14.04.1986
Efri deild: 74. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3719 í B-deild Alþingistíðinda. (3391)

259. mál, Útflutningsráð Íslands

Frsm. (Jón Kristjánsson):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir áliti fjh.- og viðskn. um frv. til l. um Útflutningsráð Íslands.

Nefndin hefur rætt þetta frv. ítarlega á fimm fundum og kallað til viðtals fulltrúa frá viðskrn., Verslunarráði Íslands, Útflutningsmiðstöð iðnaðarins og iðnrn. Að lokinni þessari athugun á frv. varð nefndin einhuga um að mæla með samþykkt þess í meginatriðum þó að það sé ágreiningur um eitt ákvæði þess eins og ég kem að nánar síðar.

Það urðu um það miklar umræður innan nefndarinnar hvernig bæri að skipa stjórn útflutningsráðs og einkum þá hverjir ættu að skipa fulltrúa ríkisins í stjórnina. Fulltrúar ríkisstjórnarflokkanna í nefndinni leggja áherslu á að ekki verði fjölgað í stjórninni frá því sem lagt er til í frv., enda er stjórnin allfjölmenn og reiknað með að það verði átta stjórnarmenn. Eigi að síður álíta fulltrúar stjórnarflokkanna í nefndinni að það verði að vera tryggt að sjónarmið þeirra ráðuneyta sem sinna útflutningsmálum, en það eru fleiri ráðuneyti en þau tvö sem skipa fulltrúa í stjórnina, eigi greiðan aðgang að stjórnarfundum. Í samræmi við þetta leggja fulltrúar ríkisstjórnarflokkanna í nefndinni til brtt. um að iðnrh. og sjútvrh. tilnefni varamenn í stjórn útflutningsráðs fyrir þá aðalmenn sem viðskrh. og utanrrh. tilnefna í stjórnina. Aðrir nefndarmenn, að undanskildum Eiði Guðnasyni, hafa fyrirvara um afstöðuna til þessarar tillögu. Ragnar Arnalds leggur til að í stað þess að nokkur stórfyrirtæki tilnefni menn í stjórn, eins og frv. gerir ráð fyrir, verði stjórnarmennirnir, aðrir en fulltrúar ríkisins, kjörnir af útflutningsráði.

Nefndin telur í annan stað nauðsynlegt að endurskoða ákvæði 6. liðar frv. og er það með tilliti til þess að lagt hefur verið fram á Alþingi stjfrv. um skiptaverðmæti og greiðslumiðlun innan sjávarútvegs. Þar er gert ráð fyrir afnámi laga um útflutningsgjald af sjávarafurðum, en það var reiknað með því í frv. að prósenta af útflutningsgjaldi yrði tekjustofn til útflutningsráðs. Nefndin hefur orðið sammála um að þessi endurskoðun verði að fara fram milli 2. og 3. umr. um frv. í deildinni, en frv. til laga um greiðslumiðlun og skiptaverðmæti er til meðferðar hér í deildinni jafnframt þessu frv. þannig að nefndin telur eðlilegt að þau fylgist að í vinnslu og verði gengið frá þessum málum áður en þau eru afgreidd frá deildinni.

Að lokum vill nefndin minna á að skv. 3. gr. frv. skal útflutningsráð opið öllum aðilum sem flytja út vörur og þjónustu eða afla gjaldeyris á annan hátt, svo og samtökum atvinnugreinanna. Að mati nefndarinnar ber ekki að skýra þetta ákvæði þröngt, enda væri slík lögskýring vart í samræmi við hlutverk útflutningsráðs skv. 1. gr. frv. Í þessu sambandi telur nefndin eðlilegt að t.d. Bandalagi íslenskra listamanna verði boðið að gerast stofnaðili Útflutningsráðs því að nefndin telur að framleiðsla, ef svo óskáldlega má að orði komast, íslenskra listamanna geti verið gjaldgeng á erlendum markaði.

Ég hef gert grein fyrir þeirri brtt. sem flutt er af meiri hl. nefndarinnar, en brtt. er þannig að 3. málsl. 1. mgr. 4. gr. orðist svo:

„Sömu aðilar skulu einnig tilnefna varamenn, þó þannig að iðnrh. tilnefnir varamann fyrir þann fulltrúa sem viðskrh. tilnefnir og sjútvrh. fyrir þann fulltrúa sem utanrrh. tilnefnir.“

Í öðru lagi er flutt brtt. um gildistöku frv. Til þess að tækifæri gefist til að undirbúa framkvæmd málsins betur en orðið er og stofnun ráðsins þykir rétt að lögin taki gildi 1. okt. í haust.

Valdimar Indriðason var fjarverandi lokaafgreiðslu þessa máls, en aðrir nefndarmenn standa að þessu áliti og leggja til að frv. verði samþykkt með þeim undantekningum og fyrirvörum sem ég hef þegar gert grein fyrir.