14.04.1986
Neðri deild: 78. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3746 í B-deild Alþingistíðinda. (3425)
312. mál, verkfræðingar
Frsm. (Gunnar G. Schram):
Herra forseti. Ég mæli fyrir nál. á þskj. 826 um frv. til l. um breytingar á lögum nr. 73 frá 1968, um rétt manna til að kalla sig verkfræðinga, húsameistara, tæknifræðinga eða byggingafræðinga.
Iðnn. Nd. hefur fjallað um frv. og leggur til að það verði samþykkt með þeim breytingum sem hún flytur á sérstöku þskj. Undir nál. rita Páll Pétursson, formaður, Guðrún Agnarsdóttir, fundaskrifari, Gunnar G. Schram frsm. og Birgir Ísl. Gunnarsson.
Þær breytingar, sem iðnn. leggur til að gerðar verði á þessu frv., eru tvær og þær koma fram á þskj. 827. Sú fyrri er þess efnis að nefndin leggur til að tvö orð verði felld niður úr 10. gr. frv., þ.e. orðin sem þar standa innan sviga og eru úr dönsku máli, „möbel- og interiörarkitekt“. Þetta er greinilega komið inn í frv. til skýringar á íslensku starfsheitunum, en greinin í heild hljóðar svo:
„Rétt til að kalla sig húsgagna- og innanhússhönnuði (möbel- og interiörarkitekt) hafa þeir einir hér á landi sem hafa fengið til þess leyfi ráðherra.“
Það er skoðun nefndarmanna að ástæðulaust sé að vera með erlend starfsheiti í íslensku frv. og íslenskum lögum. Það sé alveg fullnægjandi að notast við móðurmálið og það sé í öðru lagi alveg fullljóst hvað við er átt með húsgagna- og innanhússhönnuðum. Því eigi þessi danska klausa ekki heima í lögum um þetta efni. Nefndin leggur til að hún falli niður.
Í öðru lagi leggur nefndin til að 11. gr. breytist. Í frv. er gert ráð fyrir því að engum megi veita leyfi til að kalla sig húsgagna- og innanhússhönnuði nema þeim sem hafi stundað nám og lokið fullnaðarprófi við listiðnaðarskóla eða aðra sérskóla sem stéttarfélag húsgagna- og innanhússhönnuða viðurkennir sem fullgildan skóla í þeirri grein. Iðnn. leggur til að á þessu verði gerð breyting. Nefndin telur að óeðlilegt sé að fela hlutaðeigandi stéttarfélagi að viðurkenna fullgilda skóla sem skilyrði fyrir því að menn megi kalla sig þessu starfsheiti. Það sé eðlilegra að öllu leyti að það sé ráðherra sem viðurkennir fullgilda skóla í þessu efni, en ekki hlutaðeigandi stéttarfélag. Þess vegna er gerð sú breyting í tillögum nefndarinnar að hlutaðeigendur skuli hafa lokið fullnaðarprófi við listiðnaðarskóla eða aðra sérskóla sem ráðherra viðurkennir sem fullgildan skóla í þeirri grein að fenginni umsögn stéttarfélags húsgagna- og innanhússhönnuða. Með þessu er tryggt að álit og umsögn hlutaðeigandi fagfélags kemst ávallt skýrt og greinilega til vitundar ráðherra og er honum þá til leiðbeiningar og aðstoðar við viðurkenningu á þeim skólum sem hér skipta máli.
Aðrar breytingar eru það ekki, herra forseti, sem iðnn. leggur til að gerðar verði á þessu frv.