16.04.1986
Efri deild: 77. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3962 í B-deild Alþingistíðinda. (3591)

400. mál, verslun ríkisins með áfengi

Frsm. (Eyjólfur Konráð Jónsson):

Hæstv. forseti. Mér er ljúft að svara fsp. hæstv. dómsmrh. þar sem hann spyr hvert sjónarmið okkar hafi verið er við heyrðum álit Tómasar Helgasonar um áfengismálin. Raunar var Ólafur Haukur Árnason einnig á þessum fundi. Það er skemmst frá að segja að báðir lögðust þeir gegn samþykkt þessa frv., töldu að þarna væri farið inn á nýjar brautir og vitnuðu nokkuð til þess, annar þeirra a.m.k., að þetta æli á gróðafíkn í sambandi við útbreiðslu áfengis. Ég hygg að flestir þingdeildarmenn, a.m.k. allir nefndarmenn í bæði fjh.- og viðskn. og allshn., þekki þessi sjónarmið, hafi heyrt þau varðandi önnur mál, en það var ekki síður varðandi þetta sem báðir þessir ágætu gestir nefndarinnar lögðu mikla áherslu á að þeir væru andvígir þessu máli.

Svar okkar við því kemur fram í nál. Við teljum að rök þeirra séu ekki þess eðlis að rangt sé að lögfesta frv. Nál. er undirritað af fimm nefndarmönnum og Stefán Benediktsson var viðstaddur fundi nefndarinnar og er samþykkur áliti þessu. Þeir sem undirrita nál. eru Eyjólfur Konráð Jónsson, Eiður Guðnason, Jón Kristjánsson, Sturla Böðvarsson og Egill Jónsson.

Ég veit ekki hvort það hefur þýðingu að ég reyni að rekja frekar röksemdir dr. Tómasar Helgasonar. Hann hefur nýlega birt ítarlega grein í Morgunblaðinu þar sem sum af þessum sömu rökum, og flest held ég, komu fram. Það var þó út af fyrir sig ekki nema gott og ánægjulegt að fá þau endurtekin og áréttuð í nefndinni. En það er skoðun okkar og sannfæring, sem undirritum þetta nál. og mælum með samþykkt frv., að þau rök hafi ekki breytt þeirri meginniðurstöðu að frv. beri að samþykkja.