11.04.1986
Neðri deild: 76. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3665 í B-deild Alþingistíðinda. (3349)
275. mál, öryggi á vinnustöðum
Ólafur Þ. Þórðarson:
Herra forseti. Sú regla hefur verið upp tekin í þinginu þegar ráðherrar hafa lagt fram mjög veigamikil lagafrv. að þeir hafa heitið endurskoðun þessara lagafrv. og það hefur jafnvel verið bundið í lagatexta að svo skuli gert. Oft og tíðum hefur þetta leitt til þess að frv., sem ella hefði fengið mun ítarlegri meðferð í sölum þingsins, hefur verið látið fara í gegn í trausti þess að mjög fljótlega yrðu lögin endurskoðuð og afstaða tekin til ákveðinna atriða. Ég tel að ef ráðherrar taka upp þá vinnureglu að koma með tillögu um að hætta við endurskoðun laganna þegar að því kemur að það á að endurskoða þau og ákveða aðeins að þau skuli framlengd, þá þýði þetta í reynd að Alþingi mun ekkert mark taka á yfirlýsingum sem þessum. Það eru beinar yfirlýsingar um að það er verið að blekkja þingið þegar frv. eru lögð fram og það er beinlínis verið að stuðla að því að koma í gegnum þingið málum með meiri vinnuhraða en æskilegt er. Mér er þess vegna ekkert launungarmál að ég tel mjög miður farið að mál þróist á þann veg að stórir lagabálkar, sem voru umdeildir þegar þeir fóru inn í þingið á sínum tíma, skuli ekki hljóta þá sjálfsögðu málsmeðferð, sem lögin gera ráð fyrir, að um endurskoðun verði að ræða á þeim tíma sem ákveðið var.
Ég ætla ekki að fara út í efnislega umræðu um þessa hluti frekar. En þetta gildir að sjálfsögðu líka um svokölluð sólsetursákvæði og annað sem menn hafa verið að setja í lög. Ef það er fyrir fram vitað að endurskoðun á aldrei að fara fram og það er aðeins verið að ýta þessu áfram á þennan hátt hlýtur það að leiða til þess að menn taki mun harðari afstöðu þegar lagabálkar eru settir hér inn og þeir eru afgreiddir án þess að gaumgæfileg vinna eigi sér stað.
Herra forseti. Ég treysti mér ekki til að styðja þá málsmeðferð sem hér er lögð til.