16.04.1986
Efri deild: 78. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3972 í B-deild Alþingistíðinda. (3625)
248. mál, póstlög
Eiður Guðnason:
Virðulegi forseti. Aðeins örfá orð. Þegar þetta mál kom hér til 1. umr. nefndi ég þennan möguleika, að reikningshafar hjá Póstgíróstofunni ættu að eiga kost á einhverri lánafyrirgreiðslu. Í umræðunum kom síðan fram að nefndin, sem samdi frv., lagði til að sá háttur yrði hafður á, eins og raunar hefur komið fram hjá hv. formanni samgn., 11. landsk. þm. Síðan var það ákvæði fellt niður við athugun málsins í ráðuneytinu.
Til þess að það liggi alveg skýrt fyrir hvernig þessi till. kom inn í þessa umræðu núna þá sat ég fund samgn. í síðustu viku, er fulltrúi Alþfl. þar, hv. 6. landsk. þm., var fjarverandi, og lýsti þar þeirri skoðun minni að þetta ætti að vera eitt af hlutverkum Póstgíróstofunnar, einkanlega við þær aðstæður, sem lýst var hér áðan, þar sem engin peningastofnun er.
Þessum hugmyndum var ákaflega vel tekið í nefndinni, miklu betur en ég átti von á. Ég var mjög ánægður með það og niðurstaðan fannst mér verða sú að nefndin mundi bara flytja þetta sem brtt. Síðan var frá því horfið en þá voru aftur aðrir í nefndinni sem vildu gjarnan flytja þessa till. Þess vegna aðhafðist ég ekkert í málinu, enda var fulltrúi Alþfl. í nefndinni þá kominn aftur og búinn að taka sitt sæti þar. Ég átti því ekki neins konar aðild að málinu í nefndarstörfunum.
Ég hélt því satt að segja að málið væri í höfn og allt í góðu gengi. Ég áttaði mig svo á því hér áðan þegar málið kom til 2. umr. að þessari till. hafði ekki verið dreift og það var ekki ætlunin að hún kæmi fram við 2. umr. heldur þá 3.
Síðan gerðist það, sem ég hafði ekki alveg búist við, að boðaður var nýr fundur og þá var þetta mál tekið til 3. umr.. Mér var tjáð að málið yrði tekið til 3. umr. á þessum fundi og þá var ekki um neinn annan kost að ræða en að flytja þessa hugmynd sem skriflega brtt. ef hún átti hér að koma fram. Í ljósi þess sem ég hafði sagt, í fyrsta lagi við 1. umr. málsins og í öðru lagi í nefndinni, fannst mér óhjákvæmilegt að flytja þetta í formi skriflegrar brtt. hér við 3. umr. enda þótt ég tæki fyllilega undir það, sem hv. 4. þm. Vesturl. sagði, að vissulega hefði þurft að undirbúa þetta mál betur, undirbúa jarðveginn betur í nefndinni og hér í deildinni. En til þess var bara ekki gefið neitt ráðrúm.
Ég ræddi þetta mál að vísu ekki persónulega við forseta en mér var tjáð hér frammi á ganginum að málið yrði tekið til 3. umr. núna. Sá kostur er því einn fyrir hendi að flytja málið í þessari mynd. Ég held að það sé skynsamlegt að gera þessa breytingu og auðvitað verður hér aldrei um neina lánastarfsemi í stórum stíl að ræða. Til þess standa engin efni.
En ég get t.d. sagt að ég hafði launareikning hjá Póstgíróstofunni í nokkuð langan tíma og það var að mörgu leyti þægilegra og hagkvæmara en að skipta við banka nema að því leyti að það var erfitt fyrir þann einstakling sem ekki er með launareikning í banka að óska þar eftir lánafyrirgreiðslu. Þannig er nú kerfið.
Ég vil biðja hv. deildarmenn að skoða nú hug sinn vel áður en menn hafna þessu heimildarákvæði sem er aðeins heimildarákvæði og stjórnvöld hafa í hendi sér að ákveða það nánar í reglugerð hvernig eða hvort þetta verður gert. Með þessari till. er ekki verið að segja að það eigi að gera þetta heldur er þetta, eftir því sem ég hef skilið og legg til, aðeins heimildarákvæði um að Póstgíróstofunni verði þetta heimilt.
Hér er ekki verið að tala um neina útþenslu í kerfinu. Póstþjónustan er með útibú víðar en nokkur banki og annast margháttaða fjármálaafgreiðslu og fjármálafyrirgreiðslu við almenning. Ég held að þetta væri þvert á móti til mikilla þæginda fyrir allan almenning án þess að það yrði um einhverja óskaplega útþenslu á póstþjónustunni að ræða. Ég hef ekki nokkra trú á því og yfirvöld hafa það þá í hendi sér að hafa stjórn á þeirri útþenslu. Auðvitað hafa yfirvöld það miklu betur í hendi sér og stjórnvöld að stjórna þessari útþenslu en bankakerfinu sem stjórnvöld ráða ekkert við.
Ég ítreka að ég skora á hv. deildarmenn að skoða vel hug sinn til þessa máls áður en gengið er til atkvæða innan fárra mínútna.