16.04.1986
Efri deild: 77. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3959 í B-deild Alþingistíðinda. (3586)
320. mál, fasteigna- og skipasala
Frsm. (Jón Kristjánsson):
Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir áliti allshn. um frv. til l. um fasteigna- og skipasölu.
Nefndin hefur rætt frv. og kallað til viðræðu Ármann Snævarr fyrrv. hæstaréttardómara og lögfræðingana Jón Sveinsson og Sigurbjörn Magnússon, en þeir voru ráðgjafar við undirbúning frv.
Frv. fjallar um fastmótaðri reglur um fasteigna- og skipasölu. Var það einróma álit nefndarinnar að það horfði til bóta. Hún leggur til að frv, verði samþykkt óbreytt. Þó vil ég geta þess að nefndinni hafa borist ábendingar um smávægilegar breytingar á tveimur greinum frv. sem ég vildi óska eftir að við fengjum ráðrúm að ræða milli 2. og 3. umr. og yrðu þær þá væntanlega lagðar fram sem brtt. við 3. umr. Nefndin leggur til að frv. verði vísað óbreyttu til 3. umr.