11.04.1986
Neðri deild: 77. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3677 í B-deild Alþingistíðinda. (3369)
336. mál, búnaðarmálasjóður
Forsrh. (Steingrímur Hermannsson):
Herra forseti. Ég hef látið athuga hvort gjaldtaka þessi hafi áhrif á verðlag á landbúnaðarafurðum og fengið upplýst að svo er ekki. Þetta mun ekki ganga inn í verðgrundvöll landbúnaðarafurða. Þetta er hins vegar gert að ósk þeirra samtaka sem hér er um að ræða. Með tilliti til þessa hvors tveggja segi ég já.