14.04.1986
Neðri deild: 78. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3745 í B-deild Alþingistíðinda. (3418)

237. mál, eftirlit með skipum

Frsm. (Stefán Valgeirsson):

Herra forseti. Þetta frv. er í sjálfu sér bundið breytingu sem mun verða lagt til að verði gerð á 230. gr. siglingalaga.

Þetta er aðeins um að tiltekin grein í frv. um eftirlit með skipum falli niður þar sem nefnd sem fjallar um sjóslys verður ákveðin í siglingalögum.

Samgn. Nd. samþykkir að frv. verði samþykkt eins og það liggur fyrir.