15.04.1986
Sameinað þing: 74. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3823 í B-deild Alþingistíðinda. (3513)
389. mál, takmörkun yfirvinnu ríkisstarfsmanna
Fyrirspyrjandi (Kristín Halldórsdóttir):
Herra forseti. Aftur bið ég forseta leyfis að mega vitna til orða hæstv. fjmrh, við 1. umr. um frv. til fjárlaga fyrir yfirstandandi ár. Hann segir þar:
„Ætlunin er að lækka launaútgjöld um 130 millj. með því að endurráða ekki strax í störf þeirra sem hætta, draga úr yfirvinnu og ráðningu afleysingafólks. Nú er unnið að gerð ítarlegra tillagna um framkvæmd þessa atriðis“.
Ég leyfði mér reyndar í 2. umr. um fjárlagafrv. að láta í ljós efasemdir um framkvæmd þessara atriða og vísaði þar til fyrri reynslu. Þetta var m.a. ætlunin fyrir tveimur árum, þ.e. að lækka launaútgjöld með því að endurráða ekki í störf sem losnuðu, draga úr ráðningum til afleysinga og draga úr yfirvinnu. Árangur þeirra frómu áforma var nákvæmlega enginn það ég best veit. Hið sama má búast við að verði uppi á teningnum í þetta sinn þótt hér sé talað um gerð ítarlegra tillagna um framkvæmdina, en kannske hafa þær tillögur verið gerðar og það ætti þá að koma fram í svari hæstv. fjmrh. við fsp. minni á þskj. 714.
Hún hljóðar svo, með leyfi forseta: „1. Hvernig er staðið að takmörkun yfirvinnu og endurráðninga hjá ríkisstarfsmönnum til þess að ná fram 130 millj. kr. lækkun launaútgjalda sem stefnt var að við afgreiðslu fjárlaga fyrir árið 1986?
2. Hver var fjöldi yfirvinnustunda ríkisstarfsmanna frá 1. jan. til 15. mars 1986 borið saman við sama tímabil árið 1985 og hversu hátt var hlutfall yfirvinnu af föstum launum ríkisstarfsmanna á sama tíma borið saman við sama tímabil árið 1985?"