05.11.1985
Sameinað þing: 11. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 410 í B-deild Alþingistíðinda. (351)
68. mál, lán Byggðasjóðs til Flugfisks - Flateyri hf.
Ólafur Þ. Þórðarson:
Herra forseti. Tvennt tel ég nauðsynlegt að leiðrétta. Það mátti skilja hv. þm. Guðrúnu Helgadóttur á þann veg að þeir sem átt hefðu þessar eignir hefðu með klókindum breytt einkarekstri yfir í hlutafélagsform til að komast undan með fjármuni. Hér er um mikinn misskilning að ræða. (Gripið fram í.) Það er um mikinn misskilning að ræða að þeir hafi komist undan með fjármuni. (GHelg: Það sagði ég ekki.) Það var það sem hv. þm. lét fullkomlega skína í hér áðan og spurði hvort fjölskyldurnar í landinu gætu leikið það sama ef þær ættu í erfiðleikum. Þetta kom fram.
Ég tel að svona rekstur hefði frá upphafi átt að vera rekinn sem hlutafélag og kannske er það eitt af því sem stjórnendur sjóða þurfa að gá að, að félagsformið, sem stendur að svona hlutum, sé á þann veg að takmörk séu fyrir því hvað gerist ef fyrirtæki fara á höfuðið.
Hitt er rétt að komi fram einnig að opinberir aðilar. Vegagerðin, höfðu gert samninga við þetta fyrirtæki, eftir því sem ég best veit, um smíði á ræsum úr plasti. Það var talið mjög álitlegt ef fyrirtækinu tækist að hefja þessa framleiðslu og það var grundvallaratriði ef átti að fá úr því skoríð hvort það gæti rétt úr kútnum. Ég tel að þetta lán hafi verið veitt á sínum tíma til að láta á það reyna hvort sú framleiðsla kæmist af stað með eðlilegum hætti eða ekki en kröfuhafar gengu það hart að að ekki hefur fengist nein niðurstaða í því máli.