16.04.1986
Efri deild: 77. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3961 í B-deild Alþingistíðinda. (3590)
400. mál, verslun ríkisins með áfengi
Ragnar Arnalds:
Virðulegi forseti. Ég hef ekki skrifað undir nál. sem nefndin hefur gefið út vegna þess að ég var ekki viðstaddur fund hennar. Ég sé það eftir að mál þetta er komið til umræðu að ýmsar spurningar vakna í sambandi við það, sem ég hefði kosið að hefðu verið athugaðar frekar, en mér er einum um að kenna í þeim efnum vegna þess að ég var ekki á nefndarfundinn og bar ekki fram þessar spurningar.
Það er ljóst að viss rök eru borin fram fyrir því að heimild sé veitt af því tagi sem ræðir um í þessu frv. Á það er bent að sterkir drykkir séu framleiddir af íslenskum mönnum í nálægu landi. Þarna geti verið um útflutningsframleiðslu að ræða og atvinnuskapandi rekstur hér á landi. Menn spyrja hvort ekki sé eðlilegast að veita heimild af þessu tagi til framleiðslu á sterkum drykkjum hér innanlands úr því að starfsemi af þessu tagi fer fram á vegum íslenskra aðila erlendis.
En eins og ég segi vakna óhjákvæmilega ýmsar spurningar í þessu sambandi. Ein er sú hvernig eftirliti verður háttað og hversu margar heimildir verða veittar af þessu tagi. Það getur auðvitað ekki dulist neinum að talsverð misnotkunarhætta hlýtur að skapast ef margar heimildir verða veittar til framleiðslu á sterkum drykkjum hér innanlands og eftirlit er kannske bágborið.
Við búum við sérstakt kerfi í áfengissölumálum þar sem ríkið hefur einkarétt til sölu og framleiðslu áfengra drykkja og við höfum ákveðið víðtækar sölutakmarkanir þannig að þessi vara er ekki á markaðnum með svipuðum hætti og aðrar vörutegundir. Það liggur því í augum uppi að hér á Íslandi hljóti að vera nokkuð öðruvísi reglur sem gilda einnig um framleiðslu á sterkum drykkjum og ekki eðlilegt að hver og einn geti fengið til þess heimild.
Ég minni líka á að hér er um mjög víðtæka heimild að ræða fyrir ráðherra. Hann virðist geta gefið út leyfi af þessu tagi nokkuð takmarkalaust án þess að bera það undir nokkurn annan. Ráðherrar eru misjafnir. Þegar einu sinni er búið að veita leyfi af þessu tagi stendur það áfram. Ráðherra, sem væri reiðubúinn að veita hömlulaust mörg leyfi af þessu tagi, gæti skapað býsna mikinn glundroða og mikla áhættu á þessu sviði.
Einnig tek ég undir það með hæstv. dómsmrh. að ekki virðist einsýnt að fjmrh. eigi að hafa þessa heimild því að vald hans yfir áfengismálum er fyrst og fremst fólgið í því að hann stjórnar Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins sem fjárvörslumaður ríkisvaldsins, en það eru aðrir ráðherrar sem fara með aðrar hliðar áfengismálanna, t.d. bindindismálin og heilbrigðishliðina. Þegar höggvið er svona stórt skarð í það kerfi sem gildir í sölumálum áfengis hér á landi sýnist manni ekki sjálfgefið að það vald eigi að vera í höndum fjmrh., og það kannske hans eins, án þess að nokkur geti þar haft nein áhrif á.
Mér sýnist því að ýmsir lausir endar séu á þessu máli. Ég hefði kosið að málið hefði verið til lengri og nánari meðferðar. Ég tel ekki tímabært að afgreiða þetta mál eins og það liggur hér fyrir og mun því ekki greiða því atkvæði.