05.11.1985
Sameinað þing: 11. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 412 í B-deild Alþingistíðinda. (357)

72. mál, jöfn staða og jafn réttur karla og kvenna

Félmrh. (Alexander Stefánsson):

Herra forseti. Til þess að fyrirbyggja allan misskilning vil ég geta þess að forusta BSRB taldi rétt að bíða með tilnefningu eftir landsþingi þeirra og í sambandi við það þing var ákveðið að skipa sérstakt jafnréttisráð eða jafnréttisnefnd á vegum BSRB og sú nefnd átti að gera tillögu um fulltrúa samtakanna í jafnréttisráð. Eftir því sem ég best fylgist með mun það vera um það leyti að komast í höfn að tilnefningin verði tilkynnt og sama dag og það verður gert verður ráðið formlega sett í gang og ég vonast til að fólkið sem þar hefur valist til forustu skilji sitt hlutverk og flýti þeirri áætlun sem hér er talað um og ég efast ekkert um að áhugi er fyrir því að svo verði.