17.04.1986
Neðri deild: 85. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 4018 í B-deild Alþingistíðinda. (3709)

205. mál, Seðlabanki Íslands

Frsm. (Páll Pétursson):

Herra forseti. Ég hef brtt. fram að færa. Hún varðar 40. gr. frv., þ.e. gildistökugreinina. Þar er gert ráð fyrir því að lögin öðlist gildi 1. maí 1986. Það er of skammur tími, m.a. vegna þess að það þarf að kjósa nýtt bankaráð fyrir Seðlabankann. Brtt. er þess eðlis að upphaf greinarinnar orðist svo: Lög þessi öðlast gildi 1. nóv. 1986.

Till. er skrifleg og of seint komin og þarf afbrigða við.