16.04.1986
Efri deild: 77. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3953 í B-deild Alþingistíðinda. (3579)

54. mál, sveitarstjórnarlög

Karl Steinar Guðnason:

Virðulegi forseti. Ég met vissulega kjark hv. 11. landsk. þm. þótt ég harmi það heimilisböl sem hann á við að stríða í þingflokki Sjálfstfl. En það er rétt af honum að fylgja eftir sannfæringu sinni og við metum það fleiri hér.

Ég get tekið undir það með honum að frv. er veikt og gallað og ég get tekið undir það með aðalhöfundi þessa frv., sem sagði á nefndarfundi að vitanlega væri frv. klúður og vandræðalegt, enda fullt af málamiðlunum sem ekki væru við hæfi. Það markaði of óskýra stefnu sem hlyti að þurfa að breyta síðar meir ef þetta frv. yrði að lögum.

Hv. 3. þm. Vesturl. ræddi áðan um frv. og tók til sex atriði frv. til ágætis. Datt mér í hug að varla er þar nokkur tilbeiðslumaður í ríki Khomeinis sem lofar svo ágæti þess einstaklings sem gert var hér hvað varðar verk félmrh. En það verður að virða þá viðleitni þótt vissulega telji ég hana byggjast á misskilningi.

Hv. þm. spurði að því hvað við Alþýðuflokksmenn meintum með því að vilja hafa lágmarksíbúatölu í sveitarfélagi a.m.k. 400 manns. Sem svar við því vil ég lesa, með leyfi forseta, skýringar sem koma fram í frv. Reyndar má geta þess að nefnd sú er samdi frv. gerði ráð fyrir að lágmarksíbúafjöldi væri 400 manns. Síðan var því komið niður í 200 manns, nú er því komið niður í 50 manns, með sífelldum málamiðlunum. En í skýringum frv. segir:

„Í 5. gr. laga nr. 58/1961 er heimilt til handa ráðuneytinu að sameina hrepp nágrannahreppi að tillögu sýslunefndar hafi íbúatala í samfellt fimm ár verið lægri en 100. Þessi heimild mun aldrei hafa verið notuð.

Í árslok 1983 voru 53 sveitarfélög með færri en 100 íbúa og 16 með færri en 50 íbúa.

Ljóst er að fámennustu sveitarfélög landsins hafa ekki bolmagn til þess að halda uppi þeirri starfsemi sem nú er talin nauðsynleg í hverju sveitarfélagi, og verður því ekki hjá því komist að taka af skarið um það að ráðuneytið skuli við ákveðinn lágmarksfjölda íbúa sameina sveitarfélag nágrannasveitarfélagi. Um það má lengi deila við hvaða mark þessar aðgerðir skuli miðaðar en hér er því slegið föstu að sveitarfélag með færri íbúa en 50 sé þar á vegi statt að það sé þess eigi lengur megnugt að standa undir eðlilegri starfsemi sem sveitarfélag og verði því að frumkvæði ráðuneytis sameinað öðru eða öðrum sveitarfélögum.“

Áfram segir: „Þrátt fyrir þetta þykir rétt að halda opinni leið til undantekningar frá þessu ef sérstakar ástæður hindra að mati ráðuneytis.“

Ég bendi á það aftur að nefnd sú, er samdi þetta frv., taldi að miða ætti við 400 íbúa. Síðan var því komið niður í 200 og nú er talað um 50. Ég fullyrði að sveitarfélag með færri en 400 manns á mjög erfitt uppdráttar og ég tel að það styrki sveitarfélögin sem heildir og bæti hag íbúanna ef þau eru sameinuð.

Það er vitnað til þess að heimild hafi verið fyrir hendi til að sameina sveitarfélög. Sú heimild var aldrei notuð. Nú er talað um að marka ákveðna stefnu þar sem ríkisvaldið krefjist þess að sveitarfélagaheildir verði stærri. Ég tel að það sé rétt stefna og að þessi tala, sem kemur fram í frv., sé allt of lág. Ég minni á að annars staðar - það eru til sveitarfélög annars staðar en á Íslandi sem betur fer - hefur verið gengið í það að sameina sveitarfélög. T.d. í Noregi hefur það gengið vel og gefið góðan árangur.

Ég vil að Alþingi marki skýra stefnu í þessum efnum og taki á. Það á ekki endilega að hlusta alltaf á allt sem einhverjir smákóngar segja einhvers staðar, heldur verður löggjafinn að sjá svo um að sveitarfélögin séu einingar sem geti starfað af fullri reisn til hagsbóta fyrir fólkið í landinu.

Ég ætla ekki að endurtaka það sem ég sagði hér í fyrri umræðu. Þó vil ég minnast á það að það hefði verið mjög æskilegt að tekjustofnalög hefðu fylgt þessari umræðu. Einnig hefði verið mjög æskilegt að gerð hefði verið betur grein fyrir því hvernig landshlutasamtök eiga að starfa. Ég minni á þær röksemdir sem fram hafa komið hjá hinum ýmsu umsagnaraðilum um það að menn viti ekki hvernig með þessar svokölluðu héraðsnefndir skuli fara og þá síst hvernig fara skuli með rétt minni hluta í sameiginlegum sveitarsamtökum. Þau landshlutasamtök, sem til þessa hafa starfað, hafa ekki gert því skil. Ég tel að því þurfi að gera skil og löggjafinn eigi að gera það í samráði við sveitarfélögin.

Þess vegna tel ég að mikið verk sé óunnið og ástæðulaust að samþykkja þetta frv. nú að sinni, það þarf að gera á því gagngerðar endurbætur. Enn minnist ég á það að mér eru það vonbrigði að félmrh., sem er manna kunnugastur sveitarstjórnarmálum í landinu, hefur verulegt vit á þeim, skuli una við þær málamiðlanir sem þetta frv. einkennist af.