05.11.1985
Sameinað þing: 11. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 409 í B-deild Alþingistíðinda. (349)
68. mál, lán Byggðasjóðs til Flugfisks - Flateyri hf.
Fyrirspyrjandi (Guðrún Helgadóttir):
Herra forseti. Ég vil leiðrétta nokkuð af því sem kom fram í máli hv. þm. Stefáns Guðmundssonar. Hér er ekki aðeins um að ræða 2 milljónir, á þessum eignum hvíla 5,5 milljónir í veðskuldum - það skiptir ekki miklu máli hvort þar er um að ræða Iðnlánasjóð eða Byggðasjóð eða hvað annað - auk annarra skulda sem á þessu búi hvíla. Það er líka vafasamt að eigendur þessa fyrirtækis breyta því í hlutafélag rétt áður en fyrirtækið verður gjaldþrota. Ég vænti þess að hv. formaður stjórnar Framkvæmdastofnunar viti að þar með er eigandinn sjálfur ekki ábyrgur fyrir veði vegna þess að það er ekkert veð þinglýst á hlutafélagið. Hins vegar mun hann hafa gefið veðleyfi fyrir 1 millj. kr. veði í margumræddum lýsistank. En þetta er ekki aðalmálið.
Það er ógeðfellt að vera að gera þetta að persónulegu máli. Þetta er harmsaga þeirra sem út í þennan rekstur fóru. Ég hef alla samúð með því og ég hef áður sagt það hér að það hefði þá verið nær að styrkja þetta fyrirtæki þannig að unnt væri að reka það í stað þess að gera þetta jafnkálfalega og gert hefur verið. En svo get ég líka spurt: Eiga aðrir borgarar þessa lands og aðrar fjölskyldur, sem hæstv. iðnrh. finnur svo til með og eru að missa hús sín, að breyta sér í hlutafélag? Geta þeir gert það? Þeir verða að missa húsin sín og það kemur þeim enginn til bjargar. Þetta vil ég minna hæstv. iðnrh. á. Það er fólkið sem er að kikna undan vaxtaokri sem hæstv. ríkisstj. hefur á það lagt. Ég bið svo forseta afsökunar á að hafa teygt hér tíma en ég held að menn ættu að hugsa Betur um meðferð opinberra sjóða í framtíðinni en hingað til.