15.04.1986
Sameinað þing: 75. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3882 í B-deild Alþingistíðinda. (3529)

407. mál, utanríkismál

Forsrh. (Steingrímur Hermannsson):

Herra forseti. Ég skal ekki vera langorður en vil koma að nokkrum þeim atriðum sem hér hafa verið sögð.

Ég get tekið undir flest það sem hefur verið sagt um árás Bandaríkjamanna á Líbýu. Ég get tekið undir formælingar, átölur og sömuleiðis harma ég það sem þarna hefur gerst. Reyndar gæti ég tekið svo djúpt í árinni að segja að mér virðist að þessi árás sé brjálæði næst.

Ég sé hins vegar ekkert rangt við það sem ríkisstj. hefur látið frá sér fara. Hér er um að ræða þjóð sem er okkar meginviðskiptaþjóð, vinaþjóð og lýðræðisþjóð og við hljótum svo sannarlega að harma það slík þjóð grípur til þeirra ráða sem nú hefur verið gripið til.

Ég get tekið undir það sem menn hafa sagt um afleiðingar þessarar árásar. Þær eru fullkomlega óljósar. Ákaflega hætt er við, þegar í hlut eiga menn sem gjalda auga fyrir auga og tönn fyrir tönn, að þetta leiði til frekari hryðjuverka og jafnvel gagnárása. En það vekur einnig athygli mína, að í þeirri umræðu sem hér hefur verið, hafa fáir nefnt hryðjuverkin, hryðjuverkamenn og aðgerðir þeirra. Ég lít það svo sannarlega ekki síður alvarlegum augum. Þar eiga fjölmargir saklausir um sárt að binda. Tugir manna og hundruð hafa fallið fyrir árásum hryðjuverkamanna. Það munaði sannarlega ekki miklu að stórkostlegt slys yrði yfir Miðjarðarhafinu um daginn þegar sprengja sprakk í flugvél sem þar var á ferð. Ég veit ekki hve margir létu lífið þegar hryðjuverkamenn létu til skarar skríða á flugvöllum í Evrópu fyrir skömmu. Og það hefði sannarlega getað farið verr þegar sprengja sprakk í Berlín fyrir fáeinum dögum.

Það vakti athygli mína t.d. að hv. þm. Hjörleifur Guttormsson minntist lítið eða ekkert á hryðjuverkamenn. Ég verð að segja að ef ég teldi að vopnuð árás gæti komið í veg fyrir hryðjuverk mundi ég skoða hug minn, en ég hef enga trú á því, ekki nokkra trú á því, og það kemur greinilega fram í ályktun ríkisstj. Ályktun ríkisstj. er tvímælalaust fordæming á vopnaðri árás og aðgerðum hryðjuverkamanna. Þar segir svo ekki verður um villst að ríkisstj. telji að slík árás verði ekki til þess að draga úr verkum hryðjuverkamanna.

Mér sýnist að það sé nánast orðaleikur að gera lítið á einn máta eða annan úr þessari ályktun ríkisstj. Mér sýnist reyndar að það sé ákaflega breið samstaða á Alþingi um að fordæma þessar árásir þótt menn vilji e.t.v. hafa eitthvað annað orðalag og eigi ekki að gera að deiluefni.

Ég gæti alveg eins lýst undrun minni á því orðalagi sem kom fram í till. hv. þm. Hjörleifs Guttormssonar í utanrmn. í gær. Þar er aðeins varað við vopnaðri íhlutun eða hernaðaríhlutun. (HG: Hún var ekki orðin staðreynd þá.) Nei, en það mátti samt sem áður taka dýpra í árinni en að vara við. Það hefði svo sannarlega mátt segja meira en að „ekki verði talið“ að það komi í veg fyrir árásir hryðjuverkamanna. Ég er þó ekki að átelja hv. þm. fyrir það að hafa ekki haft það harðara. Ég er sannfærður um að hv. þm. hefði verið fús til þess. Mér sýnist allir vera sammála um að átelja það sem hefur verið gert og ég held að menn ættu að geta verið sammála um að lýsa frekar ánægju með að ríkisstj. þegar í morgun lýsti harðri andstöðu gegn því sem hefur gerst og fordæmir.

Hv. þm. sagði jafnframt að ríkisstj. væri eins konar taglhnýtingur, eða hvernig hann orðaði það, hjá Reagan Bandaríkjaforseta. Ég andmæli því. Ég vil ekki láta kenna mig a.m.k. við stefnu Reagans í fjölmörgum málum.

Ég get alls ekki fallist á að þessi árás Bandaríkjanna á Líbýu sé árás Atlantshafsbandalagsins í raun. Ég heyrði ekki betur í fréttunum áðan en að allir forustumenn Atlantshafsbandalagsríkjanna fordæmdu Bandaríkjamenn fyrir þessa árás nema Bretar. Ég gat ekki heyrt annað. Reyndar heyrði ég líka í fréttunum að sumir harðir andstæðingar notuðu svipað orðalag og íslenska ríkisstjórnin notar í ályktun sinni.

Ég get heldur alls ekki samþykkt að íslenska ríkisstjórnin hafi nokkru sinni með nokkru móti samþykkt að tilraunir með kjarnorkusprengjur voru hafnar á ný. Ég vil hins vegar taka undir það, sem hv. þm. Kjartan Jóhannsson sagði hér í umræðunni fyrr í dag, að ákaflega erfitt er að rekja hvar upphafið er og hvar endirinn er í þessari víxlverkun. Fyrir nokkrum árum ákváðu Bandaríkjamenn að gera ekki tilraunir með kjarnorkuvopn. Þá gerðu Rússar það o.s.frv.

Ég hlýt að komast að þeirri niðurstöðu og ég hygg að margir séu þeirrar skoðunar að í raun, eins og reyndar hefur einnig komið hér fram, veltur framtíð þessara mála fyrst og fremst á því hvernig risaveldin koma sér saman. Það stendur og fellur með því. Og það var ekki að ástæðulausu að menn sáu nokkurn vonarneista þegar stórveldin höfðu haldið sinn fund s.l. sumar. Ég er einn þeirra sem óttast að sá vonarneisti muni nú slokkna og ég er þeirrar skoðunar að endurnýjaðar tilraunir með kjarnorkuvopn hafi verið rangt skref á þessu stigi.

Töluvert hefur verið rætt um samþykkt Alþingis frá 23. maí. Ég tel þá samþykkt eina þá merkari sem Alþingi hefur gert í utanríkismálum. Mér fannst hv. þm. Hjörleifur Guttormsson hins vegar leggja nokkurn annan skilning í það sem þar segir en ég geri a.m.k. Í þeirri samþykkt er greinilega tekið fram að Alþingi leggur áherslu á kjarnorkuvopnalaust svæði í Norður-Evrópu á landi, í lofti, á sjó og í hafinu. Þetta er töluvert annað en kjarnorkuvopnalaust svæði á Norðurlöndum. Ég verð að viðurkenna að ég sé ekki mikinn tilgang í kjarnorkuvopnalausu svæði á Norðurlöndunum meðan Kólaskagi er stöðugt byggður upp sem eitthvert stærsta kjarnorkuhreiður í heiminum rétt við landamæri Noregs, Svíþjóðar og Finnlands og reyndar ekki nema örstutt héðan. Ég get upplýst að á mörgum fundum sem ég hef átt m.a. með forsætisráðherrum Norðurlanda hefur alltaf verið viðurkennt, að það væri veiki bletturinn á hugmyndinni um kjarnorkuvopnalaus svæði á Norðurlöndum að hafið í kring er fullt af kjarnorkukafbátum, að því er manni skilst, og allir vita að Kólaskagi er, eins og ég sagði áðan, eitthvert öflugasta kjarnorkuvopnahreiður í heimi. Þetta hefur alltaf verið viðurkennt. Þess vegna tel ég að eins og orðalag á þessari tillögu var sé þar gripið á málunum af fullri alvöru og bent á að slíkt svæði þurfi að vera stærra.

Mér fannst liggja í orðum að stjórnvöld gerðu ekki mikið úr þessari ályktun. Ég andmæli því. Ég hef notað mér hana eins og ég hef getað þar sem ég hef verið erlendis. Ég skýrði frá henni í ræðu á 40 ára afmæli Sameinuðu þjóðanna. Ég hef dreift henni til manna sem komið hafa á mína skrifstofu og gert grein fyrir henni m.a. á fundi með Lord Carrington og gerði þar grein fyrir þeim eindregna vilja og skoðun Íslendinga að hverfa ætti frá kjarnorkuvopnakapphlaupinu. Ég tel því að sú samþykkt hafi verið mjög merk og mjög gagnleg fyrir þá sem þurfa og vilja flytja mál okkar Íslendinga á alþjóðlegum vettvangi og fjalla um þessi mál. Mér finnst því satt að segja ekki rík ástæða til að hafa hér uppi deilur. Ég held að þjóðin sé mjög sammála í andstöðu sinni gegn því sem hefur gerst. Ég tel að sú samstaða hafi komið mjög ríkt fram í þeirri samþykkt sem gerð var 23. maí og ég tel að við eigum að byggja á því.

Fram kom í ræðu hv. þm. Hjörleifs Guttormssonar andstaða við Atlantshafsbandalagið. Það kom ekki á óvart. Hún er yfirlýst. Ég vil hins vegar láta það koma skýrt fram að ég tel að við Íslendingar eigum að vera áfram þátttakendur í Atlantshafsbandalaginu. Ég a.m.k. treysti mér ekki til að spá í það sem gæti gerst ef Atlantshafsbandalagið riðlast. Staðreyndin er að það hefur verið friður í Evrópu þótt segja megi, eins og síðasti ræðumaður sagði, að sá friður hafi einkennst af ógnarjafnvægi. Mikið er til í því. En ég tel sömuleiðis að ef menn gera sér einhverjar vonir um að áframhald verði á viðræðum forustumanna stórveldanna og þær viðræður kunni að leiða til þess að menn hverfi frá þessari heljarbraut, sem heimurinn hefur verið á, sé rangt að valda því að jafnvægi það sem nú er breytist. Ég vil láta það koma hér fram og leggja áherslu á að ég tel að við Íslendingar eigum ekki að stuðla að slíku.

Herra forseti. Ég sagði að ég ætlaði að vera stuttorður og get því lokið máli mínu. Þó vil ég aðeins nefna það, af því að það kom fram hjá hv. þm. Guðrúnu Agnarsdóttur að engar tillögur hefðu verið frá ríkisstj. til stjórnar Félags Sameinuðu þjóðanna um aðgerðir. Ég man ekki betur en að ég hafi greint frá því í fyrirspurnatíma að ríkisstj. var með hugmyndir þessu lútandi. Ég greindi frá fleiru en peningnum. Ég greindi frá fundum og ráðstefnum og fleiru sem ríkisstj. telur sjálfsagt að verði gert. Á það hefur verið lögð rík áhersla við stjórn Félags Sameinuðu þjóðanna að hendur verði látnar standa fram úr ermum og með þeim fjölmörgu aðilum sem vilja tjá sig um frið verði unnið. Ég tel ástæðulaust að ætlast til annars en að svo verði gert.