16.04.1986
Efri deild: 77. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3937 í B-deild Alþingistíðinda. (3549)
268. mál, húsaleigusamningar
Frsm. (Jón Sveinsson):
Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir nál. félmn. um frv. til laga um breytingu á lögum um húsaleigusamninga, nr. 44 frá 1. júní 1979, sbr. síðari lög nr. 70 frá 30. maí 1984. Nefndin hefur rætt það frv. sem hér um ræðir og komist að þeirri niðurstöðu að það skuli samþykkt óbreytt. Um frv. er ekki mjög mikið að segja, þetta er fylgifrv. með frv. um breytingar á samningalögum nr. 7/1936. Undir nál. rita allir nefndarmenn félmn.