16.04.1986
Efri deild: 77. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3951 í B-deild Alþingistíðinda. (3576)

368. mál, selveiðar við Ísland

Forseti (Salome Þorkelsdóttir):

Áður en hv. 11. landsk. þm. tekur til máls vil ég benda á að það eru aðeins þrjár mínútur þar til við þurfum að fresta þessum fundi og mun þá forseti grípa inn í ræðu hv. þm. ef hann hefur ekki lokið og hann getur þá haldið áfram þegar fundinum heldur áfram í seinna skiptið.