15.04.1986
Sameinað þing: 74. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3821 í B-deild Alþingistíðinda. (3510)
411. mál, starf flugmálanefndar
Fyrirspyrjandi (Helgi Seljan):
Herra forseti. Ég hef leyft mér á þskj. 760 að beina svohljóðandi fsp. til hæstv. samgrh. um störf flugmálanefndar:
„Hvað líður störfum nefndar er skipuð var af ráðherra til að gera úttekt og skila tillögum um framkvæmdir í flugmálum og hvað hyggst ráðuneytið fyrir um það forgangsverkefni er nefndin fékk til meðferðar í erindisbréfi sínu um uppbyggingu Egilsstaðaflugvallar?"
Það má kannske segja að til lítils sé að spyrja um flugmál og framkvæmdir í þeim þegar svo hlálega litlu fjármagni er varið til þessa málaflokks ár eftir ár. Nefndarstörf, hversu vel unnin sem þau eru og hversu góðar áætlanir sem gerðar kunna að vera af framsýni jafnt sem raunsæi, allt kemur þetta fyrir lítið ef ekkert kemur í kjölfarið. Ef engar aðgerðir fylgja eftir er í raun lítið unnið. Áætlunargerðin liggur ein eftir, en ekkert er aðhafst og ekkert er hægt að aðhafast í raun í framhaldi af því sem þar er gert ráð fyrir.
Hins vegar þykir mér rétt að spyrjast fyrir um störf og álit þeirrar nefndar sem falin voru svo veigamikil verkefni og forvitnast þá um leið um áætlanir ráðuneytisins hvað þetta varðar.
Þetta snertir kannske alveg sér í lagi seinni þátt þessarar fsp., enda veit ég að s.l. sumar hafði samgrh. uppi góð orð austur á Egilsstöðum um væntanlegan flugvöll þar og forgang þeirrar framkvæmdar, enda hafði hann skýrt fororð um það í erindisbréfi nefndarinnar að það mál skyldi hafa forgang. Þar sem ég veit um áhuga hans í þessum efnum, en spurning er reyndar um fjármagn og möguleika þar með til að vinna slík stórátök, sem nýr Egilsstaðaflugvöllur er, þykir mér rétt að heyra á ráðherra nú hvað hann sér fyrir sér í þeim efnum, hvað mögulegt sé að gera í kjölfar þessa álits sem ég trúi að liggi nokkurn veginn fyrir.