05.11.1985
Sameinað þing: 11. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 409 í B-deild Alþingistíðinda. (347)
68. mál, lán Byggðasjóðs til Flugfisks - Flateyri hf.
Iðnrh. (Albert Guðmundsson):
Herra forseti. Enn koma þingsköp í veg fyrir að hægt sé að ræða mál þannig að öll rök með eða á móti komi fram. Það sem ég vil segja er að ég harma það að þingsköp skuli koma í veg fyrir að sú hlið, sem snýr að því unga fólki sem tapað hefur öllum sínum eignum á tilraunum til að auka fjölbreytni í íslenskum iðnaði, kemst ekki á framfæri. Eftir þessa tilraun situr snauð fjölskylda, foreldrar og börn, sem nú þola atvinnuleysi og flótta til nýrra heimkynna.