14.04.1986
Efri deild: 74. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3728 í B-deild Alþingistíðinda. (3405)
406. mál, lágmarkslaun
Flm. (Sigríður Dúna Kristmundsdóttir):
Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir frv. til laga um lágmarkslaun sem er að finna á þskj. 750. 1. gr. frv. hljóðar upp á það að óheimilt sé að greiða lægri grunnlaun fyrir 40 dagvinnustundir á viku en sem nemur framfærslukostnaði einstaklings skv. mánaðarlegum útreikningi Hagstofu Íslands.
Framfærslukostnaður einstaklings er enn ekki reiknaður sérstaklega af Hagstofu Íslands en Hagstofan vinnur nú að nýrri neyslukönnun þar sem gert er ráð fyrir að hann verði reiknaður sérstaklega. Mun útreikningur Hagstofunnar á framfærslukostnaði einstaklings væntanlega liggja fyrir í lok þessa árs. Fram til þess tíma er gert ráð fyrir því í frv. að lágmarkslaun miðist við 30 000 kr. á mánuði en sú tala er þannig fundin að miðað er við framfærslukostnað vísitölufjölskyldunnar sem nú er rúmlega 80 000 kr. á mánuði. Vísitölufjölskylduna skipa 3,66 manns og út frá því er áætlað að framfærslukostnaður einstaklings sé nálægt 30 000 kr. á mánuði. Þar til sérstakur útreikningur á framfærslukostnaði einstaklings liggur fyrir er í frv. gert ráð fyrir að miðað verði við 30 000 kr. sem leyfileg lágmarkslaun fyrir 40 dagvinnustundir á viku.
Eins og fram kemur í grg. með frv. þá hækkuðu lægstu laun hér á landi úr 16 930 kr. á mánuði í 19 236 kr. á mánuði í lok samningstímans skv. nýgerðum kjarasamningum aðila vinnumarkaðarins. Skv. útreikningi Hagstofu Íslands á meðaltalsframfærslukostnaði má áætla að framfærslukostnaður hvers einstaklings sé nú nálægt 30 þús. kr. á mánuði. Slíkt ósamræmi milli launa og framfærslukostnaðar hlýtur að hafa alvarlegar afleiðingar í för með sér fyrir þá sem í hlut eiga, enda er nú komið á daginn að umtalsverður fjöldi fólks eða nálægt fjórða hver fjölskylda hér á landi býr við afkomu sem telst undir fátæktarmörkum. Slíkt ástand er ekki með nokkru móti verjandi í íslensku velferðarþjóðfélagi og því er þetta frv. flutt.
Í frv. er gengið út frá því að það sé siðferðilegur réttur hvers vinnandi manns að geta framfleytt sér af afrakstri fullrar dagvinnu. Markmið þess er að koma í veg fyrir að fólk beri minna úr býtum fyrir fulla vinnu en sem nægir til að sjá sér farborða. Frv. tekur aðeins til þeirra sem hafa laun undir 30 þús. kr. á mánuði, þar með talið til mikils hluta útivinnandi kvenna, en það hreyfir ekki við launum sem hærri eru en 30 þús. kr. á mánuði.
Frv. er í raun neyðarráðstöfun þar sem það á að vera hlutverk aðila vinnumarkaðarins en ekki Alþingis að sjá til þess að full dagvinnulaun nægi einstaklingi til framfærslu. Þegar aðilar vinnumarkaðarins sinna ekki þessu hlutverki sínu og neyðarástand skapast á mörgum heimilum landsins getur Alþingi hins vegar ekki setið hjá aðgerðarlaust. Því er hér lagt til að Alþingi tryggi þann lágmarksrétt hvers vinnandi manns að geta framfleytt sjálfum sér með fullri dagvinnu.
Eins og fram kemur í þessari grg. er þetta frv. flutt í framhaldi af nýgerðum kjarasamningum aðila vinnumarkaðarins, kjarasamningum sem við Kvennalistakonur gagnrýndum harðlega hér á Alþingi, m.a. fyrir að taka ekki á lægstu laununum, og það er flutt í framhaldi af þeim upplýsingum sem síðan hafa komið fram um fátækt á Íslandi. Þetta hvort tveggja varð til þess að við ákváðum að leggja fram þetta frv. nú en allt frá því að ríkisstj. afnám vístölutryggingu launa með bráðabirgðalögum í maí 1983 höfum við velt fyrir okkur hvort slíkt frv. ætti rétt á sér. Fram til þessa höfum við fallið frá því að leggja slíkt frv. fram á þeim forsendum í fyrsta lagi að við höfum ekki viljað festa með lögum einhvern botn á launagreiðslur í landinu sem lægst launaða fólkið ætti á hættu að sitja eftir á á meðan aðrir fengju launahækkanir. Í öðru lagi vegna þess að við teljum það vera hlutverk aðila vinnumarkaðarins að semja um laun fyrir unna vinnu en ekki Alþingis og í þriðja lagi að ákvarðanir um laun hinna lægst launuðu, þ.m.t. flestra útivinnandi kvenna, væru betur komnar í þeirra eigin höndum en í höndum Alþingis að óbreyttu.
Nú er hins vegar ljóst að verkalýðshreyfingin er ekki fær um eða vill ekki gæta hagsmuna þeirra sem lægstu launin hafa. Tregðulögmál launastigans og prósentuhækkananna kemur í veg fyrir að hún geti eða vilji það. Nýgerðir kjarasamningar eða ,þjóðarsátt“, eins og höfundar þeirra nefna þá gjarnan, eru gleggsta dæmið um þetta. Þar er samið um rúmlega 19 þús. kr. lágmarkslaun á meðan framfærslukostnaður einstaklings er í kringum 30 þús. kr. og í hönd fara hagsældartímar í íslensku þjóðfélagi, stórbætt viðskiptakjör og metafli.
Verkalýðshreyfing sem þannig semur gætir tæplega hagsmuna þeirra sem minnst mega sín á íslenskum vinnumarkaði. Þess vegna er sú röksemd fallin brott að kjörum manna kunni að vera stefnt í hættu með framígripi af hálfu Alþingis. Þegar þar við bætist að fram koma upplýsingar um að 8-24% fjölskyldna á Íslandi búi við afkomu undir fátæktarmörkum er ljóst að Alþingi getur ekki setið aðgerðarlaust hjá heldur ber því siðferðileg skylda til að grípa í taumana og tryggja að landsmenn allir hafi fyrir brýnustu lífsnauðsynjum með launum fyrir fulla vinnu. Þess vegna er þetta frv. nú flutt.
Hvað víðtækari efnahagsleg áhrif þessa frv. varðar mun það ekki valda miklum breytingum né hafa mikla þenslu í för með sér þar sem um er að ræða kjarabætur til þeirra lægst launuðu í þjóðfélaginu. Gera má ráð fyrir að þeim verði frekar eytt í nauðsynjar, eins og t.d. búvörur, en í þensluskapandi lúxusvörur. Skv. lauslegum útreikningum Þjóðhagsstofnunar má áætla að frv. nái til um 40 000 launþega og að meðaltalskauphækkun þessa hóps verði um 20%. Þetta mun þýða um 200 millj. kr. á mánuði í atvinnutekjum eða 21/2 milljarð á ári. Heildaratvinnutekjur í landinu eru nú um 65 milljarðar á ári þannig að frv. hefur í för með sér 3-4% aukningu á launakostnaði atvinnurekstrarins.
Þeir efnahagssérfræðingar sem ég hef borið málið undir telja allir að íslenskur atvinnurekstur sé það vel í stakk búinn nú að þessi kostnaðaraukning valdi honum hvorki vandræðum né erfiðleikum. Hitt er svo aftur líklegra að atvinnureksturinn velti þessari kostnaðaraukningu út í verðlagið og þá hefur frv. í för með sér 3- 4% hækkun verðbólgunnar. 3-4% verðbólguhækkun er hins vegar vel viðráðanleg innan þess ramma sem settur var um efnahagslífið í síðustu kjarasamningum að mati Þjóðhagsstofnunar og ætti ekki að stefna kaupmætti launa almennt í hættu.
Ég vona að hv. þm. sé ljóst að það kostar ekki mikið í peningum, í efnahagslegum gæðum, að hækka lægstu launin í landinu. Kostnaðurinn við slíkt er ekki þröskuldurinn. Þröskuldurinn er að ef þeir lægst launuðu eru hækkaðir um nokkrar krónur þá fylgir öll strollan á eftir og allir sem aðeins meira bera úr býtum vilja líka fá hækkun og ekki bara jafnmargar krónur og þeir lægst launuðu heldur hlutfallslega og því fleiri krónur.
Það er löngu komið á daginn að verkalýðshreyfingin ræður ekki við þennan vanda og því er hér lagt til að Alþingi geri það með því að lögfesta lágmarkslaun sem nægja til einstaklingsframfærslu án þess að hrófla á nokkurn hátt við launum sem hærri eru en 30 þús. kr. á mánuði. Það er reyndar forsenda þessa frv. og forsenda þess að það fái staðist á núverandi grunni efnahagslífsins að það snertir ekki við launum ofan við 30 þús. kr. á mánuði.
En þetta frv. hefur fleiri forsendur. Það hefur þá forsendu einnig að það sé siðferðilega óverjandi að fólk líði skort í íslensku nútímaþjóðfélagi, að það ástand sem nýlega var greint frá á ráðstefnu íslenskra félagsmálastjóra um fátækt á Íslandi sé ekki sæmandi sjöttu ríkustu þjóð heims. Það byggir einnig á þeirri forsendu að atvinnurekstur sem ekki getur borgað laun sem nægja til einstaklingsframfærslu eigi tæplega rétt á sér. Það bendir jafnframt á að aðstæður í íslensku efnahagslífi eru óvenjugóðar um þessar mundir. Fiskverð fer hækkandi á fiskmörkuðum, olía lækkandi og metafli berst á land og því ekki hægt að afsaka lág laun með almennum efnahagsörðugleikum eins og alsiða er hér á landi. Það bendir einnig á að það getur verið dýrt fyrir atvinnureksturinn að borga lág laun og það er án nokkurs vafa rándýrt fyrir þjóðfélagið að brjóta fólk niður en það er það sem gerist í kjölfar svo lágra launa að menn geta ekki lifað af þeim. Peningahlið þessara mála er þó e.t.v. léttvæg miðað við hvílíkt siðleysi það er að bjóða mönnum lægri laun fyrir fulla vinnu en sem nægir þeim til framfærslu.
Af öllum þessum ástæðum er þetta frv. flutt og að lokinni þessari umræðu óska ég eftir að því verði vísað til 2. umr. og hv. fjh.- og viðskn.