónógur. Þetta er því spurning sem ég held að sé full ástæða til að ræða mjög ítarlega og alvarlega.

Það er ljóst af fréttum síðustu daga að í stærstu verstöð landsins um áratugaskeið, Vestmannaeyjum, raskar þessi þróun nokkuð ýmsu sem menn hafa talið að væri fast í sessi og unnt væri að byggja á í vinnu við fiskvinnslu. Til þess að hafa ljóst í stuttu máli hver þróunin er í þessu efni yfir landið í heild vil ég nefna nokkrar tölur. Í fyrsta lagi ef við tökum s.l. þrjú ár, 1983, 1984 og 1985, þá hefur nýr, kældur, ísvarinn fiskur með flugvélum nokkuð staðið í stað á þessu tímabili. 1983 var fiskur með flugvélum um 2000 tonn, 1984 var hann 1355 tonn og 1985 var hann 1492 tonn. Þarna eru ekki verulegar sveiflur. Sveiflurnar eru ekki heldur miklar í raun í útfutningi á kældum eða ísvörðum fiski með fiskiskipum. 1983 er hann 35 000 tonn, 1984 fer hann að vísu upp í 53 000 tonn en 1985 fer hann aftur í 35 000 tonn.

Sveiflan er á undanförnum árum í útflutningi á kældum eða ísvörðum fiski með vöruflutningaskipum, þ.e. í gámum. Ef ég man rétt var útflutningurinn 1982 u.þ.b. 3000 tonn í gámum, 1983 um 7000 tonn, 1984 fer hann í 12 700 tonn, þ.e. það er um 100% aukning á milli ára 1982, 1983 og 1984, en um 150% aukning 1985, þá fer þessi tala í 32 700 tonn. Þetta er allmikil breyting þegar það er að talsverðu leyti svæðisbundið hvernig þetta kemur niður.

Það hefur komið fram í fréttum frá Vestmannaeyjum að fjórði hver fiskur í marsmánuði, sem hefur verið langmesti aflamánuðurinn á þessari vertíð, fari utan í gámum, þó ekki nema tíundi hver fiskur á allri vertíðinni frá áramótum. En 25% af marsafla geta vegið þungt í svo stórri verstöð, að ekki sé talað um aðra staði.

Heildaraflinn í marsmánuði 1984 í Vestmannaeyjum var 16 700 tonn. Þá fór ekki eitt einasta tonn í gáma. Heildaraflinn í marsmánuði í Vestmannaeyjum 1985 varð 12 800 tonn. Þá hamlaði að vísu verkfall veiðum og það skýrir að nokkru leyti að talan er ekki hærri. En í marsmánuði 1985 fóru 130 tonn í gáma. Í marsmánuði 1986 er heildaraflinn 13 477 tonn og í gáma fara 2545 tonn. Þetta er 20% af aflanum sem fer í gáma, en þess ber að geta að koli er um helmingur aflans og fyrir hann fæst lítið verð hérlendis en mikið erlendis.

Þetta skýrir það hvers vegna mönnum bregður við því að þarna er verið að breyta allverulega ákveðnum hlutum sem hafa verið stöðugir.um langt skeið og skipta miklu máli fyrir sjávarpláss landsins. Það er t.d. ljóst að ef gámafiskur eða gámaútflutningur mundi aukast verulega dregur það úr margs konar atvinnumöguleikum í plássum landsins. Ef sú þróun héldi áfram í einhver ár mundi það skapa mikinn vanda, ekki aðeins í hinum ýmsu sjávarplássum sem liggja í þjóðbraut í flutningum, heldur einnig á höfuðborgarsvæðinu sem ósjálfrátt yrði sá vettvangur sem menn yrðu að leita til. Þetta er því stórt og mikið mál sem ástæða er til að taka föstum tökum og kanna til rótar nú þegar.

Það er engin tilviljun eftir þessar upplýsingar að bæjarstjórn Vestmannaeyja ákvað fyrir skömmu að efna til fundar með fulltrúum útvegsbænda, sjómannafélaga, verkalýðsfélaga, fiskvinnslufólks og fiskvinnslustöðva auk atvinnumálanefndar bæjarins um hinn stóraukna útflutning á ferskum fiski í gámum og flutningaskipum frá Vestmannaeyjum og til að kanna áhrif hans á atvinnulíf byggðarlagsins eins og unnt er með viðræðum þessara aðila.

Það eru u.þ.b. 10 000 konur sem starfa í fiskvinnslu á landinu öllu í heilsdagsstörfum eða hlutastörfum. Þar af eru líklega 500- 600 í Vestmannaeyjum. Þetta varðar því afkomu margra heimila bæði nú og í framtíðinni og þess vegna skiptir svo miklu máli að hafa alla þræði eins og unnt er í hendinni og hafa sýn yfir sviðið og þá þróun og möguleika sem um er að ræða.

Það hefur t.d. vakið athygli í þessari þróun að þeir bátar sem fiska í gáma henda að öllu jöfnu bæði hrognum og lifur í sjóinn. Þetta hefur verið meginreglan hjá togaraflotanum, það eru undantekningar ef togarar koma með lifur eða hrogn að landi. Að maður tali nú ekki um frystiskipin sem hafa langversta nýtingu á afla í heild af öllum flota landsins. Ég skal ekki nefna nákvæmar tölur en það hefur heyrst af mönnum sem hafa kannað og þekkja allvel til mála að allt að 70% af þyngd afla í frystiskipunum fari í sjóinn aftur. Þetta gengur ekki upp til lengdar þegar við erum með kvóta og þurfum að leggja ofurkapp á að fullvinna hvert einasta kíló sem í veiðarfæri kemur.

Þessi þróun, gámaútflutningurinn, hefur komið mjög við sögu ákveðins svæðis undanfarin ár á landinu, Suðurnesja. Þar hefur verið veruleg aukning á þessum útflutningi sem hefur verkað hægdrepandi á marga þætti í fiskvinnslunni í landi á Suðurnesjum. Þar spila aðrir þættir inn í en þróunin er þessi í heild engu að síður.

Menn spyrja gjarnan hver hinn raunverulegi hagnaður sé af því að flytja fiskinn út í gámum í stað þess að koma honum til verkafólks í fiskvinnslu í landi. Það er hægt að horfa á þetta frá mörgum sjónarmiðum en hafa verður í huga einnig að þetta er ekki neitt stundargaman eða skyndifyrirbæri. Það þarf að horfa til þess að það er búið að fjárfesta í atvinnutækjum, bæði til sjós og lands, og það þarf að tryggja á skynsamlegan hátt eins og hægt er nýtingu þeirra atvinnutækja án þess að hamla þó eðlilegri þróun og hreyfingu í sambandi við markaðsmöguleika. Það má reikna með að skilaverð til Íslands á fiski, sem er seldur erlendis, sé u.þ.b. 75% af brúttóverði erlendis, en 25% af brúttóverðinu, eða þar um bil, fari í flutningskostnað, útflutningsgjöld og ýmsan annan kostnað. Þetta þýðir að ef útvegsmaður selur fiskkíló á 60 kr. erlendis fær hann heim u.þ.b. 45 kr., eða 74-75% af brúttóverðinu. Þá á hann að vísu eftir að borga í sjóði, vátryggingasjóði, stofnfjársjóð og fleira, sem breytilegt er til skipta, en þetta er talan, 45 kr., sem hægt er í grófum dráttum að miða við. Og hvað er það miðað við það verð sem fæst fyrir kílóið t.d. af þorski hér heima? Með öllu talið, með kassagjaldi og lönduðum fiski hér heima, er kílóið u.þ.b. 26 kr. Það munar um það bil 19 kr. á kílóinu ef maður tekur grófa tölu og það þýðir að skilin, afkoman, er u.þ.b. 30% betri á þessum fiski.

Það má því segja að miðað við þetta kílógjald, 60 kr., sem ég nefndi, sé þetta niðurstaðan. Sé hins vegar greitt hærra verð erlendis gjörbreytist afkoman til batnaðar í hlutfalli við það. Ef kílóið fer niður í 40 kr. á erlendum markaði má segja að út úr því komi sama skilaverð og er á kílóinu á Íslandi, eða 26 kr. Ef söluverðið úti er 40 kr. gildir það sama og 26 kr. á Íslandi.

Þrátt fyrir þessi dæmi er ljóst að það eru ekki nákvæmar upplýsingar fyrir hendi hjá neinum aðila um hvað þetta þýðir í raun og veru, ekki nákvæmlega og klárt meðalverð liggur ekki fyrir. Þetta eru grófar tölur en tölur sem hægt er að miða við. Það er því ljóst að það verður í þessari stöðu og þessari þróun að fara ofan í kjölinn á þessu máli þannig að menn séu a.m.k. ekki að fara með fisk úr landi á fölskum forsendum. Því auðvitað hljómar það vel eins og í dag þegar menn fá t.d. 80 kr. erlendis fyrir kílóið en 26 hér heima en þá er eftir að borga í ýmsa sjóði og ýmsar greiðslur, flutningskostnað og fleira sem er auðvitað þeim mun meiri sem fjær dregur sölustað. Þannig eru ákveðnar falsvonir sem hætta er á að menn horfi til þegar þeir þurfa að meta hvar þeir fái mest fyrir sitt hráefni.

Það er líka ljóst að þessi þróun er meira spennandi fyrir suðursvæðið, það hefur sýnt sig. Þetta hefur verið aukning á svæðinu frá Snæfellsnesi og að Hornafirði en þó mest í Vestmannaeyjum því að þar er þjóðbraut í siglingaleið og flutningaskipin þurfa ekki að stoppa nema í tvo klukkutíma til að taka mörg hundruð tonn.

Þetta eru nokkrar, held ég, forvitnilegar staðreyndir sem mér fannst ástæða til að koma inn í þessa umræðu og spyrja hæstv. sjútvrh. hvort hann hyggist standa fyrir þessari úttekt, þessari könnun, og standa fyrir umræðu og skipulagningu eins og unnt er, en slíkt hefur ráðist svolítið af framtakssemi hinna ýmsu manna á þessum markaði hingað til. Það er t.d. ekki borið saman hvernig hluturinn er gerður upp í gegnum Fiskifélag og Landssamband ísl. útvegsmanna og þess vegna m.a. liggja þessar tölur ekki fyrir á hreinu.

Það er margt annað sem spilar inn í og ástæða er til að nefna í stuttu máli. Síðastliðið ár var t.d. mjög hagstætt fyrir Íslendinga á þessum markaði því að veður voru mjög slæm á heimamiðum Bretlands og lítill afli barst á land af þeim sökum. Það hækkaði verðið á íslenska fiskinum. Það geta orðið miklar sveiflur í þessu þegar betur árar hjá Bretum en verr hjá okkur í veðurfari og ef við erum búnir að skapa ákveðna þróun sem dregur úr afkastagetu fiskvinnsluhúsanna með minnkandi afla vegna aukinnar sölu til útlanda, í hvaða hús er þá að venda ef markaðirnir eru yfirfullir erlendis eða óhagstæðir í verði og nægur afli er hérlendis án þess að unnt sé að verka hann til hæsta verðs?

Hluti af íslenska gámafiskinum hefur verið keyptur af fiskvinnslustöðvum erlendis en það hefur eingöngu átt sér stað þegar verðið hefur verið lágt. Þess vegna þarf m.a. að hafa strangt eftirlit og yfirsýn í þessu máli og það þarf að gæta þess að framboðið verði ekki of mikið. Menn verða að læra á markaðinn. Það er ekki óeðlilegt að hluti af þessum fiski sem við veiðum við landið, a.m.k. eins og staðan er í dag, fari á erlendan markað meðan það er hagstætt en menn verða að staldra við, að mínu mati, og kanna hvað sé eðlilegt og skynsamlegt í þessu máli í heild, bæði hvað varðar þegar horft er á líðandi stund og til lengri tíma.