14.04.1986
Neðri deild: 78. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3747 í B-deild Alþingistíðinda. (3427)

295. mál, sakadómur í ávana- og fíkniefnamálum

Frsm. (Gunnar G. Schram):

Herra forseti. Ég mæli fyrir nál. á þskj. 828 um frv. til l. um sakadóm í ávana og fíkniefnamálum. Hér er um stjfrv. að ræða, eins og fram kom í máli hæstv. forseta.

Allshn. hefur rætt frv. á nokkrum fundum, en hér er um mjög viðamikið mál og mikilvægt að ræða eins og sjá má.

Við nefndina ræddu að hennar ósk þeir embættismenn sem helst fjalla um meðferð ávana- og fíkniefnamála í dómstólakerfi landsins og einnig varðandi réttarframkvæmdina. Það voru þeir Hallvarður Einvarðsson, Ásgeir Friðjónsson, Böðvar Bragason, Jón Thors, Hjalti Zóphóníasson og Arngrímur Ísberg. Að loknum þeim viðræðum og ítarlegri könnun og umræðum um efni frv. leggur nefndin til að það verði samþykkt með þeim breytingum sem hún flytur á sérstöku þskj. Undir þetta nál. rita auk mín Guðrún Helgadóttir fundaskrifari, Friðjón Þórðarson, Pálmi Jónsson og Stefán Guðmundsson.

Brtt. nefndarinnar við þetta frv. er að finna á þskj. 829 og þær eru tvær. Efni þeirrar fyrri er einfaldlega að í stað þess að í frv. er gert ráð fyrir að utan Reykjavíkur geti lögreglustjórar, að því er varðar meðferð ávana- og fíkniefnamála, leitað til almenns sakadómara ef það þykir betur henta er þetta ákvæði gert mun víðtækara og almenns eðlis í brtt. nefndarinnar. Þar er það ekki bundið við svæðið utan Reykjavíkur, að unnt sé fyrir lögreglustjóra að leita til almenns sakadómara ef það þykir betur henta, heldur gert að almennri reglu að lögreglustjóra, hverjum sem það er, í Reykjavík og annars staðar, er heimilt að leita til almenns sakadómara ef það þykir betur henta þegar þörf er slíkra aðgerða vegna rannsóknar máls. Þetta er kannske ekki stórvægileg breyting, en nefndinni þótti æskilegt að hafa ekki tvenns konar meðferð í réttarfari þessara mála.

Seinni breytingin er einfaldlega að við er bætt nýrri grein sem fjallar um málsmeðferð alla fyrir sakadómi að því er varðar ávana- og fíkniefnamál. Þar er einfaldlega sagt að sú málsmeðferð skuli fara að hætti opinberra mála.