16.04.1986
Neðri deild: 83. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 4009 í B-deild Alþingistíðinda. (3680)
54. mál, sveitarstjórnarlög
Pálmi Jónsson:
Herra forseti. Þegar frv. þetta var afgreitt við 3. umr. í þessari hv. deild voru felldar þær brtt. sem ég hafði flutt við frv. og lutu að því m.a. að taka upp í frv. reglur um lögbundið samstarf sveitarfélaga á grundvelli sýslunefnda. Ég sé að í Ed. hefur verið gerð breyting á frv. Sú breyting er ærið efnislítil en lengir í snörunni fyrir sýslunefndir um eitt ár. Efnislega hefur sú breyting ekki þýðingu varðandi þetta frv. og enn standa í frv. þau efnisatriði sem ég gagnrýndi mjög við meðferð málsins í þessari hv. deild.
Ég ætla ekki að ítreka þá gagnrýni mína. Ég segi aðeins frá því að ég verð æ betur var við það meðal sveitarstjórnarmanna víðs vegar af landinu að þeir undrast að hv. Alþingi skuli hugsa sér að afgreiða þetta mál í því formi sem það er og lýsa fjölmargir þeirri skoðun sinni að þeim hafi ekki dottið í hug og hafi raunar ekki trúað því að frv. gengi fram í þeim búningi sem það nú er. Þetta á vitaskuld við um það efni sem ég hef gagnrýnt mest við meðferð málsins í þessari hv. deild.
Ég vil því gera tilraun til, með því að leggja fram brtt., sem flutt er á þskj. 901 af mér og hv. 1. þm. Vesturl., að leita eftir því hvort hv. þingdeild fellst ekki á að fella þau ákvæði frv. sem eru í svo ófullkomnum búningi sem ég hef lýst á fyrri stigum þessa máls að ég tel ekki viðunandi, en jafnframt að taka upp í frv. breytingar á ákvæði til bráðabirgða sem hljóði svo, með leyfi hæstv. forseta:
„Tölul. I orðist svo:
Ríkisstjórnin skal láta fara fram endurskoðun á þeim ákvæðum sveitarstjórnarlaga er lúta að frjálsu og lögbundnu samstarfi sveitarfélaga og leggja frv. ti11aga um þau efni fyrir næsta reglulegt Alþingi.
Þrátt fyrir ákvæði 2. málsgr. 121. gr. skal IV. kafli sveitarstjórnarlaga, nr. 58/1961, gilda þar til ný ákvæði hafa verið lögfest um það efni.“
Með þessum hætti skapaðist svigrúm fyrir hæstv. ríkisstj. og fyrir Alþingi að leita eftir því hvort ekki mundi nást samkomulag um þau efnisatriði frv. sem mest hefur verið deilt um. Ég hygg að unnt sé að ná því samkomulagi ef vilji er fyrir hendi, samkomulagi sem væri á þann máta að við stæðum ekki frammi fyrir því, sem ég tel niðurstöðu þessa máls verði ekki við þessu orðið, að hin veikari og minni sveitarfélög víðs vegar um strjálbýli landsins standi verr í stakk búin til að fjalla um sín mál eftir en áður og verr í stakk búin til að taka við verkefnum sem ríkisvaldið kann að vilja fela þeim.
Ég skal ekki hafa um þetta langt mál. Að sjálfsögðu hlýtur meiri hluti Alþingis að ráða, en ég hef úr þessum ræðustól varað sterklega við að samþykkt verði frv. í þeim búningi sem það er í, þ.e. sérstaklega þau ákvæði frv. sem fjalla um samstarf sveitarfélaga, einkanlega þó þann þátt þeirra mála sem varðar lögbundið samstarf þeirra.
Ég skal svo, herra forseti, ekki tefja þetta mál. Eðlilegt er að Alþingi fái að segja til um hvernig það vill standa að þessu máli. En ég lýsi enn áhyggjum mínum yfir því ef þessar till. verða ekki samþykktar og að sjálfsögðu ábyrgð á hendur þeim sem að því vilja standa á þann máta.