15.04.1986
Sameinað þing: 75. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3884 í B-deild Alþingistíðinda. (3530)
407. mál, utanríkismál
Ólafur G. Einarsson:
Herra forseti. Eins og margir ræðumenn hafa tekið fram fer þessi umræða fram í skugga þeirra alvarlegu atburða sem hafa verið að gerast á þessum sólarhring. Ríkisstjórn Íslands hefur, svo sem flestar aðrar ríkisstjórnir, harmað árás Bandaríkjamanna á Líbýu um leið og hún hefur fordæmt þráláta hryðjuverkastarfsemi m.a. með stuðningi Líbýustjórnar og sem leitt hefur til þessarar árásar.
Ég geri ráð fyrir að hæstv. forsrh. hafi mismælt sig þegar hann var að tala um að hann formælti Bandaríkjaforseta eins og hann orðaði það hér áðan. Það er annað að fordæma en formæla.
Þótt hér sé vissulega um atburði að ræða sem kalla á umræðu hér á hv. Alþingi mun ég halda mig við þá þætti sem ég hafði ætlað mér að ræða.
Ég vil með nokkrum orðum ræða sérstaklega tvö atriði sem drepið er á í hinni ítarlegu skýrslu hæstv. utanrrh. Annars vegar hið norræna samstarf, og þá einkum það samstarf sem Alþingi hefur bein afskipti af með starfsemi Íslandsdeildar Norðurlandaráðs. Hins vegar mun ég koma inn á umræðuna um kjarnorkuvopnalaust svæði á Norðurlöndum og þingmannaráðstefnuna sem haldin var í Kaupmannahöfn um það mál á s.l. hausti.
Sem kunnugt er eiga sjö alþm. sæti í Norðurlandaráði, en hvert hinna fjögurra ríkjanna á þar 20 fulltrúa. Þannig skipa ráðið 87 þingmenn Norðurlandanna. Starf Íslandsdeildar var með venjubundnum hætti að flestu leyti, þó kannske viðameira í ljósi þess, að hv. þm. Páll Pétursson gegndi starfi forseta Norðurlandaráðs frá því þingið var haldið í Reykjavík í marsmánuði árið 1985 og þar til í mars s.l. þegar þingið var háð í Kaupmannahöfn og við forsetastarfi tók Anker Jörgensen fyrrum forsrh. Danmerkur.
Hér á Alþingi hefur nú verið dreift skýrslu um norrænt samstarf árið 1985 frá Íslandsdeild Norðurlandaráðs, þskj. 813. Ég vísa til þessarar skýrslu Íslandsdeildarinnar og sé því ekki ástæðu til að tíunda sérstaklega hér úr ræðustól það sem þar er skráð. Þó er rétt að nefna nokkur mál sem við, fulltrúar Íslands í Norðurlandaráði, höfðum sérstök afskipti af.
Við áttum frumkvæðið að tillögu um að sett yrði á stofn norræn líftæknistofnun á Íslandi. Umsagnir þær sem Norðurlandaráði bárust um tillöguna studdu þá skoðun okkar að hér væri um mjög áhugavert mál að ræða. Tillagan kom fyrir 34. þing Norðurlandaráðs í Kaupmannahöfn í mars s.l. og var þar samþykkt að beina þeim tilmælum til norrænu ráðherranefndarinnar að kanna hvaða hlutverki líftæknistofnun á Íslandi gæti gegnt fyrir norrænt atvinnulíf. Þessi fyrirhugaða líftæknistofnun á samkvæmt tillögunni að sinna sérstaklega verkefnum og rannsóknum á hita- og kuldaþolnum örverum og er staðarval á Íslandi af þeirri ástæðu talið mjög eðlilegt.
Á 34. þingi ráðsins var lögð fram tillaga um norræna framkvæmdaáætlun gegn krabbameini. Tillaga þessi kemur ekki til atkvæða fyrr en á næsta Norðurlandaráðsþingi. Ég nefni hana þó hér, bæði vegna þess að Íslandsdeild Norðurlandaráðs átti frumkvæðið að henni og 1. flm. er Páll Pétursson og vegna þess að hér er um mjög athyglisvert mál að ræða. Tillagan tengist samræmdu átaki Evrópuþjóða gegn krabbameini, átaki sem Evrópubandalagið stendur að. Efni tillögunnar er að forvarnir og krabbameinslækningar verði skipulagðar þannig að komið verði í veg fyrir ótímabær dauðsföll vegna krabbameins. Að mati sérfræðinga er unnt að bjarga á ári hverju 8000 einstaklingum á Norðurlöndum frá því að deyja úr krabbameini frá og með árinu 2000. Að þessu marki er stefnt með tillögunni.
Þriðja tillagan sem ég ætla að nefna er ráðherranefndartillagan um stofnun vestnorræns þróunarsjóðs með aðsetri í Reykjavík. Tillaga þessi var samþykkt á 34. þingi Norðurlandaráðs núna í mars. Stofnframlag Norðurlanda til sjóðsins verður 14,1 millj. bandaríkjadala og hlutur Íslands 0,4 millj. dala. Ísland, Færeyjar og Grænland munu skiptast á um formennsku í sjóðstjórn. Markmið stofnunarinnar er að stuðla að samstarfi iðnaðar og verslunar milli Íslands, Færeyja og Grænlands og einnig milli þessara landa og annarra norrænna landa, ásamt því að stuðla að þróun samkeppnisfærs atvinnulífs á Íslandi, í Færeyjum og á Grænlandi með lán- og styrkveitingum. Lítil fyrirtæki munu að öðru jöfnu ganga fyrir um lánveitingar úr sjóðnum.
Fleira gæti ég að sjálfsögðu nefnt af tillöguflutningi á vettvangi Norðurlandaráðs og fleiri atriði, sem við höfum unnið að, en geri það ekki, heldur vísa til áðurnefndrar skýrslu Íslandsdeildar Norðurlandaráðs.
Ég sný mér þá að hinu atriðinu sem ég mun reifa. Í skýrslu utanrrh. er vikið að hugmyndinni um kjarnorkuvopnalaust svæði á Norðurlöndum og fundinum sem haldinn var í Kaupmannahöfn dagana 29. og 30. nóv. 1985, en þann fund hefur áður borið á góma hér á hv. Alþingi þótt ekki hafi verið rakið í smáatriðum það sem þar fór fram. Í sambandi við umræður á Alþingi um kjarnorkuvopnalaus Norðurlönd verða alþm. að muna eftir ályktun þingsins um afvopnunarmál frá 23. maí á s.l. ári, ályktun sem gerð var í einu hljóði. Vegna ummæla hv. þm. Hjörleifs Guttormssonar hér fyrr í umræðunni vil ég taka fram að ég hef ekki tekið við neinum ákúrum vegna nefndrar samþykktar og tek ekki við ákúrum frá einum né neinum. Við sjálfstæðismenn stöndum við þessa samþykkt og hugsanleg óánægja einhverra flokksbræðra hefur engin áhrif á okkur.
Í þessari ályktun var lagt til að könnuð yrði samstaða og grundvöllur fyrir samningum um kjarnorkuvopnalaust svæði í Norður-Evrópu, jafnt á landi, lofti sem á hafinu eða í því og það sé liður í samkomulagi til að draga úr vígbúnaði og spennu. Utanrmn. Alþingis skýrði líka hvað hún ætti við með Norður-Evrópu. Það væru Norðurlönd, eyjar á norðanverðu Atlantshafi, Norður-Þýskaland, þ.e. Norður-Evrópusléttan, og allt frá Grænlandi til Úralfjalla. Einhver önnur túlkun hv. þm. Hjörleifs Guttormssonar hefur því mjög takmarkað gildi vægast sagt.
Norðurlöndin hafa farið mismunandi leiðir eftir seinni heimsstyrjöld til að tryggja öryggi sitt. Þannig eru þrjú ríki Norðurlandanna, Ísland, Danmörk og Noregur, í Atlantshafsbandalaginu. Svíar töldu að hlutleysi hefði reynst sér vel og álitu sig hafa mátt til að verja það. Finnar völdu hlutleysið og voru auk þess í kjölfar friðarsamninga við Sovétríkin bundnir ákveðnum skuldbindingum samkvæmt sérstökum vináttusamningi við Sovétríkin. Íslendingar, Norðmenn og Danir höfðu aftur á móti þá reynslu að hlutleysi væri í engu virt og í því engin vörn.
Hugmyndin um kjarnorkuvopnalaus Norðurlönd er ekki ný. Spurningin er hins vegar nú hvort Norðurlönd eigi þar samleið og þá með hvaða skilyrðum.
Mestur hluti umfjöllunar um kjarnorkuvopnalaust svæði á Norðurlöndum hefur verið almenns eðlis og mörgum spurningum er ósvarað. Sú spurning vaknar t.d. hvort ýmis hugtök séu nægilega skilgreind. Allir sem taka þátt í umræðunni verða að leggja sama skilning í hugtök. Hugtakið „yfirráðasvæði“ t.d. verður að vera óumdeilt. Sumir halda því fram að hugtakið „yfirráðasvæði“ feli í sér landið sjálft, landhelgina og lofthelgina þar fyrir ofan. Aðrir halda fram þeirri skilgreiningu að yfirráðasvæði hljóti að vera í samræmi við alþjóðalög. Á það leggja Sovétríkin t.d. áherslu í þeim umræðum sem þau hafa tekið þátt í um kjarnorkuvopnalaust svæði og hafna því einhliða yfirlýsingum einstakra ríkja innan svæðisins.
Hugtakið „svæði“ er heldur ekki óumdeilt. Yfirleitt er litið á hugtakið „kjarnorkuvopnalaust svæði“ sem landsvæði þar sem engin kjarnorkuvopn eru til staðar. Hins vegar hefur því einnig verið haldið fram að „svæði“ í þessari merkingu verði einnig að taka til alþjóðlegra siglingaleiða í nágrenni svæðisins eða á milli landa innan svæðisins ef það er til að treysta enn betur öryggi ríkjanna.
Þetta hefði t.d. í för með sér að ef svæðið frá Finnlandi til Grænlands væri lýst kjarnorkuvopnalaust þýddi það ekki einungis að löndin sjálf, Finnland, Svíþjóð, Noregur, Danmörk, Færeyjar, Ísland og Grænland, væru kjarnorkuvopnalaus, heldur einnig allt hafsvæðið innan þess svæðis, þ.e. sundið milli Íslands og Grænlands, Norðaustur-Atlantshafið, Norðursjór og Eystrasaltið.
Sovétríkin eru andvíg svo víðtækri skilgreiningu á hugtakinu „svæði“ og neikvæð afstaða Breta og Bandaríkjamanna kann að vera af sömu rót og þeirra Sovétmanna. Hér er um svo mikla hernaðarlega hagsmuni að ræða að kjarnorkuveldin geta varla sætt sig við að siglingaleiðum kafbáta þeirra og herskipa og flugleiðum flugvéla þeirra, búnum kjarnorkuvopnum, verði lokað á þessu víðáttumikla heimssvæði.
Og mörk svæðisins skipta máli. Í umræðunni um kjarnorkuvopnalaus Norðurlönd skýtur því vandamáli hvað eftir annað upp hver skuli vera mörk hins kjarnorkuvopnalausa svæðis á Norðurlöndum, hvort það eigi að taka til hluta af Sovétríkjunum, til vestari jaðarsvæða Norðurlanda, þ.e. Færeyja, Íslands og Grænlands, og hluta landsvæða sunnan við svæðið, þ.e. til Norður-Þýskalands.
Margt fleira mætti nefna um þau vandamál sem skapast geta í tengslum við umræður um kjarnorkuvopnalaus svæði, en af þessu má þó sjá að margir endar eru lausir enn þá.
Það hefur t.d. ekki alltaf legið skýrt fyrir hvort hugmynda- og tillögusmiðir hafa viljað telja Ísland til Norðurlanda í þessu samhengi. Það leiðir hins vegar af legu landsins að ýmsir komast í töluverðan vanda þegar þeir líta til þess, hvort eylandi á hinu hernaðarlega mikilvæga Norður-Atlantshafi geti verið skipað í flokk með hinum ríkjum Norðurlanda í þessu samhengi. Og hvað með Færeyjar og Grænland?
Á þessu máli er engin einföld lausn, en við getum ekki talað um Norðurlönd án þess að ræða um þau öll og þess vegna hlýtur Ísland að skoðast hluti af þeim í þessu efni sem öðrum.
Sé hér um að ræða jafnmikilvægt framlag til friðar og öryggis í heiminum og sumir vilja vera láta geta hinir sömu ekki látið sem svo að Ísland sé ekki hluti Norðurlanda af því að það hentar ekki til að tillögurnar verði framkvæmanlegar. Spurningin, sem við stöndum frammi fyrir þegar rætt er um kjarnorkuvopnalaust svæði, er einfaldlega þessi: Eigum við með einhliða yfirlýsingu og í samfloti með öðrum Norðurlandaþjóðum að lýsa því yfir í eitt skipti fyrir öll að við munum aldrei heimila flutning kjarnorkuvopna til landsins? Þegar þessari spurningu er svarað þurfa menn að huga að því hverju það breyti fyrir okkur Íslendinga að lýsa þessu yfir. Stuðlar það að friði í heiminum? Eykur það öryggi okkar sjálfra? Hefur það í för með sér að ríki, sem nú kann að beina kjarnorkueldflaugum á Ísland, snýr þeim eitthvað annað? Er ástæða til að binda hendur sínar á þennan hátt í eitt skipti fyrir öll í stað þess að hafa það frjálsræði sem íslensk stjórnvöld hafa nú?
Ég tel ekki skynsamlegt að fórna því ástandi, sem nú ríkir, á altari óvissunnar. Of mikið er í húfi og of litlar vonir bundnar við það að einhliða yfirlýsing Norðurlandanna dragi úr hættu á kjarnorkuárás á þau. Hvers vegna skyldum við treysta á einhliða yfirlýsingar í þessum efnum hér á Norðurlöndum þegar við hvetjum til þess að afvopnun annars staðar fari fram með gagnkvæmum hætti? Hvers vegna vænta menn svo mikils af því að þjóðir, sem ekki ráða yfir neinum kjarnorkuvopnum, lýsi því yfir að þær ætli að vera kjarnorkuvopnalausar?
Afvopnunarmál ná ekki fram að ganga frekar en önnur málefni nema unnt sé að færa þau rök fyrir framkvæmd þeirra að breytt ástand sé betra en óbreytt. Yrði ástandið betra á Norðurlöndum eftir að við hefðum einhliða lýst því yfir að þau yrðu aldrei varin með kjarnorkuvopnum ef á þau yrði ráðist? Segir sagan okkur að það sé það skynsamlegasta sem menn gera til að tryggja eigið öryggi og annarra að afsala sér vörn með þeim vopnum sem öflugust og ógnvænlegust eru talin? Frumskilyrðið er auðvitað að gagnkvæmni ríki um afvopnun hér um slóðir eins og annars staðar.
Þar sem Norðurlöndin geta ekki fækkað þeim vopnum, sem þau eiga ekki, verður yfirlýsingu um kjarnorkuvopnalaus Norðurlönd að fylgja loforð stórveldanna um aukið öryggi þeirra um leið og kjarnorkuvörninni er afneitað. Hvernig á að koma slíku fyrir? Ekki viljum við leyfa stórveldum að hlutast til um innri málefni okkar, síst af öllu þeir sem hlutlausir eru.
Umræðurnar um kjarnorkuvopnalaust svæði eru að verulegu leyti byggðar á tilfinningalegri óbeit okkar allra á þessum hroðalegu vopnum. Eins og við vitum er oft erfitt að samræma tilfinningalegt mat og það sem nauðsynlegt er og rétt hverju sinni. Líklega er það hvergi erfiðara en einmitt í umræðunum um kjarnorkuvopn. Við berum þá ábyrgð að við megum ekki benda á neinar leiðir, sem ekki eru framkvæmanlegar, þótt þær kunni að ganga í augun á mörgum. Ég er því miður hræddur um að hugmyndirnar um kjarnorkuvopnalaust svæði á Norðurlöndum séu enn á því stigi að það sé ótímabært að binda við þær miklar vonir ef við hugum að því sem skynsamlegt er að gera til að tryggja öryggi Norðurlanda.
En við skulum ekki hika við að halda umræðunum um þetta mál áfram í von um að þær einar haldi athyglinni vakandi á nauðsyn þess að fækka kjarnorkuvopnum.
Ég ætla þá að fara nokkrum orðum um þingmannaráðstefnuna í Kaupmannahöfn, sem haldin var 29. og 30. nóv. s.l., um kjarnorkuvopnalaust svæði á Norðurlöndum og nefni þá afstöðu einstakra flokka til málsins. Þær niðurstöður sem ég dreg af ráðstefnunni byggjast að sjálfsögðu á mínu mati, en ég hef reynt að leggja hér á hlutlægt mat.
Það var einkennandi á þessari ráðstefnu að hugmyndin um einhliða yfirlýsingu um að Norðurlönd skuli vera kjarnorkuvopnalaust svæði átti mun meira fylgi að fagna hjá fulltrúum Finnlands og Svíþjóðar en hjá fulltrúum Danmerkur, Íslands og Noregs. Fulltrúar allra finnskra flokka studdu eindregið að Norðurlönd yrðu með einhliða yfirlýsingu gerð að kjarnorkuvopnalausu svæði. Hið sama má segja um fulltrúa sænsku flokkanna með þeirri undantekningu þó að fram komu af hálfu fulltrúa hægri flokksins, eða Moderata samlingspartiet, efasemdir um gildi einhliða yfirlýsinga um kjarnorkuvopnalaust svæði á Norðurlöndum. Afstaða fulltrúa dönsku flokkanna skiptist þannig að fulltrúar sósíaldemókrata, sósíalistíska þjóðarflokksins, róttæka vinstri flokksins og vinstri sósíalistanna, voru fylgjandi einhliða yfirlýsingu um kjarnorkuvopnalaus Norðurlönd. Fulltrúar íhaldsflokksins og vinstri flokksins fundu tillögunni um einhliða yfirlýsingu hins vegar flest til foráttu. Í Noregi hafa tillögur um einhliða yfirlýsingu um kjarnorkuvopnalaus Norðurlönd ekki átt fylgi að fagna en þó kom fram jákvæð afstaða hjá fulltrúum sósíaldemókrata og sósíalistíska vinstri flokksins.
Ef við snúum okkur að málflutningi íslensku þingmannanna á þessari ráðstefnu, þá var það svo að fulltrúar Sjálfstfl. og Alþfl. voru andvígir einhliða yfirlýsingu um kjarnorkuvopnalaust svæði á Norðurlöndum en fulltrúar Alþb., Kvennalistans og Bandalags jafnaðarmanna voru henni fylgjandi. Landsþing Grænlands og lögþing Færeyja hafa tekið ákvörðun um að Grænland og Færeyjar skuli vera kjarnorkuvopnalaus. Allir flokkar grænlenska landsþingsins studdu þá ákvörðun. Þeir fulltrúar á þessari ráðstefnu sem studdu tillögurnar voru upp til hópa ófúsir að fjalla nokkuð um framkvæmd tillögunnar, hvaða hafsvæðis kjarnorkuvopnalausa svæðið ætti að ná til, samninga við kjarnorkuveldin um kjarnorkuvopnalausa svæðið, um Kólaskaga eða yfirleitt nokkuð annað en að Norðurlönd ættu að ganga á undan með góðu fordæmi, að jákvætt hugarfar væri forsenda friðar, að tillögurnar nytu stuðnings almennings og að Suðurpóllinn og hluti af Kyrrahafinu hafi verið lýst kjarnorkuvopnalaus svæði.
Hinn látni forsrh. Svía, Olof Palme, tók þó fram í ræðu sinni að skuldbindingar um að Eystrasalt skyldi vera kjarnorkuvopnalaust yrðu að tengjast yfirlýsingu um kjarnorkuvopnalaus Norðurlönd. Á ráðstefnunni dreifðu sósíaldemókratar tillögu um að skipuð yrði vinnunefnd sem í ættu sæti norrænir þingmenn til að vinna að framkvæmd tillögunnar um kjarnorkuvopnalaus Norðurlönd. Einnig beindu þeir þeim tilmælum til ríkisstjórna Norðurlanda að skipuð yrði embættismannanefnd til að vinna að málinu. Skömmu síðar kom svo fram stuðningsyfirlýsing við þetta bréf sósíaldemókratanna og undir þá stuðningsyfirlýsingu rituðu ýmsir fulltrúar á ráðstefnunum undir forystu hv. þm. Guðrúnar Agnarsdóttur. Nú hefur formönnum þingflokka hér og á öðrum Norðurlöndum borist bréf frá Anker Jörgensen þar sem hann boðar myndun nýrrar nefndar sem undirbúa skal nýjar aðgerðir í þessum hugmyndum sósíaldemókrata og fleiri um kjarnorkuvopnalaus Norðurlönd. Í bréfi þessu gerir Anker Jörgensen ráð fyrir að skipuð verði 25 manna nefnd, fimm frá hverju Norðurlandanna, sem undirbúa skuli málið. Þetta munum við að sjálfsögðu taka til umfjöllunar í okkar þingflokkum.
Fulltrúi græningja í Finnlandi vék að því atriði sem líklega er meginástæðan fyrir þeim almenna stuðningi sem tillögurnar um kjarnorkuvopnalaust svæði á Norðurlöndum eiga í Finnlandi. Hann benti á að yfirlýsing Norðurlanda um kjarnorkuvopnalaust svæði á Norðurlöndum gæti stuðlað að því að Finnland næði samningum við Sovétríkin um að Finnland þyrfti ekki að hlíta því að sovésk kjarnorkuvopn yrðu flutt til Finnlands jafnvel þótt spenna ykist á þessum slóðum.
Ræður þeirra sem drógu í efa gildi einhliða yfirlýsinga um kjarnorkuvopnalaust svæði á Norðurlöndum einkenndust öðru fremur af vangaveltum um það hvaða skilyrði þyrfti að uppfylla til að kjarnorkuvopnalaust svæði á Norðurlöndum yki friðarhorfur. Almenn skoðun meðal hægri manna var að yfirlýsingar Norðurlanda um að þau væru kjarnorkuvopnalaust svæði og yrðu það um alla framtíð þyrftu að vera hluti stærra samkomulags um kjarnorkuvopn í Vestur-Evrópu og kjarnorkuveldin þyrftu að vera aðilar þessa samkomulags til að það hefði nokkurt gildi.
Þetta er í stórum dráttum það sem gerðist á nefndri ráðstefnu og ég vona að ég hafi skýrt hlutlaust frá henni.
Að lokum vil ég segja þetta, herra forseti. Hvað sem líður samþykktum um kjarnorkuvopnalaus svæði er hitt þó aðalatriðið að kjarnorkuvopnum verði aldrei beitt. Í því sambandi minni ég á það sem raunar hefur áður verið sagt að það er ekki aðalatriðið hvar kjarnorkuvopnin eru geymd heldur hvar þau lenda. Og ég minni líka á það að í þau skipti sem kjarnorkuvopnum hefur verið beitt var þeim beitt gagnvart þjóð sem engin kjarnorkuvopn hafði.