14.04.1986
Efri deild: 75. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3766 í B-deild Alþingistíðinda. (3455)
260. mál, samningsgerð, umboð og ógildir löggerningar
Forseti (Salome Þorkelsdóttir):
Hæstv. samgrh. er kominn hér í hv. deild til að mæla fyrir málum sem eru á dagskrá. Ég hafði reyndar gert ráð fyrir að fresta nú fundum til hálfníu en ef hv. þdm. gera ekki athugasemdir við það þá mundi ég vilja nota tækifærið og gefa hæstv. ráðh. tækifæri til að mæla fyrir sínum málum nú. Hæstv. ráðh. hefur lýst því yfir að hann muni verða mjög stuttorður.