15.04.1986
Sameinað þing: 75. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3933 í B-deild Alþingistíðinda. (3539)
407. mál, utanríkismál
Steingrímur J. Sigfússon:
Herra forseti. Menn hafa nokkuð verið að mæðast yfir því að það sé svolítið liðið á kvöldið og eitthvað kannske fram á nóttina og þessi umræða standi enn yfir. Ég verð að segja eins og er, herra forseti, að ég vorkenni okkur ekki hætis hót. Hér eru mikilsverð mál til umræðu og annað eins hafa menn lagt á sig eins og að standa hér eitthvað fram í nóttina til að ræða þá hluti sem mikilsverðir teljast. Ég sé miklu frekar, herra forseti, ástæðu til að átelja þann bjálfadóm allt of margra hv. þm. að vera horfnir héðan úr þingsalnum og það jafnvel fyrir löngu þegar þessir alvarlegu hlutir eru hér til umræðu. Ég sæi út af fyrir sig full rök til þess að halda þessum fundi áfram nokkuð enn.
Ástæðan fyrir því að ég kem hingað aftur er fyrst og fremst ein. Það kom fram í svari hæstv. utanrrh. áðan við beinni spurningu frá mér að það umtal sem verið hefur á undanförnum misserum um áform um að reisa annan hernaðarflugvöll á Íslandi á við rök að styðjast. Forsvarsmenn herafla NATO hafa sýnt á því áhuga, komið áhuga sínum á framfæri má kannske orða það, við hæstv. utanrrh. eða embættismenn hans að fá að reisa hér slíkan herflugvöll. Og þar með er skýringin komin á umtali og umræðum um svonefndan varaflugvöll.
Ég vil, vegna þess einnig að hæstv. utanrrh. gat þess að þetta mundi birtast í skriflegu svari við fsp. á morgun sem þá lýtur þeim reglum að koma ekki til umræðu nema það sé sérstaklega tekið fram, nota þetta tækifæri sem gefst, vegna þess að utanríkismál eru til umræðu og á dagskrá, til að mótmæla öllum áformum af þessu tagi, um fjölgun hernaðarmannvirkja í landinu, um að draga ný byggðarlög og nýja landsfjórðunga inn í þessa útþenslu hernámsins. Og ég sé engin efnisleg rök fyrir því að við Íslendingar heimilum slíka framkvæmd.
Ég nefndi það áðan í minni ræðu að við gætum að öllum líkindum á farsælan hátt leyst úr því máli sem menn hafa nokkuð rætt um, þ.e. að búa betur en nú er út varaflugvöll fyrir okkar eigið millilandaflug og það flug annað sem á leið um nágrenni Íslands. Ég hef látið sérfróða menn gera á þessu fyrir mig sérstaka athugun, menn sem eru vel að sér um þróun þessara mála, tæknilega séð, og fylgjast með þeim dag frá degi gegnum sín störf. Þeir hafa m. a. vakið athygli mína á því að sú umræða sem reis fyrir nokkrum mánuðum og misserum síðan um nauðsyn þess að taka tillit til nýrrar gerðar flugvéla, tveggja hreyfla farþegaþota, við gerð áætlana í farþegaflugi yfir Atlantshafið, fari nú hjaðnandi vegna þess að þessar tegundir flugvéla hafa reynst svo öruggar við ítrekaðar prófanir og þá lengri reynslu sem á þær er komin að nú er verið að slaka á kröfum hvað varðar nálægð þeirra á hverjum tíma við næsta flugvöll. Þetta þýðir það að mati þessara sérfróðu manna að það mun ekki vera að vænta þrýstings úr þessari átt eins og sumir hafa haldið fram.
Í öðru lagi benda menn á það að þotuflug hefur verið stundað frá og til Akureyrarflugvallar um árabil og tekist vel.
Í þriðja lagi er nú komin reynsla á aðflug að Akureyrarflugvelli úr báðum áttum. Það var til skamms tíma þannig að ekki var talið tryggt aðflug fyrir stærri flugvélar úr suðri í blindflugi en nú hefur þetta verið um nokkurt skeið og gefist vel.
Enn fremur er á það bent að ný aðflugstækni sé í prófun sem að öllum líkindum muni gera það óhagræði sem landfræðilegar aðstæður skapa við Akureyrarflugvöll í dag að engu og það muni einfaldlega þýða það að allar venjulegar tegundir flugvéla geti athafnað sig þar með fullkomnu öryggi í flestöllum veðrum.
Þá er það sem eftir stendur hugsanlega það að það þarf að búa eitthvað betur að Akureyrarflugvelli en nú er, hugsanlega lengja flugbraut um einhver hundruð metra og breikka flughlöð og öryggissvæði. Það hlýtur að liggja í hlutarins eðli að það er sú lausn sem er langskynsamlegust og eðlilegust í þessu máli út frá sjónarhóli okkar Íslendinga og það sem kannske er betra, hún sýnist vera fullkomlega á okkar valdi og viðráðanleg af efnahagslegum ástæðum fyrir okkur sjálfa.
Með allt þetta í huga, herra forseti, alveg sérstaklega, þá vil ég endurtaka það að ég mótmæli öllum hugmyndum um að gefa nokkurn kost á því að í landinu verði settur á fót annar herflugvöllur. Einn er miklu meira en nóg. Einn er einum flugvelli of mikið til þessara nota. Það mundi þýða enn breytingu á aðstæðum á Íslandi ef við léðum máls á slíkum hlutum og enn alvarlegri breytingar vegna þess að þessi flugvöllur færðist enn norðar og yrði væntanlega bækistöð flugsveita sem þá gætu enn sótt norðar og nær þeim andstæðingi sem um er rætt í þessu efni og mundu þá auka á það árásar- og ógnarhlutverk sem herafli héðan frá Íslandi hefur nú þegar og ég kæri mig ekki nokkurn hlut um að eiga aðild að, allra síst þegar það blæs eins og nú gerir í þessum málum.
Ég fagna því út af fyrir sig að það hefur komið fram að þessi áform eru á döfinni. Ég fagna því að ekki er lengur við algeran draug að slást í þessum efnum en það er einmitt athyglisvert að orðrómur um það að slík áform væru uppi hefur nú verið til tals hér um líklega tveggja ef ekki þriggja ára skeið þegar það er í fyrsta skipti staðfest af hálfu þeirra manna sem fara með utanríkismálin á Íslandi. Þetta endurspeglar þá atburðarás sem verið hefur í hverju málinu á fætur öðru. Um árabil var búið að ræða t.d. um þá stjórnstöð sem í fyrsta skipti var viðurkennt að ætti sér stoð í raunveruleikanum á Alþingi Íslendinga í fyrravetur en er núna komin á framkvæmdaáætlun ári síðar. Það er ekki síður þessi atburðarás sem er ástæða til að hafa í huga og gagnrýna sérstaklega, burtséð frá eðli einstakra hernaðarmannvirkja í það og það skiptið.