14.04.1986
Efri deild: 75. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3804 í B-deild Alþingistíðinda. (3480)
54. mál, sveitarstjórnarlög
Félmrh. (Alexander Stefánsson):
Virðulegi forseti. Það er sannarlega fróðlegt að hlusta á svona ítarlegar umræður sem hv. 8. þm. Reykv. hafði hér í frammi, bæði í fyrri umferð og núna í síðari. En mér finnst að hann hefði átt að átta sig á því að mikið af því sem hann var að lesa upp hefur verið til umræðu og meðferðar í umfjöllun um frv. í hv. Nd. Sumt af því sem kom fram í upplestri hans er komið inn í frv. eins og það er núna til meðferðar hér.
Ég ætla ekki að eyða tímanum í þetta. Ég get aðeins í sambandi við hans ræðu sagt að það sem hann sagði um reynsluna í Noregi og Svíþjóð eru vissulega atriði sem við ættum að geta áttað okkur á. Þegar Svíar og Norðmenn, sérstaklega Norðmenn, voru að gera þessa miklu skipulagsbreytingu hjá sér á sveitarstjórnarlöggjöfinni, þá var það mjög umdeilt mál. Og reynslan hefur sannað það að þær breytingar sem þar voru gerðar, ekki síst í sambandi við þriðja stjórnsýslustigið, hafa ekki skilað sér vel, hvorki í Norður-Svíþjóð né Norður-Noregi. Því miður hafa þessi stóru fylki eða ömt sem þar voru sett, sameining smærri sveitarfélaga, ekki skilað því sjálfstæði sem að var stefnt. Þau eru a.m.k. sum komin á framfærslu ríkisins og þurfa að sækja alla sína þjónustu og það fjármagn sem þau þurfa til þess að halda fólkinu, til ríkisins svo að það gengur misjafnlega eins og gefur að skilja. Þetta kemur einmitt heim við það sem þeir sögðu við okkur: Þið skuluð varast að apa eftir okkur það form sem við höfum tekið upp því að það hentar ekki ykkar fámenna þjóðfélagi. Og það er þess vegna sem ég hef sannfærst betur og betur um að það á a.m.k. að gera tilraun til þess að efla sveitarfélögin á annan hátt heldur en þann að búa til þriðja stjórnsýslustigið. Þess vegna held ég mig enn þá við þá skoðun að stigin eigi að vera aðeins tvö, ríki og sveitarfélög, eins og ég hef oft látið fram koma.
Ég vil aðeins gera tilraun til þess að verða við tilmælum hv. 5. landsk. þm. varðandi þær fsp. sem hann kom hér með til mín. Að sjálfsögðu hafði ég sömu afstöðu og aðrir í Nd. Við felldum þessa brtt. sem þar kom fram frá hv. þm. Jóhönnu Sigurðardóttur. En ég hef gefið þær yfirlýsingar að ég mun láta hefja viðræður við sveitarstjórnir og íbúa byggðarlaga um aðgerðir til aukinnar samvinnu sveitarfélaga eða samruna þeirra til þess að mynda þar sterkari heildir sem á að efla sveitarfélögin og þar með byggðirnar og breyta meðferð mála þannig að hægt verði að fá fjármagn til að gera þetta mögulegt.
Um skipun nefndar á þessu augnabliki vil ég ekki úttala mig af þeirri einföldu ástæðu að í gildi er núna sérstakur samningur milli ríkis og sveitarfélaga, samráðssamningur, sem gerir ráð fyrir að fjalla einmitt um þessi mál sem við erum að tala um hér. Í þessu lagafrv. sem hér er til meðferðar er sérstakur kafli, XII. kafli frv., um samskipti ríkis og sveitarfélaga og ég get sagt frá því hér að eins og ég raunar kom inn á fyrr í kvöld þá er allnokkuð síðan að ég lagði fullmótað frv. um tekjustofna sveitarfélaga inn á ríkisstjórnarfund og það er til meðferðar hjá ríkisstjórninni. Þetta er frv. sem sérstök nefnd samdi á þessum vetri frá því á s.l. ári og þar eru mjög margar nýjungar settar fram. En í stuttu máli get ég sagt það að frv., eins og það liggur fyrir til meðferðar, felur í sér mjög aukið frjálsræði sveitarfélaga til að afla tekna og opnar möguleika á því að tekjustofnar sveitarfélaga séu í samræmi við þau verkefni sem þeim eru fengin án þess að þurfi að breyta öðrum lögum þar um.
Í framhaldi af þessu hefur verið ákveðið að á næsta samráðsfundi ríkis og sveitarfélaga, sem verður fljótlega eftir næstu mánaðamót, þ.e. fyrri formlegi fundur á þessu ári, þá verða þessi mál tekin sérstaklega fyrir og ákveðið hvert næsta skrefið verður í því að ákveða hvaða verkefni verða tekin til meðferðar í sambandi við undirbúning fjárlaga fyrir næsta ár. Þetta er mjög mikilvægt og ég vænti þess að í framhaldi af því verði tekin ákvörðun um það hvort skipa þarf sérstakar nefndir til þess að fjalla um þetta, frekar en á vegum Sambands sveitarfélaga og ríkisstjórnarinnar, eins og það stendur í dag. Ég loka ekki neinum möguleikum eða leiðum að til þess þurfi að taka. Það er alveg sjálfsagður hlutur. En ég mun beita mér fyrir framhaldsumræðu í þjóðfélaginu um þessi mál og ég held að það væri einkennilegt ef þess þyrfti ekki með.
Talsvert hefur borið á því í gagnrýni hér að þetta frv. væri lítils virði o.s.frv., en ég vil aðeins benda á það að í frv. eru skilmerkileg ákvæði um verkefni sveitarfélaga, miklu nákvæmari en hafa verið áður um sveitarstjórnirnar sjálfar, um kosningakaflann, sem ég þarf ekki að fara út í þrátt fyrir ummæli hv. 8. þm. Reykv., um skyldur og réttindi sveitarstjórnarmanna, um sveitarstjórnarfundi, nefndir og ráð. Fjármálakaflinn er sérstaklega vandaður og margt sem sveitarfélögin hafa beðið eftir árum saman í þessu frv. sem hefur mjög mikið gildi.
Ég ætla ekki að eyða meiri tíma í þetta, virðulegi forseti. Þessi umræða er orðin löng og því miður finnst mér hún sumpart hafa borið keim af málþófi. En alla vega liggur alveg ljóst fyrir að það er nauðsynlegt að þetta frv. verði afgreitt núna næstu daga og ég vonast til að sú breyting sem ég hef lagt til verði ekki til þess að tefja lögfestingu frv. þó að það þurfi að fara aftur til Nd.
Umr. (atkvgr.) frestað.