11.04.1986
Neðri deild: 77. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3678 í B-deild Alþingistíðinda. (3370)
336. mál, búnaðarmálasjóður
Steingrímur J. Sigfússon:
Herra forseti. Ég held að það sé mjög mikilvægt að tryggja þeim samtökum bænda einstakra búgreina innan landbúnaðarins sem verið hafa að koma upp s.l. misseri og s.l. ár eðlilegan starfsgrundvöll og heimila þeim að innheimta félagsgjöld og stéttarfélagsgjöld og segi því já.