16.04.1986
Efri deild: 78. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3970 í B-deild Alþingistíðinda. (3623)
248. mál, póstlög
Skúli Alexandersson:
Virðulegi forseti. Eins og kom fram hjá hv. 3. þm. Suðurl. var þessi till. rædd í samgn. Þar var vilji fyrir því að flytja till. sem þessa, mæla með því að Póstgíróstofunni væri veitt þessi heimild. Nefndarmenn vildu þó hafa vissan umþóttunartíma og skoða þetta mál betur. Við samþykktum að málið færi til 2. umr. án þess að þessi brtt. kæmi fram og við hefðum því vissan umþóttunartíma til að skoða málið.
Fram á síðustu stundu var meiningin sú að þetta yrði skoðað betur hjá þingflokkunum. En eftir að búið var að taka málið hér á dagskrá hefur náttúrlega orðið að hrökkva eða stökkva. Hv. þm. Eiður Guðnason hefur sem sagt stokkið í málinu og lagt fram þessa till. án þess að um það væri að ræða að við aðrir þm., sem vorum að fjalla um þetta mál og vorum meðmæltir þessu, hefðum möguleika til að standa þar að.
Ég vil minna á að bent var á þennan þátt strax við 1. umræðu hér í deildinni um þetta mál. Bæði hv. þm. Eiður Guðnason og ég undirstrikuðum að þetta væri þáttur sem væri orðinn nokkuð gildur í starfsemi póstgíróstöðva í nágrannalöndunum og að það hefði verið í uppkasti þeirrar nefndar, sem undirbjó þessi lög, till. um að þessi þáttur væri tekinn upp hjá Póstgíróstofunni.
Mín afstaða í sambandi við þetta skapast m.a. af því að nú á síðustu tímum hefur ekki verið andæft neitt gegn því að lánastofnanir risu upp næstum því á hverju götuhorni, ekki aðeins að það væri í nafni banka, heldur væru ýmsir einkaaðilar nú farnir að höndla með fjármagn á ýmsa vegu. Þar af leiðandi taldi ég eðlilegt og sjálfsagt að þessi stofnun nyti þess ekki aðeins að sinna millifærsluþættinum og móttöku peninga, heldur nyti hún þess einnig að fá að veita hina þjónustuna, útlánaþjónustuna, innan þeirra marka sem þetta kerfi býður upp á.
Ég hafði þá hugmynd að við gætum unnið að því að tryggja þessu máli meiri hluta hér í þessari hv. deild en einhverra hluta vegna fór þetta þannig úr böndum hjá okkur að málið var lítið unnið á þeim tíma sem við höfðum. Málið kemur því svolítið öðruvísi að en ég bjóst við að gæti orðið.
Ég er ekki að gagnrýna hv. þm. Eið Guðnason fyrir að hann skyldi hafa stokkið, eins og ég sagði áðan. Ég held að það hafi verið gott að málið fór ekki fram hjá deildinni án þess að þess væri getið að þessi umræða fór fram í nefndinni og einnig það að ég hef grun um, veit það reyndar, að hæstv. samgrh. var því alls ekki mótfallinn að þessi till. yrði lögð hér fram og að hann sé jafnvel málinu samþykkur. Hv. þm. Egill Jónsson veit reyndar frekar um þetta, en hann fjallaði um þetta mál við hæstv. samgrh.
Fyrst svo er komið að till. er komin hér fram mun ég standa að samþykkt hennar þó að ég hefði talið það eðlilegra og betra að við hefðum getað tryggt það að um þetta mál væri ekki fjallað hér nema við værum nokkurn veginn öruggir um að málið fengi jákvæða afgreiðslu. En ég viðurkenni það, sem hv. 3. þm. Suðurl. sagði, að um málið var ekki nógu vel fjallað í nefndinni og margt er óljóst varðandi framkvæmd þessarar starfsemi.