16.04.1986
Efri deild: 78. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3969 í B-deild Alþingistíðinda. (3618)

248. mál, póstlög

Eiður Guðnason:

Virðulegi forseti. Ég vil leyfa mér að mæla hér fyrir örlítilli brtt. við 3. umr. þessa máls. Brtt. er á þá leið að 3. mgr. 2. gr. orðist svo:

„Til fjármunapóstsendinga teljast greiðsluviðskipti með millifærslum (póstgíró) og inn- og útlánastarfsemi fyrir póstgíróreikningshafa.“

Ég vil leyfa mér að rökstyðja þetta örfáum orðum. Póstgíróstofan er að mörgu leyti rekin eins og banki eða sparisjóður fyrir þá sem þar eru með reikninga. Þar eru mjög margir með launareikninga. Það var a.m.k. svo að þorri starfsmanna Pósts og síma fékk sín laun greidd inn á launareikninga hjá Póstgíróstofunni.

Í nágrannalöndunum í kringum okkar er póstgíróþjónustan, sem er í höndum póstþjónustunnar, rekin og starfar eins og banki.

Tilgangurinn með þessari litlu breytingu er að tryggja að reikningshafar hjá Póstgíróstofunni eigi kost á hliðstæðri þjónustu og bankar og sparisjóðir veita, þ.e. lánastarfsemi, að Póstgíróstofunni verði heimilað að veita sínum reikningshöfum lán, þeim sem þar eru með launareikninga, eins og bankar,og sparisjóðir gera.

Mér er fullljóst að um þetta þarf að setja ákvæði í reglugerð eins og ráðherra ber að gera skv. póstlögunum um ýmis atriði sem þar er um fjallað. En til þess að þessi heimild sé til staðar verða að vera ákvæði um hana í lögum.

Ég held að þetta sé hið þarfasta mál. Á ýmsum stöðum, þar sem ekki starfar banki eða peningastofnun, starfar a.m.k. pósthús sem gæti þá sinnt þessari þjónustu. Ég geri ekki ráð fyrir að þetta yrðu stór viðskipti, þetta yrði smáfyrirgreiðslulán til launafólks sem væri með sína launareikninga hjá þessari stofnun. Ég vona að hv. deildarmenn sjái sér fært að samþykkja þessa litlu breytingu.