10.04.1986
Efri deild: 73. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3651 í B-deild Alþingistíðinda. (3329)

404. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Flm. (Haraldur Ólafsson):

Hæstv. forseti. Á þskj. 748 leyfi ég mér ásamt hv. þm. Jóni Kristjánssyni að flytja frv. til l. um breytingu á lögum nr. 75/1981, um tekjuskatt og eignarskatt, með síðari breytingum.

Með þessari breytingu er lagt til að heiðurslaun listamanna, listamannalaun, og verðlaun og viðurkenning í peningum veitt listamönnum fyrir verk þeirra verði undanþegin skatti.

Það er lagt til að þetta komi inn í 20. gr. laganna. 1. gr. hljóðar svo, með leyfi forseta:

„Við 28. gr. laganna bætist nýr tölul. er hljóði svo: Heiðurslaun listamanna, listamannalaun, verðlaun og viðurkenning í peningum veitt listamönnum fyrir verk þeirra.“

Í grg. segir m.a. að fyrir nokkrum vikum hafi listamannalaunum verið úthlutað og þá hafi nokkur hópur listamanna fengið svokölluð listamannalaun, sumir 40 þús., aðrir 20 þús. Þá fengu nokkrir af virðulegustu listamönnum landsins heiðurslaun listamanna á fjárlögum. Þau nema nú 275 þús. kr. Einnig koma til örfáar veitingar aðrar sem ég tel að eigi að vera í þessum hópi. Það er t.d. úthlutun úr Rithöfundasjóði Ríkisútvarpsins og einnig verðlaun, m.a. verðlaun Norðurlandaráðs fyrir bókmenntaverk eða tónverk, nóbelsverðlaun og annað slíkt. Þess verður að geta að um verðlaun Norðurlandaráðs og nóbelsverðlaun hafa verið sett sérstök lög sem undanþiggja þessi verðlaun skatti.

Ég ætla ekki að verða fjölorður um þetta mál. Ég tel að það sé örlítið verið að koma til móts við listsköpun í landinu með þessu máli. Fyrir ríkissjóð skiptir þetta sáralitlu máli og er reyndar furðulegt að þessar smáu upphæðir, sem hér eru veittar sem listamannalaun, heiðurslaun og sem verðlaun, skuli ekki fyrir löngu hafa lotið þeirri almennu reglu að vera undanþegnar skatti.

Að lokinni þessari umræðu leyfi ég mér að leggja til að máli þessu verði vísað til 2. umr. og hv. fjh.- og viðskn.