11.04.1986
Neðri deild: 76. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3665 í B-deild Alþingistíðinda. (3348)

275. mál, öryggi á vinnustöðum

Frsm. (Stefán Valgeirsson):

Herra forseti. Þetta frv. er þess efnis að ekki þurfi að endurskoða lögin fyrr en 1990. Þegar lögin voru sett fyrir fimm árum var ákvæði í þeim um að þau skyldu endurskoðuð innan fimm ára. Þeir sem sömdu frv. í fyrstunni leggja til að þessu verði frestað um fimm ár vegna þess að það sé ekki komin fullkomin reynsla á lögin og hafi ekkert komið fram sem bendi til þess að mikilla breytinga sé þörf. Á þskj. 801 er nál. þar sem félmn. leggur til að frv. verði samþykkt óbreytt.