17.04.1986
Sameinað þing: 77. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 4019 í B-deild Alþingistíðinda. (3712)

Almennar stjórnmálaumræður

Karl Steinar Guðnason:

Herra forseti. Góðir Íslendingar. Fyrir skömmu heyrði ég frásögn frá ævilokum Benedikts Gröndals skálds. Þorvaldur Thoroddsen kom til Gröndals 2-3 dögum áður en hann dó og var hann þá mjög veikur. „Hvernig líður þér í dag, Gröndal?" spurði Þorvaldur. Gröndal svaraði: „Ég get ekki gengið og ekki andað, en annars líður mér vel.“

Án þess að ég vilji líkja saman hinu skarpgáfaða skáldi og þeirri vesölu ríkisstj. sem við búum við var henni eins farið þegar viðræður um kjarasamninga hófust í vetur. Henni var orðið þungt og þröngt um andardrátt og víst var það að hún gat ekki gengið. Hún réð ekkert við verðbólgu, erlendar skuldir og óreiðu í efnahagsmálum, en annars leið henni bara vel eða svo fannst þeim stjórnarsinnum.

Það var við þær aðstæður sem verkalýðshreyfingin og Alþfl. kröfðust þess að gerður yrði kjarasáttmáli, farnar yrðu nýjar leiðir í stað þeirra gömlu slitnu leiða sem reyndar höfðu verið áður.

Það er áreiðanlegt að öll þjóðin andaði léttar er tókst að knýja fram nýja efnahagsstefnu, ný viðhorf, von um bjartari framtíð. Þessi viðhorf, sem verkalýðshreyfingin og Alþfl. hafa barist fyrir, eru ekki ný af nálinni. Sumarið 1984, er landið var lamað af vinnudeilum, freistaði Verkamannasambandið að koma þessari stefnu fram með svokallaðri skattalækkunarleið. Hefði það tekist byggjum við í dag við betri efnahag, meiri kaupmátt.

En ríkisstj. brást. Þá tókst okkur ekki að beisla hana til betri efnahagsstefnu. Samið var um 23% kauphækkun fyrir alla landsmenn. Þessi sama ríkisstj. notaði síðan fyrsta tækifæri til að hirða þessa kauphækkun aftur. Árangurinn varð enginn, en verðbólgan brenndi heitar og sárar efnahag heimilanna og atvinnulífsins.

En þetta var reyndar engin nýlunda. Aðilar vinnumarkaðarins hafa í áratugi notað þessa slitnu leið. Kjarasamningar hafa hvað eftir annað verið gerðir án þess að taka tillit til þess að ríkisstjórn væri til í landinu, afl sem reynslan hefur sýnt okkur að svífst einskis í því að ógilda kjarasamninga, taka jafnóðum það sem um hefur samist. Engu máli hefur skipt hvort ríkisstjórnin hallaðist til hægri eða vinstri. Er skemmst að minnast ríkisstjórnar Svavars Gestssonar sem skerti kaupið 14 sinnum á sínum ferli. Þessi ríkisstjórn hóf sinn feril á um 25% kjaraskerðingu.

Ábyrg öfl verkalýðshreyfingar og Alþfl. hafa bent á að verðbólga er versti óvinur þeirra sem minnst hafa. Hinir geta ætíð matað krókinn. Við höfum bent á að á árunum 1974-1980 áttfaldaðist taxtakaup. Á sama tíma lækkaði kaupmáttur um 1% yfir tímabilið. Þessar staðreyndir kölluðu á ný viðhorf, breytt vinnubrögð. Nýgerðir kjarasamningar byggjast á þeirri meginhugsun að lífskjör verkafólks á Íslandi verði hvorki í bráð né lengd bætt svo neinu nemur með kauphækkunum einum saman, hvorki með né án verðtryggingar, heldur verði til að koma víðtækar aðgerðir á sviði efnahags-, félags- og kjaramála. Það þýddi að binda yrði hendur ríkisstj., knýja hana til að láta að vilja verkalýðshreyfingar og vinnuveitenda. Okkur tókst það í nýgerðum kjarasamningum sem vissulega marka tímamót. Þar hafði ríkisstj. ekkert frumkvæði. Hins vegar skal það þakkað að hún stóð ekki í vegi fyrir nýjum leiðum eins og árið 1984.

Auðvitað er engum ljósara en fulltrúum verkalýðshreyfingar að laun eru smánarlega lág. Við erum láglaunaland. Það er hins vegar staðreynd að gömlu leiðirnar hafa skilað okkur þeim árangri. Við viljum ekki 30-40% kauphækkun sem skilar engu nema verðbólgu. Við viljum ekki verðtryggingu sem skert er 14 sinnum eða alveg tekin þegar óvönduðum stjórnmálamönnum býður svo. Við viljum betri kjör, betri kaupmátt, réttlátara þjóðfélag.

Hér á Alþingi hafa heyrst gagnrýnisraddir yfirstéttarkvenna og karla sem aldrei hafa kynnst mannlífi nema í huggulegu umhverfi foreldrahúsa eða þá í erlendum háskólahöllum. Þetta fólk hefur talið sig þess umkomið að segja fátæku verkafólki fyrir verkum. Þetta lið hefur ekki goldið verðbólgu og biturrar reynslu óábyrgrar efnahagsstefnu. Það hefur allt sitt á þurru.

Forusta verkalýðshreyfingarinnar, það fólk sem hefur trúnað verkafólks, sem best sést á yfirburðafylgi við samningsgerðina, hefur þurft að þola rýtingsstungur Þjóðviljans sem leggur sig allan fram um að tortryggja samningsgerðina og eyðileggja árangurinn. Þar sem í hugum utangarðsmanna ríkir forneskjan, afturhaldið, sú merkilega þráhyggja að neita staðreyndum. Það þarf kjark og þor til að móta nýja stefnu, en það þarf aðeins smáborgaralega afturhaldssemi til að halda sig við það gamla.

Verkalýðshreyfingin átti aðeins tvo kosti. Annars vegar þann að knýja fram yfir 30% kauphækkun án félagslegra úrbóta, án verðtryggingar. Reynslan sýnir okkur að sú leið hefði haft í för með sér óðaverðbólgu og atvinnuleysi. Hrammur ríkisstj. hefði strax að loknum undirskriftum fellt gengi krónunnar. Verkafólk hefði staðið verr að vígi en fyrir samningana - verst þeir fátækustu. Þeir sem neita þessu treysta hinni guðsvoluðu ríkisstj. betur en Alþfl. og verkalýðshreyfing.

Hins vegar átti hreyfingin þess kost að móta nýja stefnu, stefnu framtíðar, stefnu sem byggði á raunsæju mati reynslunnar. Um þá leið náðist fullkomin eining. Það var fyrst er fulltrúar forneskjunnar höfðu skjól af samningsgerðinni að gagnrýnisraddir heyrðust. Áður brast kjarkinn líkt og hjá Katli skræk í Skugga-Sveini.

Nýgerðir kjarasamningar marka tímamót. Þeir tryggja vaxandi kaupmátt, einkum hjá þeim lægst launuðu. Þeir tryggja byltingu í húsnæðismálum og lífeyrismálum, þeir tryggja stóraukin réttindi fiskverkafólks, þeir tryggja verðlækkun mikilsverðra vörutegunda og opinberra gjalda - og umfram allt, sem er okkur svo mikils virði, samningarnir miða við fastgengisstefnu sem er raunhæf verðtrygging. Þeir tryggja líka mjög lága verðbólgu sem er kjarabót út af fyrir sig.

Þessi samningsgerð er tilraun. Hún getur mistekist en hún verður að takast. Stærsta hættan er ríkisstj. Það kann að reynast afdrifaríkt að ríkisstj. lét annarlega hagsmuni ráða þegar hún neitaði tillögu samningsaðila um sérstakan skatt á banka- og efnafólk til að standa straum af niðurgreiðslum umfram sérstök kaup lífeyrissjóðanna.

Nú á næstu dögum og mánuðum verður hver einasti Íslendingur að leggja sig fram um það að þessi tilraun takist. Stöðugu gengi á að fylgja stöðugt verðlag. Í ljósi þess að fleira er kjör en króna verður hver og einn að fylgjast með verðlagi, leggja sitt lóð á vogarskálina svo að óvandaðir gróðamenn eyðileggi ekki þessa tilraun. Þar er treyst á þig. En höfum það í huga að enn hafa allar spár um árangur ræst.

Verkalýðshreyfing og vinnuveitendur höfðu vit fyrir fársjúkri ríkisstj. Aðilar knúðu hana af rangri leið. Nýgerðir kjarasamningar eru mikill sigur fyrir launafólk í landinu, fyrir verkalýðshreyfinguna og helstu baráttumenn nýrra leiða. Þessir kjarasamningar eru ósigur forneskjunnar og óábyrgra gróðaafla. Helsta vandamálið er sjúklingurinn, ríkisstj. Við þurfum að gæta að hverju skrefi hennar svo að árangri samninganna verði ekki stefnt í voða. Við Íslendingar höfum í áratugi lifað við illvígar deilur og miskunnarleysi í garð hvers annars. Þar hefur sjálfseyðingarhvötin ráðið. Þessi staðreynd hefur átt sinn þátt í að halda lífskjörunum niðri.

Nú hafa ábyrgir aðilar vinnumarkaðarins lyft umræðunni ofar hinu hversdagslega karpi. Nýgerðir kjarasamningar gefa tilefni til að ætla að félagslega hugsandi menn geti áfram mótað stefnuna. Við verðum öll að vinna saman. Við verðum að læra af reynslunni til að byggja betra þjóðfélag þar sem enginn þarf að vera fátækur, þar sem allir búa við öryggi. Takist það sjáum við framtíðarland jafnaðarstefnunnar fram undan.

Innan skamms verða sveitarstjórnarkosningar í landinu. Þær skipta alla frjálshuga Íslendinga miklu máli. Það var fyrir tæpum 30 árum á þingi Sambands ungra jafnaðarmanna, sem haldið var suður í Keflavík, að tillaga að 18 ára kosningaaldri var fyrst samþykkt hér á landi. Ungir sjálfstæðismenn og fleiri börðust gegn þessu, en nú er þessi hugsjón orðin að veruleika. Áhrif æskufólks verða því meiri í komandi kosningum en nokkru sinni fyrr. Í prófkjörum Alþfl. að undanförnu hefur komið í ljós að æskufólk fylkir sér um jafnaðarstefnuna í stórauknum mæli. Það laðast að nýjum ferskum hugmyndum róttækrar umbótastefnu líkt og jafnaldrar þess um allan heim. Næstu vikur verður að vinna vel. Hin breiða fylking liðsmanna Alþfl. verður nú að þjappa sér saman til átaka og baráttu fyrir frjálsara, réttlátara og betra þjóðfélagi.

Góður hlustandi. Við eigum samleið. Vertu með.