16.04.1986
Efri deild: 77. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3938 í B-deild Alþingistíðinda. (3556)

416. mál, Söfnunarsjóður Íslands

Frsm. (Eyjólfur Konráð Jónsson):

Hæstv. forseti. Hv. fjh.- og viðskn. hefur skoðað mál þetta og fengið sér ráðgjafa. Þetta er tiltölulega einfalt mál. Það hnígur að því að ríkisviðskiptabanki, sem viðskrh. ákveður, taki við öllum eignum og skuldum Söfnunarsjóðs Íslands. Söfnunarsjóður Íslands var stofnaður 1888 og var merk stofnun fyrr á árum, en hefur síðan nánast þornað upp. Í sjóðnum eru mörg hundruð smásjóðir, ýmiss konar minningarsjóðir og annað slíkt, sem eru kannske nokkrar krónur eða nokkur hundruð króna og enginn sinnir um. Heildarniðurstöðutala efnahagsreiknings er 4 millj. 793 þús. kr. og varasjóður er 112 þús. kr. Þessi sjóður á ekki neinu hlutverki að gegna lengur og nauðsynlegt er að fram fari innköllun á kröfum á sjóðinn og hann verði síðan í vörslu einhvers annars aðila.

Nefndarmenn skrifa allir undir nál. þar sem lagt er til að frv. verði samþykkt óbreytt.