10.04.1986
Neðri deild: 75. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3654 í B-deild Alþingistíðinda. (3338)

236. mál, veiting ríkisborgararéttar

Landbrh. (Jón Helgason):

Herra forseti. Ég mæli hér fyrir frv. til laga um veitingu ríkisborgararéttar eins og það er á þskj. 794 eftir afgreiðslu Ed. á málinu. Í Ed. var bætt við 19 einstaklingum. Nú er því lagt til að 38 nýir einstaklingar fái íslenskan ríkisborgararétt.

Ég legg til að að lokinni þessari umræðu verði frv. vísað til 2. umræðu og hv. allshn.