16.04.1986
Efri deild: 78. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3970 í B-deild Alþingistíðinda. (3621)
248. mál, póstlög
Stefán Benediktsson:
Frú forseti. Varðandi þá till., sem hv. 5. landsk. þm. var hér að kynna, þá vil ég láta það koma fram hér strax í umræðunni að ég er henni mótfallinn. Í sjálfu sér er póstgíróþjónusta með þeim hætti sem hann lýsti hér ekkert óalgengt fyrirbrigði í nágrannalöndum okkar. Ég tel bara gegna svolítið öðru máli hér á Íslandi. Ég er þeirrar skoðunar að við þurfum ekki einn ríkisbankann enn. Ef okkar bankakerfi væri samansett af frjálsum bönkum horfði það svolítið öðruvísi við í mínum huga. En að svo komnu máli tel ég það vera að bera í bakkafullan lækinn að bæta enn einum ríkisbankanum við.