17.10.1985
Sameinað þing: 4. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 57 í B-deild Alþingistíðinda. (37)

Stefnuræða forsætisráðherra og umræða um hana

Fjmrh. (Þorsteinn Pálsson):

Herra forseti. Góðir Íslendingar. Setning Alþingis í síðustu viku hófst að gamalli og góðri venju með guðsþjónustu í Dómkirkjunni. Við það tækifæri minnti séra Heimir Steinsson Þingvallaprestur og þjóðgarðsvörður okkur á að stjórnarathafnir og stjórnmálaákvarðanir lúta að manninum sjálfum, fólkinu sem byggir landið. Það er bæði gömul saga og ný að hugtök hagfræðinnar og vopnaburður stjórnmálanna hafa tilhneigingu til þess að slitna úr tengslum við daglegt líf þjóðarinnar. Menn koma m.ö.o. ekki alltaf auga á hin beinu tengsl milli stjórnmálaumræðunnar og hversdagslegra viðfangsefna heimilanna.

Sérhver fjölskylda í landinu vill búa í haginn fyrir sig. Það er verkefni Alþingis og ríkisstjórnar að búa í haginn fyrir þjóðarheildina, að vinna að því markmiði að mönnum finnist gott að vera Íslendingar. Sigurður Nordal segir svo í Íslenskri menningu, með leyfi forseta:

„Ef mannúð ein og miskunnsemi væru ráðandi í heiminum samfara viturlegu skipulagi og nægri þekkingu til alls konar meinabóta, yrði lífið að vísu þægilegt, en reynsla mannsins svo fátækleg, að líklega yrði hann dauðleiður á öllu saman. En til jarðneskrar paradísar á mannkynið langt í land. Um margt er nauðugur einn kostur að gera hæpnar tilraunir án þess að þær séu nefndar því nafni. Svo er um læknisfræði og uppeldisfræði, að þeim verður að beita samkvæmt þekkingu hvers tíma, þótt fálmandi séu. Stjórnmál öll og þjóðfélagsmál eru á enn greinilegra tilraunastigi.“

Þessi tilvitnuðu ummæli eru áminning um það mikilvæga hlutverk stjórnmálanna að ráða bót á meinsemdum þjóðfélagsins, en þau minna okkur einnig á að lífið sjálft er eins konar tilraun og án reynslu af bæði góðu og illu yrði mannlífið harla sviplaust. Það sem mestu máli skiptir er að við kunnum að meta og hagnýta reynsluna til þess að feta okkur fram á við til betri framtíðar og bættra lífskjara.

Þó að við Íslendingar séum stórlyndir viljum við búa sáttir hver við annan. Við viljum hafa jafna möguleika hver og einn og við viljum njóta frelsis til þess að nýta hugvit okkar og atgervi.

Það hefur á ýmsu gengið í íslensku þjóðlífi á undanförnum árum. Óðaverðbólga, misjöfn aflabrögð og um tíma erfiðar aðstæður á erlendum mörkuðum hafa sett mark sitt á lífskjör fólks og hag heimilanna í landinu. Þegar á móti hefur blásið fyllast menn oft svartsýni. Við verðum á hverjum tíma að vera raunsæ, en mestu skiptir þó að missa aldrei trúna á getu þjóðarinnar og möguleika til þess að vinna okkur út úr erfiðleikunum. Við leysum aldrei viðfangsefni og bætum aldrei meinsemdir, sem grafið hafa um sig í efnahags- og þjóðlífi, eins og hendi sé veifað. Einfaldar pennastrikslausnir eru ekki til í því efni og menn mega ekki falla fyrir þeim áróðri sem hér hefur verið fluttur, m.a. af Ragnari Arnalds, Jóhönnu Sigurðardóttur og Jóni Baldvini Hannibalssyni, þegar þau hafa borið það á borð að þau ein hafi þá mannúð, miskunnsemi og vit sem geti búið þjóðinni mannlega paradís. Íslendingar hafa einfaldlega kynnst öðru af flokkum þeirra í búð reynslunnar.

Þó að þjóðin hafi gengið í gegnum miklar þrengingar hefur ýmislegt verið að snúast okkur í haginn, bæði vegna þess að við höfum tekið upp breytta stjórnarhætti og á þann veg fært mál til betri vegar og eins vegna hins, að ytri aðstæður hafa verið að snúast okkur í hag. Sjávarhiti hefur aukist og aflabrögð þar af leiðandi farið batnandi og staða okkar á erlendum mörkuðum hefur verið að styrkjast. Þegar á allt er litið eigum við mikla möguleika, möguleika á því að gera það auðveldara og betra að vera Íslendingur. En jafnljóst er að það er auðvelt að glutra árangrinum niður og gera að engu það sem áunnist hefur.

Ég ætla að nefna hér nokkur atriði sem horfa til bóta vegna þeirra breytinga sem orðið hafa á undanförnum tveimur árum með breyttri stjórnarstefnu.

Ég nefni í fyrsta lagi þann mikla árangur sem náðst hefur við að lækka verðbólgu. Verðbólgustigið hefur verið fært niður um meira en 100 prósentustig. Við höfum þó ekki náð því jafnvægi sem nauðsyn krefur. Hinu verður ekki á móti mælt að í þessu efni hafa orðið alger umskipti. Verðbólga er ekki bara hagfræðihugtak. Verðbólga er ekki einungis bitbein fyrir stjórnmálamenn. Hún snýst ekki einvörðungu um hundraðstölur. Verðbólgan snertir beina hagsmuni hverrar fjölskyldu í landinu, áframhaldandi ringulreiðarverðbólga hefði ekki einungis sligað atvinnureksturinn og dæmt fjölmarga til atvinnuleysis, heldur hefði hún einnig leitt til stöðugt rýrnandi lífskjara eins og raun varð á þegar það ástand ríkti.

Það var beinlínis skilyrði fyrir því að við gætum lagt grundvöll að nýrri sókn til aukins hagvaxtar að verðbólgan yrði færð verulega niður. Auðvitað kostaði það tímabundnar fórnir og þessi árangur náðist með skilningi og samstöðu fólksins í landinu. En við höfum núna náð því að geta viðhaldið kaupmætti á þann veg að ráðstöfunartekjur heimilanna hafa aukist á þessu ári og horfur eru á að breytingar á kauptöxtum verði nokkurn veginn í samræmi við almennar verðlagsbreytingar.

Aukinn stöðugleiki í verðlagsmálum og aðhald í gengismálum hafa haft margs konar jákvæð áhrif á rekstur atvinnufyrirtækja. Daglegar gengisfellingar í formi gengissigs höfðu dregið mjög úr því eðlilega aðhaldi sem stjórnendur atvinnufyrirtækja verða að hafa við allar ákvarðanir, bæði að því er lýtur að fjárfestingu og rekstri. Stjórnendur atvinnufyrirtækja eiga að vera ábyrgir gerða sinna og þeir þurfa auðvitað að finna fyrir því að svo sé.

Ég er þeirrar skoðunar að stjórnendur atvinnufyrirtækja á Íslandi hafi brugðist rétt við nýjum aðstæðum. Hitt má ljóst vera að aðlögun að þeim hlýtur að taka nokkurn tíma. En bætt stjórnun mun þegar til lengdar lætur skila þjóðinni auknum arði og bæta með raunverulegum verðmætum hag launamanna.

Í annan stað vil ég nefna þau miklu umskipti sem orðið hafa með því að nú er sparnaður farinn að aukast á ný á Íslandi. Um langt árabil hefur sparnaður farið þverrandi með ári hverju. Í kjölfar breyttrar stefnu í peningamálum hefur það nú hins vegar gerst að sparnaður er að aukast. Þetta er mikilsverð vísbending um að við erum á réttri leið. Sparnaður er forsenda þess að þjóðin vinni sig út úr örðugleikunum. Alþb. hafði meðan það var í ríkisstjórn forustu fyrir þeirri gegndarlausu skuldasöfnun sem við erum nú að súpa seyðið af. Þá var kjörorðið að eyða en ekki spara. Nú eru Íslendingar farnir að spara og það gefur okkur vonir um að við getum í auknum mæli notað eigið aflafé til þess að leggja grundvöll að nýsköpun í atvinnumálum og auknum hagvexti. Stjórnarandstaðan krefst þess nú að breytingar verði gerðar á þeirri stefnu sem leitt hefur til þessa árangurs. Hún vill snúa þessu hjóli tímans við.

Í þriðja lagi vil ég nefna að okkur hefur tekist að ná nokkurn veginn jöfnuði á milli þróunar lánskjara og launa. Á síðustu misserum fyrri ríkisstjórnar var verulegt misgengi á milli launa og lánskjara. Það kom með miklum þunga niður á fjölmörgum heimilum í landinu. Margar fjölskyldur, ekki síst ungt fólk, sem höfðu verið að koma sér upp þaki yfir höfuðið í fyrsta sinn urðu fyrir miklum áföllum af þessum sökum og margir eru enn að glíma við þann vanda. En með lækkun verðbólgunnar hefur á ný tekist að ná jöfnuði milli launa og lánskjara. Fátt sýnir betur hversu mikilvægt það er að koma í veg fyrir verðbólgu og hversu brýnt það er að ná meiri árangri en þegar er orðinn í því efni. Fátt sýnir betur en einmitt þetta hversu bein tengsl eru á milli aðgerða í efnahags- og peningamálum og hagsmuna heimilanna í landinu. Með fráhvarfi frá stefnu Alþb. er okkur að takast að uppræta eina af þeim meinsemdum sem valdið höfðu fjölda heimila einna þyngstum búsifjum. Og í vor sem leið voru einnig gerðar sérstakar ráðstafanir til þess að greiða úr erfiðleikum þeirra húsbyggjenda sem verst voru staddir.

Í fjórða lagi vil ég minna á að á síðasta þingi voru samþykktar breytingar á bankalöggjöfinni og fyrir þessu þingi liggur að fjalla um umfangsmiklar breytingar á kerfi fjárfestingarlánasjóða. Við höfum tekið ákvörðun um að stofna hér sérstakt nýtt þróunarfélag. Allar miða þessar umbætur að því að búa svo um hnútana að fjármagnið sem við notum til fjárfestingar og rekstrar í atvinnulífinu skili meiri ávöxtun en áður. Við þurfum að uppskera að minnsta kosti jafnmikinn ávöxt af því fjármagni sem við verjum til fjárfestingar og þær þjóðir sem við viljum jafna okkur við um lífskjör. En á því hefur verið verulegur misbrestur.

Við höfum einnig samþykkt umfangsmiklar breytingar á landbúnaðarlöggjöfinni. Þær miða að aðlögun framleiðslunnar að markaðsaðstæðum og breyttu verðmyndunarkerfi sem stuðla á að sáttum milli framleiðenda og neytenda. Þannig eru menn að takast á við fjölmörg ný verkefni í atvinnumálum. Breyttar efnahagslegar aðstæður hafa þegar skapað skilyrði til nýsköpunar. Segja má að hún sé þegar komin á skrið. Á sama tíma og þessir hlutir eru að gerast koma svo talsmenn Alþb. eins og álfar úr hól og flytja ræður um að nú þurfi að fara að huga að því sem þegar er komið á hreyfingu.

Hér er um svo umfangsmikil og afgerandi batamerki að tefla að við eigum nú allt undir því að glutra ekki þessum árangri niður. En því er auðvitað ekki að leyna að það eru víða hættuboðar, og það má ekki mikið út af bregða til þess að hjól óðaverðbólgunnar fari að snúast á fyrri hraða með alkunnum afleiðingum um rýrnandi lífskjör, versnandi hag heimila og atvinnufyrirtækja.

Þó í flestum efnum hafi tekist að vinda ofan af þeirri stefnu Alþb., sem í byrjun þessa áratugar leiddi til lakari lífskjara, glímum við enn við of mikla erlenda skuldasöfnun. Sá innflutningur á fölsku fjármagni hefur valdið þenslu í ýmsum þjónustugreinum og um leið aukið á erfiðleika framleiðslugreinanna og þá fyrst og fremst sjávarútvegsins. Erlenda skuldasöfnunin sem Alþb. hafði forustu fyrir á sínum tíma hefur einnig leitt til aukins ójafnaðar í launamálum. Það er því ekki aðeins höfuðatriði í því skyni að ná betra jafnvægi í þjóðarbúskapnum að minnka erlendu skuldasöfnunina. Hitt skiptir ekki minna máli að það er nauðsynlegt til þess að okkur takist að treysta rekstur undirstöðuatvinnugreinanna og búa sjávarútveginum eðlileg starfsskilyrði. Viðspyrna gegn erlendri skuldasöfnun er líka nauðsynleg til þess að við getum búið við eðlilega launaþróun í samræmi við þá niðurstöðu sem menn komast að í frjálsum kjarasamningum, því skuldasöfnunin hefur sannarlega beinst gegn hagsmunum þeirra sem verst eru settir á vinnumarkaðnum.

Það er í þessu ljósi sem ríkisstj. setti það meginmarkmið við undirbúning fjárlaga fyrir næsta ár að tekjur skyldu mæta gjöldum og ekki þyrfti að koma til aukinnar skuldasöfnunar vegna ríkisbúskaparins sjálfs. Þessu mikilsverða markmiði hefur verið náð með því fjárlagafrv. sem nú liggur fyrir Alþingi. En síðan ákvarðanir voru teknar þar um hefur þróun gjaldeyrismála á erlendum mörkuðum gengið okkur í óhag. Sú þróun hefur ekki einungis gengið gegn hagsmunum launafólks vegna hækkunar á innflutningsverði, heldur líka gegn hagsinunum sjávarútvegsins vegna lækkandi gengis bandaríkjadals. Ef aðgerðir til þess að bregðast við þessum aðstæðum eiga ekki að leiða til þess að verðbólga aukist á ný er nauðsynlegt að gæta aukins aðhalds varðandi heildarútgjaldaáform þjóðarinnar á næsta ári.

Það er ekki ætlun ríkisstj. að skerða kaupmátt til þess að ná þessu markmiði. Fyrir þá sök er nauðsynlegt að beina aðhaldinu að ríkisbúskapnum sjálfum og það hafa stjórnarflokkarnir ákveðið að gera við meðferð fjárlagafrumvarpsins á Alþingi. Markmiðið með því er að verja hagsmuni launafólksins til þess að það geti notið þeirra ráðstöfunartekna sem það nú hefur og til þess að koma í veg fyrir nýja verðbólguholskeflu og afleiðingar hennar. Við verðum að velja og hafna í þessu efni. Við getum ekki látið allt eftir okkur og þá er spurningin hvaða hagsmuni er brýnast að verja. Svar ríkisstj. er að það sé kaupmáttur ráðstöfunartekna. Þess vegna vill hún auka aðhald að útgjöldum ríkisins sjálfs.

Við höfum á undanförnum árum unnið að miklum umbótum á sviði mennta-, heilbrigðis-, trygginga- og félagsmála. Það er ásetningur okkar að treysta velferðarkerfið og búa unga fólkinu í landinu eins góð menntunarskilyrði og kostur er. En til þess að uppskera góðan ávöxt á þessum sviðum þurfum við að plægja jarðveginn. Framfarir í atvinnumálum byggjast nú í ríkari mæli en áður á menntun og þekkingu. En við búum unga fólkinu í landinu ekki betri menntunarskilyrði nema okkur takist að auka framleiðslu og verðmætasköpun í þjóðarbúinu og veita þannig raunverulegum verðmætum til þessara mikilsverðu verkefna. Allt helst þetta því í hendur sem við erum að vinna að.

Bætur almannatrygginga hafa fylgt launabreytingum og í samvinnu við aðila vinnumarkaðarins hafa hagsmunir þeirra sem verst eru settir í þjóðfélaginu verið bættir með sérstökum aðgerðum í skatta- og tryggingamálum. Þó að aðhalds verði gætt við útgjöld ríkisins verður engin breyting á þessum meginmarkmiðum í félagslegum efnum.

Um stefnuna í utanríkis- og öryggismálum er mikil og góð samstaða meðal þjóðarinnar. Við höfum hafnað hlutleysi vegna öryggishagsmuna okkar og við höfum valið að taka afstöðu með lýðræðisríkjunum í baráttunni fyrir því að verja frelsi og mannréttindi. Við höfum hafnað þeim hugmyndum að halda okkur til hlés í þeim efnum. Alþb. hefur verið nátttröll í þessum efnum. En jafnvel innan raða þess virðist nú gæta vaxandi skilnings á nauðsyn varna og virkrar þátttöku í samstarfi lýðræðisþjóðanna, þó að forustan sjálf sé enn við sama heygarðshornið og áður. Meginmáli skiptir þó að víðtæk samstaða er um það með þjóðinni að fylgja fast og ákveðið fram þeirri stefnu sem við höfum haft í utanríkis- og varnarmálum undangengna áratugi.

Okkur er vissulega vandi á höndum um margt. Við höfum mikið verk að vinna við að bæta íslenskt þjóðfélag, bæta hag heimilanna, stuðla að auknum jöfnuði og betri sáttum milli fólksins í landinu. En við megum ekki láta glepjast af svartsýnislýsingum og bölsýni og yfirboðum stjórnarandstöðunnar. Gylliboð þau sem fram koma í málflutningi talsinanna Alþfl. og Alþb. í umræðunum hér í kvöld eru í litlum tengslum við veruleikann. Og ef við gerum okkur ekki grein fyrir honum er eins víst að við tökum ekki skynsamlegar ákvarðanir um framtíð okkar.

Ragnar Arnalds minntist á það í ræðu sinni að eini árangurinn af starfi stjórnarinnar væri kauplækkun. Og hann hélt því fram að það væri pólitísk hefndaraðgerð af hálfu ríkisstj. Sjálfur stóð hann að því í fyrri ríkisstjórn að afnema kauphækkanir launafólks í desember 1982 um helming. Svipta launafólk umsömdum kauphækkunum um helming. Var það pólitísk hefndaraðgerð? Honum er rétt og öðrum talsmönnum Alþb. sem halda þessu fram í þessum umræðum að svara því.

Það er líka rétt að minna á að sú kaupmáttarskerðing sem varð hér tímabundið var að mestum hluta til komin fram í tíð fyrri stjórnar þar sem Alþb. réði mestu. Og það er rétt að minna á það enn og einu sinni að misgengið á milli launa og lánskjara varð að mestum hluta til í tíð fyrri ríkisstjórnar þar sem Alþb. var í forustu og innleiddi lánskjaravísitöluna. Og það er rétt að minna á það enn og aftur að kaupmáttur ráðstöfunartekna hefur á þessu ári verið að aukast en hann rýrnaði stórlega á síðustu misserum fyrri ríkisstjórnar þegar Alþb. var við völd.

Hrakspárnar sem hér hafa verið lesnar eru því draugar í brjóstum þeirra vegna þeirrar martraðar sem viðskilnaður þeirra sjálfra hefur valdið þeim. Þeir eru að lýsa afleiðingum eigin stjórnarstefnu. Þeir þora ekki að horfast í augu við þær breytingar sem hafa orðið til batnaðar í íslensku þjóðfélagi og þeir vilja ekki horfast í augu við þá miklu möguleika sem þessi þjóð á til þess að vinna sig út úr örðugleikunum til bættra lífskjara.

Ragnar Arnalds minntist á breytingar á lánum til verslunar og sjávarútvegs og taldi það vera stjórninni til hnekkis að lán til verslunar skv. tölum sem hann las hefðu aukist meira en til sjávarútvegs. Skýringin á því er fyrst og fremst sú að birgðir í sjávarútvegi hafa ekki aukist í krónum talið á því límabili sem þarna um ræðir. Og skýringin er enn fremur sú, sem hann gat ekki um, að aukningin á lánum til verslunar er að stærstum hluta til olíufélaganna og sú aukning hefur fyrst og fremst komið sjávarútveginum til góða og verið honum til hagsbóta.

Hann minntist á fjárfestingar í orkumannvirkjum og fyrst og fremst er það sök Alþb., forusta Hjörleifs Guttormssonar í þeim efnum, sem hefur leitt til þess að við búum á því sviði við erfiðleika og hærra raforkuverð og verri lífskjör en vera þyrfti. Það er á ábyrgð Alþb. fyrst og fremst.

Það var einnig fróðlegt að hlusta á málflutning talsmanna Alþfl. hér fyrr í þessari umræðu. Varaformaður flokksins, Jóhanna Sigurðardóttir, kom hér upp og mælti gegn og gagnrýndi þær tillögur sem fram hafa komið af hálfu ríkisstj. um afnám á nokkrum undanþágum frá söluskatti. Formaður flokksins kom svo hér upp beint á eftir og mælti fyrir þeim tillögum Alþfl. að afnema undanþágur frá söluskatti. Þetta er nú sú brú sem er í málflutningi Alþfl. Þar stangast hvað á annars horn.

Málflutningur stjórnarandstöðunnar miðar fyrst og fremst að því að sundra, þegar við þurfum að sameina. Hann miðar að því að leggja auknar álögur á borgarana, þegar við þurfum fremur að huga að því að létta álögum af borgurunum. Alþb. fyrir sitt leyti krefst þess að aftur verði horfið til erlendrar skuldasöfnunar og þeirrar stefnu í atvinnumálum sem leiddi til rýrnandi lífskjara. Jafnvel óbreyttir liðsmenn í Alþb. hafa nú kvatt sér hljóðs í opinberum umræðum og bent á að þessi hafi verið afleiðing stjórnarstefnu Alþb. Það væru mikil mistök að gefa þeim tækifæri til að snúa aftur til verri vegar því sem gengið hefur til réttrar áttar undanfarin tvö ár.

Herra forseti. Niðurstaða þessa máls er sú að við höfum ekki náð öllum markmiðum okkar. Það er rétt. En við erum á réttri leið og það skiptir mestu máli. Okkar bíða mikil verkefni við að auka hagvöxt, bæta lífskjör og treysta velferð og hagsæld. Við þurfum að ná betri og meiri árangri á ýmsum sviðum. En aðstæður hafa breyst til batnaðar. Við höfum því ástæðu til þess að ganga með áræðni og bjartsýni á vit nýrrar framtíðar. Það er gott að vera Íslendingur. Við viljum gera það betra.