11.04.1986
Neðri deild: 77. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3678 í B-deild Alþingistíðinda. (3371)
301. mál, dagvistarheimili fyrir börn
Flm. (Kristín S. Kvaran):
Hæstvirti forseti. Það frv. sem hér er til umræðu er á þskj. 593 og er um breytingu á lögum um byggingu og rekstur dagvistarheimila fyrir börn nr. 112/1976, með síðari breytingum. Flm. auk mín eru hv. þm. Ólafur Þ. Þórðarson, Guðrún Helgadóttir og Jóhanna Sigurðardóttir.
Lögin um byggingu og rekstur dagvistarheimila eru um margt mjög svo góð og gild og segja má að að mörgu leyti hafi framsýni ráðið lögum og lofum við upphaflega gerð þeirra. Fram til dagsins í dag virðast þau hafa getað rúmað flesta þá þætti sem taka þarf til greina við byggingu og rekstur dagvistarheimila. Þó er það ætíð svo að ýmislegt hlýtur að vanta upp á og í tímanna rás þróast þjóðfélagið og því eðlilegt að lagfæringar sé þörf. Þannig er því einnig varið um þessi lög sem og mörg önnur. ýmsir vankantar eru á lögunum og hefur verið gert ráð fyrir því af þeim sem starfa á dagvistarheimilunum. Þeir hafa fyllt í skörðin og leitast við að færa það mikilvæga uppeldisstarf sem þar er unnið fram á veg og aðlaga það aðstæðum og umhverfi skjólstæðinga sinna hverju sinni.
Það var einmitt m.a. vegna þessara vankanta sem hv. þm. Guðrún Helgadóttir gerði um það tillögu í frumvarpsformi á sínum tíma eða árið 1981 að gera þyrfti starfsáætlun á vegum menntmrn. er kveða skyldi nánar á um markmið og leiðir í uppeldisstarfi á dagvistarheimilum í samráði við þá aðila sem að uppeldis- og skólamálum vinna. Þetta frv. varð að lögum nr. 40 1981.
Það var svo í júlí 1982 sem menntmrh. skipaði nefnd til þess að semja starfsáætlun um uppeldisstörf á dagvistarheimilum í samræmi við lög nr. 40/1981. Jafnframt réð menntmrh. frú Valborgu Sigurðardóttur, þáv. skólastjóra Fósturskóla Íslands, til að vinna á vegum ráðuneytisins að þessu verkefni í samráði við nefndina.
Ég vil gjarnan, með leyfi herra forseta, lesa upp úr erindisbréfi frú Valborgar, en þar segir svo: „Starfsáætlunin skal byggjast á fræðilegum grunni í samræmi við þá þekkingu sem menn hafa í barnasálfræði og uppeldisfræði og með hliðsjón af álitsgerðum sem lagðar hafa verið fram af ýmsum aðilum sem ráðuneytið hefur leitað álits hjá.“
Nefndin kom fyrst saman í ágúst 1982 og hélt alls tólf fundi. Nefndarmenn komu sér saman um að nota orðið „uppeldisáætlun“ um verkefni sitt í stað orðsins „starfsáætlun“. Í þessari uppeldisáætlun kemur fram sú hugmyndafræði sem að baki liggur uppeldisstarfi á dagvistarheimilum og einnig hvert hlutverk þeirra er í nútíma þjóðfélagi. Þar eru einnig tíundaðir meginstraumar í hugmyndafræði uppeldis og menntunar á Vesturlöndum og hvaða áhrif þeir hafa haft á forskólauppeldið. Þar kemur fram mjög svo greinargóð og ítarleg röksemd fyrir því hvers vegna þörf sé á markmiðum fyrir uppeldisstörf á dagvistarheimilum.
Með leyfi herra forseta vil ég rekja hér þær ástæður sem nefndin telur helstar:
1. Dagvistarheimili eiga að vera fjölskyldum eða foreldrum til stuðnings og ættu þau að vera sjálfsögð viðbót við uppeldi barnanna. Er á ábyrgð samfélagsins að svo verði.
2. Dagvistarheimili eiga að stuðla að og örva alhliða þroska barnanna. Til þess að dagvistarheimili geti unnið að því þarf að tryggja að starfsemin geti fullnægt þeim gæðakröfum sem gera þarf með heill barnsins, fjölskyldunnar og samfélagsins alls í huga. Ákveðin og nægjanlega skýr markmið ættu að tryggja að uppeldisstarfið sé fjölbreytt og traust. Rekstraraðilar, starfsfólk og foreldrar verða að gera sér grein fyrir því að dagvistarheimili eiga að vera uppeldisstofnanir en ekki geymslustaðir. Það er um sameiginlega hagsmuni allra þessara aðila að ræða.
3. Nauðsynlegt er fyrir sérhvert dagvistarheimili að skipuleggja uppeldisstarfið og gera áætlanir um það til lengri eða skemmri tíma. Markmiðslýsingar og uppeldisáætlun eiga að vera raunhæfar leiðbeiningar til að skipuleggja starfið og auðvelda fóstrum og forstöðumönnum m.a. samstarf við sérfræðinga og ófaglært starfsfólk.
4. Veigamikið er að eðlilegt samhengi sé í uppeldi og menntun barnanna. Markmið dagvistarheimila og grunnskóla þurfa að byggjast á sömu grundvallaratriðum svo að samfella skapist í uppeldi barnanna.
5. Með vel skilgreindum markmiðum og almennri uppeldisáætlun væri auðveldara að samræma uppeldisstörf á hinum ýmsu dagvistarheimilum og tryggja betur gæði þeirra og jafna þar með uppeldisaðstöðu barnanna.
6. Menntun fóstra og annars sérmenntaðs starfsfólks þarf að taka mið af þeim uppeldiskröfum sem gera á til dagvistarheimila. Almenn uppeldisáætlun fyrir starfsemi dagvistarheimila ætti að skapa góðan grundvölI til viðmiðunar.“
Að lokinni þessari upptalningu ástæðna eru sett fram svonefnd uppeldisáætlun og markmið dagvistarheimila á Íslandi. Það má því ljóst vera hver tilgangurinn er með því að færa lögin til samræmis við þau markmið sem koma fram í þessu mjög svo merka riti sem ætlað er að vera leiðarvísir fyrir starfsfólk dagvistarheimilanna þannig að unnt reynist að nýta þær starfsaðferðir sem vænlegastar eru til árangurs í samræmi við þarfir og aðstæður sem fyrir hendi eru hverju sinni. Með því að svo verði telja flm. þessa frv. að uppeldisáætlunin hafi fengið það vægi sem nauðsynlegt er til að tryggt sé að gengið verði út frá meginmarkmiðum hennar við gerð áætlana og við uppbyggingu starfsins almennt á dagvistarheimilunum. Enda má með sanni segja að markmiðið með starfsemi dagvistarheimilanna, eins og það er skilgreint í núgildandi lögum, sé vægast sagt fremur rýrt. Þar er t.d. aðeins kveðið á um að persónulegur og félagslegur þroski barnanna skuli efldur. Ég spyr: Hvað með hina þroskaþættina?
Það er augljóst að uppeldismarkmiðin eru, eins og þau eru sett fram í lögunum, ákaflega almenns eðlis og erfitt að gera sér grein fyrir því hvað um er að ræða í raun og veru o hvað það er sem kalla má kröfur til starfseminnar. Í uppeldisáætluninni á bls. 15 segir, með leyfi herra forseta:
„Í reyndinni eru uppeldisstörfin falin forsjá fóstrunnar og treyst á menntun hennar. Líta má á það sem traustsyfirlýsingu á fósturmenntunina og er það vel.“
Síðar segir, með leyfi herra forseta: „Frá upphafi hefur fóstrumenntunin hér á landi verið byggð á þeirri forsendu að efling alhliða þroska barnsins væri grundvöllurinn að uppeldisstarfi fóstrunnar.“
Þannig má ljós vera þörfin fyrir lagfæringu þessa lagatexta. Í umræðum um þessi lög, hvort heldur er á vegum Fóstrufélags Íslands eða Fósturskóla Íslands, hefur það ætíð verið svo að allir aðilar hafi verið afar meðvitaðir um þörfina fyrir breytingar. Hvað varðar kennslu í hagnýtri uppeldisfræði í Fósturskóla Íslands, þá hefur þessi 1. gr. laganna verið tekin sérstaklega til og nemendum gerð grein fyrir því að þarna þyrfti auðvitað að taka til greina alla þroskaþætti barnanna og efla hvern og einn þeirra sérstaklega, en ekki aðeins persónulegan og félagslegan.
Þetta var um 1. gr. frv. og gilda öll hin sömu rök og ég hef að framan talið einnig um 4. gr., en þar er lagt til að samvinna milli skóla og dagvistarheimila verði bundin í lögum. Þessi samvinna tíðkast að sjálfsögðu í flestum tilfellum. En börnin, sem eru á leiðinni að yfirgefa dagvistarheimili og byrja skólagöngu, eru þar búin undir þessa stóru breytingu sem verða mun á lífi þeirra svo vel sem nokkur kostur er. En betur má ef duga skal og sjálfsagt og eðlilegt að styrkja þetta samstarf svo vel sem nokkur kostur er ef það mætti verða til þess að samfella skapaðist í uppeldi og menntun barna.
Í 2. gr. frv. er gerð till. um að felld verði niður 5. málsgr. 14. gr. laganna. Sú grein laganna gerir ráð fyrir að ef framkvæmdaraðili byggingar dagvistarheimilis getur útvegað lánsfé til byggingar dagvistarheimila með sölu skuldabréfa eða á annan hátt þá sé heimilt að ríkissjóður ábyrgist slík lán allt að því er nemur greiðsluhluta ríkissjóðs. Lagt er til að þessi málsgr. falli út vegna þess að í öðrum lögum, nr. 60/1984, sem reyndar voru samþykkt skv. frv. sem hv. þm. Jóhanna Sigurðardóttir flutti, er kveðið á um að aðilar, sem standa vilja að byggingu dagvistarheimila, geti fengið til þess lán úr Byggingarsjóði ríkisins. Flm. telja því þetta ákvæði laganna óþarft og leggja til að það verði fellt út.
Í 3. gr. frv. er gert ráð fyrir að í 16. gr. laga um byggingu og rekstur dagvistarheimila komi ákvæði um að heimilt verði að mennta og þjálfa fósturliða. Þar er skýrt tekið fram, eins og frumvarpstextinn er orðaður, að ef ekki reynist unnt að fá fósturmenntað fólk til starfa sé heimilt að ráða fósturliða í þær stöður til skemmri tíma, en að alltaf sé það á hreinu að þær stöður eru ætlaðar fóstrum og að ekkert annað jafnist til fulls á við það að börnin, sem dveljast á dagvistarheimili, geti þannig fengið að njóta umönnunar sérmenntaðs fólks.
Í þessari grein er einnig kveðið á um að heimilt sé að þjálfa fósturliða til aðstoðar fóstrum við uppeldisstörf á dagvistarheimilum. Þetta er algert nýmæli sem hefur oftlega verið til umræðu meðal þeirra aðila sem sjá um byggingu og rekstur dagvistarheimila ásamt og meðal fóstra. Með þessum aðilum hafa eðlilega verið skiptar skoðanir sem hafa þróast með árunum.
Það sem skiptir þó höfuðmáli í þessu sambandi er að það heyrast æ háværari og fleiri raddir um að koma þurfi af stað mjög víðtækri og öflugri uppbyggingu dagvistarheimila. Þörfin verður meiri eftir því sem árin líða og eftir því sem ríkisvaldið gerir æ ríkari kröfur til beggja foreldra um að taka þátt í uppbyggingu efnahagslífsins og til framfærslu heimilanna. Þess vegna verður ekki hjá því komist að gera um leið þær kröfur til þess sama ríkisvalds að foreldrar geti verið öruggir um börnin sín meðan á þessari útivinnu stendur og að þeir geti verið öruggir í þeirri vissu að börnin hljóti gott og þroskandi uppeldi undir handleiðslu fólks sem til þess er menntað að sjá um þennan mikilvæga þátt. Auk þess sem slík vera barna á dagvistarheimilinu getur einungis orðið þeim til góða og orðið til þess að jafna aðstöðu allra barna til undirbúnings áframhaldandi menntunar.
Þeir sem gera um það kröfur að foreldrarnir vinni báðir utan heimilis þannig að unnt reynist að framfleyta því verða jafnframt að gera sér grein fyrir hvað á að verða um börn þessa fólks. Það verður ekki liðið að krafist sé aukins vinnuframlags af foreldrunum vegna þess hvernig árar í þjóðfélaginu án þess að til komi krafan um að til verði næg og góð dagvistarheimili fyrir ölI börn. Það verður að hraða uppbyggingu dagvistarheimila fyrir alla aldurshópa en nú síðustu árin hefur dregið verulega úr uppbyggingu dagvistarheimila og þó sérstaklega fyrir yngstu börnin.
En um leið og gerðar eru kröfur um stóraukna uppbyggingu dagvistarheimila er nauðsynlegt að gera sér grein fyrir því hvernig staðan á dagvistarheimilunum er nú. Þar ríkir vægast sagt ófremdarástand. Það ófremdarástand hefur skapast vegna þess að það er nær útilokað að fá fólk til starfa með þá menntun sem krafist er af þeim sem þar eiga að starfa. Þar spilar margt inn í. Launin eru lág og starfsskilyrðin léleg, langur vinnudagur og enginn möguleiki til að verða sér úti um yfirvinnutíma eða aukagreiðslur vegna álags.
Þó má segja að taki út yfir allt sem boðlegt er hvað varðar stöðugleika þess fólks í starfi sem sinnir aðstoðarstörfum á dagvistarheimilum. Þar stoppar nánast enginn við af sömu ástæðu og á við um hið fósturmenntaða starfsfólk, lág laun og léleg starfsaðstaða.
Ástandi því, sem skapast hefur nú síðustu ár, hefur réttilega verið líkt við járnbrautarstöð. Þar kemur og fer fólk alveg gegndarlaust og ekkert lát virðist þar á.
Í fyrravor voru svo mikil brögð að þessari manneklu að neyðarástand skapaðist á dagvistarheimilum Reykjavíkurborgar og svo var og er reyndin víða úti um land enn þá. Þá var það kallað neyðarástand. Það var og er neyðarástand þegar börnin, sem dvelja á dagvistarheimilum, þurfa að undirgangast það erfiða álag sem því fylgir að þurfa stöðugt að skipta um uppalendur. Þannig virðist svo sem það mikilvæga uppeldisstarf, sem skiptir reyndar oft og tíðum sköpum um það hvernig framtíðarþjóðfélag við byggjum, sé ekki á neinn hátt virt að verðleikum og veldur því að fólk helst ekki við.
Það er þetta neyðarástand sem skapaðist í fyrravor sem ég vil gjarnan taka til umræðu í sambandi við þá grein frv. er lýtur að menntun og þjálfun fósturliða. Ef reyndin er að verulegt átak eigi að gera til að rétta úr kútnum hvað varðar vöntun á dagvistarrýmum, hverjir eiga þá að vinna þar? Nú þegar er vöntunin á menntuðu fólki til starfa á þeim heimilum, sem fyrir hendi eru, svo mikil að þótt allar fóstrur, sem nú þegar eru útskrifaðar, og allar þær fóstrur, sem útskrifuðust til aldamóta, kæmu fram á sjónarsviðið og færu að vinna á dagvistarheimilum dygði það ekki til. Þess vegna tel ég að fram þurfi að koma starfsstétt sem orðið gæti til að brúa það bil eða öllu heldur þá gjá sem skapast hefur við það hve skortur hefur orðið mikill á menntuðu fólki til starfa á dagvistarheimilum. Þessi skortur hefur fyrst og fremst komið niður á þeim börnum sem þar dvelja. Það er ekki hægt að líða öllu lengur, það er hreinlega ófyrirgefanlegt.
Greinilegt er að það verður á einhvern máta að koma til móts við þann alvarlega fóstruskort sem nú ríkir. Hann er ekkert nýr af nálinni en hefur bara orðið verri með árunum með fjölgun dagvistarheimila og þó aðallega með lélegri kjörum. Þess vegna hefur hann orðið greinilegri og áþreifanlegri. Nú liggur fyrir að skortur vel menntaðs starfsfólks og starfsfólks, sem vinnur á dagvistarheimilunum vegna áhuga á starfsgreininni, er farinn að hamla verulega starfsemi dagvistarheimilanna.
Ein virtasta fóstra landsins, Gyða Sigvaldadóttir, orðaði það svo að undirmálsfólk væri orðið áberandi í röðum þess fólks sem væru umsækjendur um stöður aðstoðarfólks á dagvistarheimilum. Þetta eru alvarleg ummæli. Þess vegna hlýtur markmið yfirvalda fyrst og fremst að vera að koma í veg fyrir að svo verði komið fyrir þessari starfsemi að þau börn, sem þar dvelja, líði fyrir það að vera þar vegna skorts á sérþjálfuðu starfsfólki.
Ég tel óhjákvæmilegt að taka hér til samlíkingar sjúkraliðanám, þegar rætt er um þá frvgr. er lýtur að menntun og þjálfun fósturliðanna, sem hér er til umræðu, vegna þess að ég tel að að mörgu leyti sé um að ræða sambærilegan vanda sem upphaflega hreyfir við umræðunni. Þegar til sjúkraliðanáms var stofnað á sínum tíma var hér svo mikill og alvarlegur hjúkrunarkvennaskortur að til verulegra vandræða horfði. Að svo stöddu þótti hins vegar ekki ástæða til að stofna til sérstaks skóla til að mennta fólk til að leysa brýnasta vanda sem sjúkrastofnanirnar voru komnar út í. Það kom til síðar.
Það þótti fyrst í stað ástæða til að trúa sjúkrastofnunum fyrir því að mennta og þjálfa sjúkraliða til starfa. Það gerðist þá undir handleiðslu hjúkrunarfræðinga þannig að reynt var að láta starfsþjálfunina verða sem víðtækasta og ná til þeirra þátta þar sem þörfin var mest hverju sinni miðað við þjóðfélagsþróunina en þó ætíð eftir samræmdri námsskrá. Það var skv. lögum sem sett voru á Alþingi 1965 og sögðu að heimilt væri að þjálfa konur og karla til aðstoðar við hjúkrun og skyldi starfheiti þeirra, námstilhögun, starfsréttindi og skyldur ákveðin með reglugerð.
Þessu sjúkraliðanámi var haft til viðmiðunar það nám sem tíðkast sambærilegt á Norðurlöndum og var kennt og útskrifað skv. því allt fram til 1975 eða þar til sjúkraliðaskólinn hóf göngu sína. Inntökuskilyrði og námsskrá hafa að sjálfsögðu breyst á þessum tíma. Sem dæmi má nefna að bóklegum kennslustundum hefur fjölgað úr 208 klst. í 433.
Markmiðið með stofnun þessa skóla fyrir 10 árum var að mennta starfsstétt sem hefði hæfni og leikni til ákveðinna starfa í þjóðfélaginu og sem þjóðfélagið hefði þörf fyrir. Nú, 10 árum síðar, er markmiðið enn þá það sama og virðist hvergi sjá högg á vatni þrátt fyrir það að yfir 1000 sjúkraliðar hafi útskrifast til dagsins í dag.
Sjúkraliðastéttin hefur þannig fyrir löngu sannað tilverurétt sinn og sýnir það sig e.t.v. einna best í því að í fyrra voru samþykkt héðan frá hv. Alþingi hin eiginlegu fyrstu lög um sjúkraliða, þ.e. sérlög. Fram að því, eða í nærfellt 20 ár, voru þeir menntaðir og þjálfaðir skv. nokkrum orðum í 8. gr. hjúkrunarlaga.
Markmiðið með rekstri dagvistarheimilanna verður með samþykkt þessarar greinar frv. að mínu mati auðveldara í framkvæmd. Með tilkomu fósturliða skapast aukið svigrúm til að ná fyrir fram settu markmiði sem er áfram það sama: að veita börnum markvisst uppeldi í samræmi við þroska þeirra og þarfir.
Eins og ástandið er í dag hvað varðar mannahald á dagvistarheimilum eru hverfandi möguleikar á því að ná þessum markmiðum. Stöðug skipti á starfsfólki gera það að verkum að tíminn fer stöðugt til þess að kenna nýju starfsfólki frumatriði í umönnun barna og þess vegna alls ekki hægt um vik fyrir til þess menntað starfsfólk að snúa sér að því að byggja ofan á þann grunn sem fyrir er.
Starfsemin ætti með þessu móti öll að geta orðið fyllri og betri. Það yrðu fóstrur sem sjá mundu um að leiðbeina og kenna fósturliðum, kenna þeim og sjá til þess að þeir ynnu störf sín á þann hátt að það fullnægði þeim kröfum sem til þeirra yrðu gerðar. Með því móti yrði þessi nýja starfsstétt að samherjum fóstra, samherjum sem gegndu því hlutverki ásamt fóstrum að sjá til þess að færa þessa þjóðfélagsþegna fram á veg og þannig að skapa börnunum, sem dveljast á dagvistarheimilunum, sem bestan og fyllstan aðbúnað.
Að lokum, herra forseti, tel ég rétt að benda á það stóra atriði, sem aldrei má gleymast, hverjir það eru sem um ræðir, hverjir það eru sem eru skjólstæðingar þeirra sem standa að rekstri dagvistarheimila. Það eru börn og í sumum tilfellum ómálga börn. Mjög mikils virði er því að vel til takist. Lengi býr að fyrstu gerð.
Herra forseti. Að lokinni þessari umræðu legg ég til að þessu frv. verði vísað til 2. umr. og menntmn.