05.11.1985
Sameinað þing: 11. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 410 í B-deild Alþingistíðinda. (352)

68. mál, lán Byggðasjóðs til Flugfisks - Flateyri hf.

Stefán Benediktsson:

Herra forseti. Aðeins örstutt. Sem svar við ummælum tveggja hæstv. ráðherra hérna vil ég benda á að allir Íslendingar hætta yfirleitt öllu sínu til að lifa í þessu landi, þar skera sig mjög fáir úr. Ég vil einnig nefna að ég tel mjög beint samhengi milli þeirrar ábyrgðarlausu sóunar opinbers fjármagns, sem fram kemur í þessu umtalaða máli, og þeirrar stöðu sem komin er upp í húsnæðismálum einstaklinga í þessu þjóðfélagi í dag.