16.04.1986
Efri deild: 77. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3947 í B-deild Alþingistíðinda. (3571)

54. mál, sveitarstjórnarlög

Forseti (Salome Þorkelsdóttir):

Útlit er fyrir að umræðum sé ekki lokið í þessu máli. Það kom hér fram í máli hv. 8. þm. Reykv. að hann taldi æskilegt að félmn. fjallaði um þessa brtt., sem hér er lögð fram, við 3. umr. sem er ekki óvenjulegt að gert sé án þess að nefndir fjalli endilega um þær. Það háttar nú svo einkennilega til, eins og vitum, að bæði formaður og varaformaður félmn. eru utan þings af eðlilegum ástæðum og þess vegna eru þeir ekki hér til þess að mæla fyrir því máli. Hins vegar hefur skrifari nefndarinnar, hv. 8. þm. Reykv., óskað eftir þessu.

Ég geri mér nú vonir um að nefndin, ef hún telur nauðsynlegt að koma saman, geti þá notað tímann núna eftir kl. 4. Annars verður það þá að koma í ljós síðar á fundinum. En ég hef hugsað mér að fresta þessari umræðu núna. Hv. 11. landsk. þm. hefur beðið um orðið. Að vísu eru ekki fleiri á mælendaskrá (Gripið fram í.) Er hv. 6. landsk. búinn að biðja um orðið einnig? Það hefur farið fram hjá forseta. Ég skal þá setja hann á mælendaskrá og það staðfestir þá enn frekar að umræðunni er ekki lokið. Því mun ég nú fresta þessu máli þar til síðar, þ.e. þegar fundastörf halda áfram hér eftir kl. 5 eins og áður hefur verið getið um.

Umr. frestað.