16.04.1986
Neðri deild: 82. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3985 í B-deild Alþingistíðinda. (3665)

260. mál, samningsgerð, umboð og ógildir löggerningar

Samgrh. (Matthías Bjarnason):

Herra forseti. Frv. það sem hér liggur fyrir er samið á vegum viðskrn. Meginmarkmið frv. er tvíþætt. Því er ætlað að bæta úr réttarstöðu neytenda f viðskiptum og sporna gegn misnotkun á reglunni um samningsfrelsi sem er ein af grundvallarreglum íslensks fjármunaréttar. Í þessu skyni er lagt til í frv. að lögfest verði nýtt ákvæði, almennt ógildingarákvæði, í III. kafla laga nr. 7/1936, um samningsgerð, umboð og ógilda löggerninga, sem venjulega eru nefnd samningalögin. Þetta ákvæði mun veita íslenskum dómstólum víðtækari heimildir til ógildingar eða leiðréttingar ósanngjarnra samninga en gildandi réttarreglur heimila. Er þar einkum um tvær breytingar frá gildandi rétti að ræða. Annars vegar mun ákvæðið taka til allra samningstegunda á sviði fjármunaréttar og hins vegar almennt veita heimild til að taka tillit til aðstæðna sem ekki voru fyrir hendi við samningsgerð ef talið yrði að ógilda eða leiðrétta þyrfti slíka samninga skv. ákvæðunum.

Samhliða þessari breytingu eru í frv. lagðar til þrjár aðrar breytingar sem gerðar eru á III. kafla samningalaga. Í fyrsta lagi er lagt til að 31. og 35. gr. núgildandi samningalaga verði felldar úr gildi, enda eru þær óþarfar sé hið nýja ákvæði lögleitt, í öðru lagi er lagt til að 7. gr. laganna frá 1960, um bann við okri, dráttarvexti o.fl., verði flutt í III. kafla samningalaganna og í þriðja lagi er lagt til að gerðar verði breytingar á 37. gr. núgildandi samningalaga og efni hennar og orðalag þannig samræmt hinu nýja ógildingarákvæði.

Í Ed. varð nefndin sammála um afgreiðslu þessa frv. og gaf út sameiginlegt nál. Þar var gerð ein breyting við 6. gr.: Við mat skv. 1. málsgr. 6. gr. skal líta til efnis samnings o.s.frv., eins og kemur fram í því nál.

Herra forseti. Ég legg til að að lokinni þessari umræðu verði þessu frv. vísað til 2. umr. og hv. fjh.- og viðskn.