10.04.1986
Efri deild: 73. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3648 í B-deild Alþingistíðinda. (3320)

415. mál, skiptaverðmæti og greiðslumiðlun innan sjávarútvegsins

Sjútvrh. (Halldór Ásgrímsson):

Virðulegi forseti. Að sjálfsögðu munu stjórnir þeirra sjóða að einhverju leyti fjalla um málið, en það verður ekki undan því vikist að ráðherra á hverjum tíma ber ábyrgð á meðferð mála sem þessara og er eðlilegt að hún liggi þar. Ég held að það gildi í öllum tilvikum og get ekki séð af hverju ætti eitthvað annað að gilda í þessu tilviki.

Að því er varðar Fiskimálasjóð tek ég undir að það er á vissan hátt eftirsjá í ýmsu í hans starfsemi. Hins vegar hefur hann verið í ýmiss konar málum menningarlegs eðlis og rannsóknarlegs eðlis. Það hefur verið nýlega stofnað Þróunarfélag Íslands sem á að sinna rannsóknarmálum og þróunarverkefnum. Það var einnig gert ráð fyrir í svokölluðu sjóðafrv., sem hafði áður verið samþykkt að leggja fram af ríkisstj. og stjórnarflokkum, að Fiskveiðasjóður yfirtæki þetta hlutverk. Sjálfsagt er að endurskoða hans reglur í framhaldi af þessu máli. Það verður einnig að taka tillit til þess að sérstakt félag hefur verið stofnað til að greiða fyrir þróun í íslensku atvinnulífi. Ég er alveg sannfærður um að flest þau þróunarverkefni sem bestum árangri geta skilað er hægt að finna innan íslensks sjávarútvegs.