15.04.1986
Sameinað þing: 75. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3855 í B-deild Alþingistíðinda. (3525)
407. mál, utanríkismál
Kjartan Jóhannsson:
Herra forseti. Við skulum ekki ganga þess dulin að þessi umræða fer fram í skugga mjög alvarlegra atburða. Ég efast ekki um að þessir alvarlegu atburðir, sem hafa verið að gerast við Miðjarðarhaf, séu flestum Íslendingum og þm. efst í huga þessa stundina. Ég tel að hér hafi mjög hörmulega til tekist. Árás Bandaríkjamanna á Líbýu er sannarlega fordæmanleg með sama hætti og við hljótum að fordæma með hinum hörðustu orðum þá hryðjuverkaöldu sem yfir er gengin.
Það er ekki líklegt að sú leið, sem Bandaríkjamenn hafa hér valið, sé til farsældar. Það er langtum líklegra að hún muni draga slóða og það heldur óskemmtilegan slóða. Hér leika menn sér með eld.
Ég geri ekki ráð fyrir að nokkrir hér hafi sérstaka samúð með einræðisherranum í Líbýu, Gaddafi, fjarri því. En það dregur ekki úr nauðsyn þess að þjóðir fari fram með gát og þá ekki síst stórveldi því að engum er nauðsynlegra að beita afli sínu í hófi en hinum sterku.
Ég sagði að þetta væru sorgleg tíðindi. Ég fordæmi þá árás sem Bandaríkjamenn hafa hér gert á Líbýu á sama hátt og ég fordæmi þá hryðjuverkastarfsemi sem gengur eins og alda yfir heiminn. En þegar ég lít til Bandaríkjanna í þessum efnum, þá tel ég að þau beri sérstaklega þunga ábyrgð. Ég geri einmitt mjög miklar kröfur til Bandaríkjamanna, ekki einungis vegna þess að þeir eru bandalagsþjóð okkar, heldur líka vegna þess að ég hef talið og tel að þessi þjóð hafi mikinn siðferðilegan styrk og sé að ýmsu leyti framvörður meðal þjóða heims. En þetta getur ekki verið leiðin og þess vegna er dapurt um að hugsa og upp á að horfa.
Ríkisstjórn Íslands hefur birt yfirlýsingu um þetta efni. Deildin tekur væntanlega eftir því að ég nota sterkara orðalag en ríkisstjórn Íslands hefur treyst sér til að því er varðar umsagnir um þessar hernaðaraðgerðir. Hitt er hárrétt í ályktun ríkisstj. að leiðin hlýtur að vera sú að samræma aðgerðir þjóða heims til þess að ná höndum yfir hryðjuverkamenn og þá sem að baki þeirra standa. Um það þurfa allar þjóðir heims að sameinast.
Herra forseti. Það er hollt þegar rætt er um utanríkismál að gæta fyrst að því með hverjum við eigum mesta samleið. Ég held að það sé ljóst að Íslendingar eiga mesta samleið með Norðurlandaþjóðunum, með lýðræðisþjóðunum, einkum lýðræðisþjóðunum í Evrópu og með smáþjóðum og sjálfsagt í þeirri röð sem ég hef hér talið upp ef menn vilja hafa röð á því hversu samleiðin sé dyggilega samofin. Það er heldur ekki vafi á því að við höfum skipað okkur í sveit einmitt með þessum hætti, í Norðurlandaráði, á ýmsum vettvangi Evrópuþjóða, í Atlantshafsbandalaginu og á fjölþjóðavettvangi. Ég tel að allvel hafi til tekist í þessum efnum og við höfum notið góðs af.
Við höfum notið góðs af Norðurlandasamvinnunni og við skulum ekki ganga þess dulin. Þess væri óskandi að ýmsum hvimleiðum skeytum til frændþjóða okkar í ýmsum fjölmiðlum mætti linna. Svo góðs höfum við notið af samvinnunni á vettvangi Norðurlandaráðs og svo mikils virði er hún okkur. Ég segi þetta fyrst vegna þess að okkur hættir til ýmist að taka samvinnuna á vettvangi Norðurlandaráðs sem sjálfgefna eða líta framhjá henni.
Við höfum líka átt gott samstarf við Vestur-Evrópuþjóðir og bandamenn okkar í Atlantshafsbandalaginu. Margir hafa að sjálfsögðu horn í síðu Atlantshafsbandalagsins og það kom t.d. mjög glögglega fram hjá síðasta ræðumanni. En ég treysti mér ekki til að segja hvað hefði gerst í Evrópu og hver örlög Vestur-Evrópu hefðu verið ef Atlantshafsbandalagsins hefði ekki notið við. Það er ómótmælanlegt að við höfum notið hér friðar og Atlantshafsbandalagið hefur að því leytinu reynst okkur vel.
Annað veifið heyrast raddir um vopnlaust hlutleysi og hafa reyndar ýmsir ætíð uppi slíkar hugmyndir. Ég heyrði ekki betur en forveri minn hér í ræðustól, hv. þm. Hjörleifur Guttormsson, ítrekaði gamla stefnu Alþb. í þeim efnum. En ég held að sífellt fleirum sé að verða ljóst að þessi stefna gengur ekki upp. Meira að segja þykist ég hafa orðið þess var að ýmsir Alþýðubandalagsmenn og jafnvel fremstu talsmenn Alþb. fyrirverði sig hálfpartinn fyrir þá stefnu sem stendur þó á blöðum hjá þeim og hv. þm. Hjörleifur Guttormsson rómaði svo hástemmt hér áðan. Ég spyr ekki að því að horfa upp á vopnað hlutleysi á öld hryðjuverkanna eins og þau ganga nú yfir. Nei, við skulum meta það sem við höfum notið og ekki hagga því sem við höfum meðan skipan heimsmála er í stórum dráttum eins og hún hefur verið að undanförnu.
Ég tók eftir því að hv. þm. Hjörleifur Guttormsson ræddi mjög um hernaðarumsvif á Keflavíkurflugvelli, um hermangið þar, eins og hann nefndi það og taldi það vaxandi. Ég þarf kannske ekki að rifja upp að vöxturinn er ekki eingöngu á tímabili þessarar ríkisstj. því að vöxturinn hófst á tímabili fyrri ríkisstjórnar. Þá voru ákveðnar miklar framkvæmdir og miklar framkvæmdir hafnar. Ég þarf kannske ekki að minna á þetta. En hitt vil ég segja að ég hef ekki áhuga á því að varnarstöðin á Keflavíkurflugvelli sé samsett úr úreltum tækjum eða líti út eins og sorphaugur. Ég tel nauðsynlegt að menn fylgist með tækniþróun og að mannvirki þar séu þannig að það sé ekki til vansa.
Ég sagði áðan að við hefðum notið friðar og við skyldum meta það. En vitaskuld höfum við lifað í skugga ógnarjafnvægisins sem svo er nefnt. Sumir halda því fram - og ég treysti mér ekki til að mótmæla því - að þetta ógnarjafnvægi hafi tryggt frið. En á sama hátt er ekki nokkur vegur að fullyrða að jafnvel þótt það hafi tryggt okkur frið muni það ætíð og ævinlega gera það. Það er vissulega óhugnanleg tilhugsun að við eigum að fá að lifa fyrir hótun um tortímingu, að það sé eina leiðin til að hafa frið, og vopnin skuli hlaðast upp og eyðingarmátturinn aukast á báða bóga og öllum þeim fjármunum sem raun ber vitni skuli vera til þess varið á sama tíma og mikill hluti mannkyns líður sára neyð og skort. Þess vegna er vitaskuld nauðsynlegt að leitað verði annarra leiða til að tryggja frið en þeirrar sem við höfum búið við að undanförnu.
Sú hugsun, sem kemur fram í hugmyndinni um sameiginlegt öryggi í stað gagnkvæmrar ógnunar, er að mínum dómi aðlaðandi en ég veit að það er þröngt stigið þangað og erfitt að feta það. En við hljótum að óska eftir því að í stað þess að síauka vopnabúr tortímingarvopna verði stefnt til gagnstæðrar áttar, nefnilega þeirrar áttar að draga úr vopnabúnaðinum.
Í þá veru ályktaði Alþingi á s.l. ári, setti fram heildarstefnu um viðhorf Íslendinga í afvopnunarmálum. Vissulega teygðu sig ýmsir aðilar eins langt og þeir gátu teygt sig til samkomulags í þessari ályktun. Sú ályktun var um heildarstefnu í afvopnunarmálum sem var reist á þeirri grundvallarforsendu að varðandi afvopnunarmálin verði menn að geta treyst því sem um er samið og að gagnkvæmt eftirlit sé hornsteinn þess að gagn sé að. Það gerist með þeim hætti að afvopnunin sé gagnkvæm og þannig að málsaðilar uni því og treysti og það verði undir öruggu eftirliti.
Ég tel þetta grundvallaratriði og ég legg til að Alþingi Íslendinga reyni að byggja áfram á þeim grunni sem reistur var þó í fyrra með samþykkt þessarar ályktunar en tæti hana ekki í sundur með því að ætla henni annað en hún er. Afstaða okkar Íslendinga í afvopnunarmálum er þannig í stórum dráttum ljós.
En það eru fleiri svið sem hljóta að vekja ugg og umhugsun að því er vopnabúrin varðar. Það er t.d. hættan á slysi, að kjarnorkuvopn verði notuð eða kjarnorkusprengja sprengd fyrir mistök eða af slysni. Um aðgerðir til að koma í veg fyrir að slíkt geti gerst hljóta allir, stórveldin bæði ásamt öllum öðrum, að geta komið sér saman um að vinna að. Þar er sameiginlegt verkefni sem vissulega þarf að gæta að og sem Íslendingar mættu gjarnan hafa uppi.
Vopnabúr jarðarinnar, kapphlaupið í vopnabúnaði, varðar ekki stórveldin ein þó að þau séu gjarnan ávörpuð þegar þessi mál ber á góma. Það varðar allar þjóðir heims og smáþjóðir kannske alveg sérstaklega. Maður saknar þess að ekki skuli vera meiri samheldni milli smærri þjóða um að þrýsta á að leitað verði nýrra leiða til að tryggja öryggi þjóðanna í heiminum.
Í sambandi við þessi mál mætti margt ræða. En af því að tíminn líður fljótt og margir ætla að taka til máls mun ég einungis stikla á fáeinum atriðum. Eitt þeirra atriða, sem stundum ber á góma og reyndar ósjaldan, er svonefnd kjarnorkuvopnalaus svæði, m.a. spurningin um það að Norðurlönd, sem eru kjarnorkuvopnalaus, gefi sérstaka yfirlýsingu um áform sín að verða ætíð og ævinlega kjarnorkuvopnalaust svæði.
Þetta er ekki óumdeilt. En að mínum dómi væri jafnfávíslegt að hafna þessum hugmyndum algerlega eins og að gleypa þær skilyrðislaust. Grunnhugmyndin, sem menn hafa byggt á, varðar belti í gegnum Evrópu þvera eða endilanga eftir því á hvorn veginn menn líta á hana, frá norðri til suðurs sem sagt. Bak við þessa hugmynd liggur ákveðinn skilningur, ákveðin fílósófía svo að segja. Hitt er ljóst að það þarf mörgum skilyrðum að vera fullnægt til að svæði af þessu tagi komi að fullu gagni.
Mikilvægasti punkturinn á bak við þessa hugmynd er sá að fjarlægja skammdræg vopn frá línunni á milli austurs og vesturs, frá línunni milli Atlantshafsbandalagsins og Varsjárbandalagsins, til að draga úr freistingunni að nota þau frekar en að láta þau falla í óvina hendur ef illa tækist til.
Þetta er vissulega mikilvægur punktur. En það gagnar ekki að standa upp og segja: Svona viljum við hafa það. Hér þarf langtum fleira til að koma og þessi mál verða ekki skoðuð öðruvísi en í stærra samhengi. Við skulum fylgjast með umræðunni á þessum vettvangi og athuga þau nánar eins og Alþingi hefur samþykkt að gert verði og eins og utanrrh. hefur tekið undir. Þessi umræða um kjarnorkuvopnalausu svæðin er sjálfsagt óþroskuð enn þá og ýmislegt á eftir að gerast en sem eins konar tilboð, sem liður í stærra samkomulagi, hlýtur þetta að koma til alvarlegrar athugunar.
Annað atriði, sem menn ræða gjarnan þessa dagana, eru sprengingar á kjarnavopnum eða öllu heldur það að banna tilraunir með kjarnavopn. Það er merkilegt ef maður lítur aðeins aftur í tímann að annað veifið hafa komið upp hugmyndir um þetta, ekki bara frá einhverjum smáríkjanna, hlutlausu ríkjanna, heldur eru ekkert ýkja mörg ár síðan að oftar en einu sinni gerðu forsetar Bandaríkjanna tilboð til Sovétríkjanna um að nú skyldu menn hætta tilraunum með kjarnavopn. Þá passaði það ekki Sovétmönnum. Nú þegar Sovétmenn gera tilboðið passar það ekki Bandaríkjamönnum.
Ég get þessa og set það í þetta samhengi vegna þess sem mér sýnist að ef menn ætla að komast eitthvað áfram í þessum efnum þurfi menn líka að leita nýrra leiða um takmörkun og eftirlit með þessum tilraunum ef menn ætla að komast út úr þeirri sjálfheldu sem menn eru í í þessum efnum. Ég læt þetta nægja, herra forseti, um þessa hlið málanna, um vígbúnaðarkapphlaupið, um afvopnunarmálið, um öryggismálið, um stöðu Íslands í Atlantshafsbandalaginu.
Mig langar nú til þess að fara einungis fáeinum orðum um ýmsa aðra þætti sem fram koma í þessari skýrslu hæstv. utanrrh. Ég vil fyrst nefna hvalveiðar og hugmyndir okkar um að stunda hér rannsóknir á hvalastofninum og gera þær á grundvelli þess að nokkrar veiðar fari fram.
Við skulum ekki látast neitt um það hvers vegna við erum að þessum rannsóknum. Það er vegna þess að við höfum áhuga á því að halda áfram hvalveiðum, að nýta áfram þessa auðlind. Ég tel að það sé ótækt að þrýstihópar einhvers staðar í öðrum löndum geti neytt okkur til að láta af nýtingu á auðlindunum í sjónum í kringum okkur.
Sú stefna, sem mörkuð hefur verið af okkar hálfu í þessum efnum, er mikilvæg beinlínis út frá auðlindasjónarmiðinu og yfirráðum yfir auðlindum. Við skulum vona að okkur takist að fylgja henni fram af farsæld. Ég hef orðið þess var að það er ekki erfitt að tala máli Íslendinga í þessu máli við útlendinga eða á erlendum vettvangi þegar menn fá til þess tækifæri. Ef við ætlum að halda okkar striki í þessum efnum er ég sannfærður um að við þurfum að halda uppi málstað okkar, við þurfum að sýna öðrum og sanna hvað það er sem við meinum. Sumum finnst þetta kannske erfitt verkefni en ég tel það nauðsynlegt og mikilvægt og ég legg ríka áherslu á að því verði sinnt.
Annað atriði, sem mig langar að drepa hér eilítið á, er staða okkar í samningum við Grænland. Mér finnst það orðið eins og fleinn í holdi okkar að okkur skuli ekki hafa tekist enn að ná samningum við grannþjóð okkar, Grænlendinga, um nýtingu þeirra auðlinda sem þeir ásamt okkur ráða yfir eða við gerum sameiginlega tilkall til. Ég veit að ýmsar tilraunir hafa verið uppi í þessum efnum og ég legg áherslu á að áfram verði haldið á þeirri braut og lögð verði alúð og vinna í það af okkar hálfu að ná samkomulagi. En ég ætla heldur ekki að gera því skóna að Grænlendingar verði ekki líka að sýna ábyrgð að því er þeirra afstöðu varðar og það verðum við sjálfsagt líka að gera þeim ljóst.
Þessu næst, herra forseti, langar mig til að minnast eilítið á atriði sem gert er að umtalsefni í skýrslunni, þ.e. svonefndan saltfisktoll Efnahagsbandalagsins. Hann hefur í raun ekki bitnað á okkur enn þá. En hér var svo óréttlátlega fram farið af hálfu Efnahagsbandalagsins að við hljótum að nýta hvert tækifæri sem gefst til að mótmæla þessu framferði og leitast við að fá aðrar þjóðir til liðs við okkur til að hnekkja ákvörðun Efnahagsbandalagsins um að taka upp þennan saltfisktoll sem bitnar fyrst og fremst á okkur og svo hins vegar almenningi í Portúgal og á Spáni, þeim sem fiskinn borða.
Það er líka skoðun mín, og ég þykist hafa af því nokkra reynslu, að það sé ekki erfitt að tala máli Íslands í þessu máli. Ég hef áður gert tillögu um það, sem ég vil ítreka nú, að Íslendingar geri út sérstaka sendinefnd til allra aðildarríkja Efnahagsbandalagsins til að vinna fylgi einstakra þjóða, einstakra ríkisstjórna Efnahagsbandalagsríkjanna, við okkar sjónarmið, en ætli sér ekki að vinna þetta mál eingöngu hjá kontóristunum og býrókrötunum í Brussel. Ég ítreka þessa till. vegna þess að ég er sannfærður um að með þeim hætti á að vera hægt að ná verulegum árangri.
Víkjum þá fáeinum orðum að öðru viðskiptasambandi sem við erum aðilar að, EFTA. Þar hefur ýmislegt verið að gerast eins og kemur fram í skýrslu utanrrh. En ég tel að það sé eitt atriði sem við eigum að beita okkur sérstaklega fyrir innan EFTA og ég og aðrir fulltrúar Íslands innan þingmannanefndar EFTA höfum gert sérstaklega að umtalsefni á þeim vettvangi. Við eigum að vinna að því innan EFTA að fiskur verði gerður að fríverslunarvöru. Við eigum að beita okkur í þá átt. Ekki með þeim hætti að tíndar verði til einstakar fisktegundir og þeim bætt á listann yfir fríverslunarvöru, eins og hefur verið tilhneiging til og kemur reyndar fram í skýrslu utanrrh. Ég tel að sú leið sé ekki hin rétta. Leiðin er sú að taka grundvallarákvörðun um það að menn ætli að fara eins að með fiskinn og með iðnaðarvörurnar en ætla sér ákveðinn aðlögunartíma til að koma því í framkvæmd. Þetta er leiðin til að auka viðskipti með fisk. Þetta er leiðin til að losna út úr styrkjakerfi ýmissa samkeppnisþjóða okkar því að við mundum gera hér sams konar samning og hefur verið gerður varðandi iðnaðarvörurnar.
Ég held að á næstu misserum eigi Íslendingar að feta þessa braut innan EFTA, ekki bara til að vinna slaginn innan EFTA heldur jafnframt til að skapa sér betri stöðu gagnvart Efnahagsbandalaginu með því að EFTA hafi tekið upp þessa stefnu. Ég tel að Evrópa öll muni standa betur gagnvart Bandaríkjunum varðandi þá tilhneigingu sem þar virðist gæta til að taka upp sérstakar aðgerðir gegn þeim sem hafa stundað niðurgreiðslur af ýmsu tagi, sbr. þann toll sem Bandaríkjamenn ákváðu að leggja á fiskinnflutning frá Kanada og hafa haft þau orð að útvíkka.
Mig langar til þess að minnast örfáum orðum á eitt atriði enn í sambandi við utanríkisviðskipti. Hæstv. utanrrh. hefur lýst sérstökum áhuga á því að láta þau til sín taka og ég tel að hæstv. utanrrh. muni fá alveg sérstakt tækifæri í þeim efnum. Betra tækifæri heldur en ýmsir forverar hans, vegna þess að það er að eiga sér stað viðhorfsbreyting hjá Íslendingum þar sem aukist hefur skilningur á mikilvægi útflutningsstarfsemi og svonefndrar markaðssetningar. Í ljósi þessa tel ég að utanrrh. muni fá betra tækifæri og ég ætla að vænta þess að hann nýti það vel, þannig að það megi gagnast okkur vel í framtíðinni. Ég fagna þannig þeim áhuga sem að hæstv. ráðh. hefur sýnt að því er þetta varðar.
Herra forseti. Það er af mörgu að taka í sambandi við umræður um utanríkismál. En fleiri þurfa að að komast. Ég hefði getað rætt um Afghanistan eða um Suður-Afríku, ég hefði getað rætt um styrjöldina milli Íran og Írak, ég hefði getað rætt um ástandið í Mið-Ameríku, alveg sérstaklega í Nicaragua, en ég ætla ekki að gera það. Ég ætla að takmarka mig við þessi fáu atriði sem ég hef hér nefnt og einungis nefna eitt atriði eða tvö að lokum.
Það kom fram í máli hæstv. utanrrh., og hefur reyndar komið fram á öðrum vettvangi, að hann hefði áhuga á að líta á og skoða svonefnt innra öryggi eða það sem hefur verið gefið það nafn. Ég held að hér sé lofsvert framtak á ferðinni og vil láta í ljós ánægju mína með að þetta atriði skuli nú tekið til sérstakrar skoðunar.
Að lokum kemst ég ekki hjá því að minna á það að hér var hinn 28. maí 1985 samþykkt sérstök þál. um þróunaraðstoð Íslands. Um að á sjö árum skuli með reglubundnum hætti auka framlag til þeirra mála þannig að því marki verði náð á þessu tímabili að opinber framlög Íslands til uppbyggingar í þróunarríkjum verði 0,7% af þjóðarframleiðslu. Ég kemst ekki hjá að minna á þetta vegna þess að okkur miðar ekki neitt þrátt fyrir þessa ályktun. Ég kemst ekki hjá að minna á það vegna þess að það er okkur til vansa, það er okkur til vansæmdar að okkur skuli ekki einu sinni miða hænufet í þessum efnum, svo skammarlega lágt er þetta framlag okkar. Og okkur dugar ekkert að skjóta okkur á bak við lélegt efnahagsástand. Það stoðar ekki, svo smánarlega lágt er framlag okkar í þessum efnum. Við þessa ályktun verður að standa.
Fátæktin blasir við í heiminum. Hæstv. utanrrh. gerði sérstaklega að umtalsefni fátæktina í Afríku, en hún er ekki bara í Afríku, hún er í Suður-Ameríku, hún er í Mið-Ameríku, hún er í Asíu, hún er um allt. Og hún er svo hörmuleg að þeir sem kynnast henni fyrsta sinni fá það sem kallað er „sjokk“. Það er langt síðan ég fékk að sjá hana í fyrsta skipti en ég hitti annað veifið fólk sem nýlega hefur fengið að kynnast því, hefur fengið að sjá hvernig þetta fátæka fólk lifir og er ég þó ekki að tala um það fólk sem sveltur í Eþíópíu eða Súdan eða Mósambik, heldur hina almennu og hörmulegu fátækt sem menn geta fengið að sjá á ýmsum öðrum stöðum í heiminum.
Við verðum, Íslendingar, að leggja okkur fram í þessum efnum. Hér eru ýmsir starfskraftar sem hafa verið til þess reiðubúnir að vinna að þessum málum og ýmsir starfskraftar sem hafa lagt verulega að sér og unnið verulega í þessu viðfangsefni, en það hrekkur skammt. Og það hlýtur að vera leiðinlegt fyrir þessa aðila að horfa upp á það að framlag Íslands, hið opinbera framlag skuli vera jafnsmánarlega lágt og raun ber vitni ár frá ári. Þessu fólki skulum við ekki heldur gera það að sitja alltaf og hjakka í sama farinu og bera fyrir okkur lélegt efnahagsástand því að það dugar ekki sem afsökun.
Ég skora á hæstv. utanrrh. að beita sér fyrir og ná nú í gegn verulegri umbreytingu í þessum efnum því ég veit líka að utanrmn. öll hefur mjög mikinn áhuga á og telur mjög nauðsynlegt að hér verði unnin bót á.