17.04.1986
Sameinað þing: 77. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 4031 í B-deild Alþingistíðinda. (3717)

Almennar stjórnmálaumræður

Kolbrún Jónsdóttir:

Saga Íslandsbyggðar hefst á því að hingað flúðu menn undan ofríki valdhafa síns heimalands. Með öðrum orðum, hér námu menn land sem fremur kusu landflótta en una því að vera sviptir sjálfstæði sínu, menn sem vildu halda reisn sinni og fá að ráða högum sínum sjálfir. Tæpum þremur öldum eftir landnám urðu það örlög þessarar þjóðar að lúta erlendum yfirráðum um margra alda skeið. Þjóðin undi illa þeim höftum og þeim skorðum sem hinir erlendu drottnarar settu henni.

Eftir langvinna baráttu þrautseigra manna hlaut þessi hrjáða þjóð loks frelsi og lýðveldið Ísland var stofnað. Menn horfðu björtum augum til framtíðarinnar fyrir 40 árum. Kreppan að baki, heimsstyrjöldin síðari var öll, og loks réðu Íslendingar sér sjálfir, þurftu ekki að eiga afkomu sína undir ákvörðunum yfirvalda sem ekkert eða nánast ekkert skynbragð báru á þarfir þeirra. Við skulum stökkva yfir s.l. fjóra áratugi og athuga hvernig staða lýðveldisins er nú.

Er hér lýðveldi í orðsins fyllstu merkingu? Hverjir ráða á Íslandi? Hvernig er farið með vald? Á dögum Danastjórnar ríkti hér fámennisstjórn konungs, ráðuneyta hans og embættismanna. Íslandi var stjórnað af fáum og þeir höfðu harla litla þekkingu á högum landsmanna og þörfum þeirra. Til þeirra leituðu auðmjúkir þegnar, biðjandi um góðfúsleg leyfi um nánast allt. Ráðamenn deildu og drottnuðu og hygluðu sínum. Hvernig er staðan nú? Enn þurfa landsmenn að leita til stjórnvalda um náðarsamlegar leyfisveitingar. Enn á þorri landsmanna afkomu sína undir geðþóttaákvörðunum valdhafa sem eiga það sammerkt með nýlenduherrunum dönsku að þekkja harla lítið til aðstæðna og bera sig lítið eftir því að bæta úr þeim þekkingarskorti en ganga þeim mun ötullegar fram í því að treysta valdanet sitt. Allir kerfisflokkarnir hafa lagt sitt af mörkum til að viðhalda þessu stjórnkerfi. Stjórnkerfi sem einkennist af sterkri miðstýringu og fámennisvaldi. Þetta stjórnkerfi tryggir það að enn skulu Íslendingar, svo sem á dögum Danastjórnar, fara bónleiðir og þiggja með þökkum góðfúsa greiðasemi valdhafa.

Sú stjórn sem nú situr virðist hafa það helst á sinni stefnuskrá að slá stjórnarkrumlu sinni á allt kvikt, bæði til sjós og lands. Engum er frjálst að draga bein úr sjó án þess að fá leyfi hjá sjútvrn. Öll framleiðsla hefðbundinna landbúnaðarvara er háð leyfi landbrn.

Launasamningar eru misjafnlega stórir félagsmálapakkar ríkisstjórnarinnar. Félagsmálapakkinn að þessu sinni felst í vísitöluleik, lækkun tolla á bílum vegna þess að bílar vega þungt í vísitölu framfærslukostnaðar. Það fólk sem þarf að lifa á lægstu launatöxtunum hefur ekki efni á því að kaupa né reka bíl, enda sér það hver sá, sem á annað borð hefur opin augun, að 19 þús. kr. á mánuði duga skammt til að framfleyta einstaklingi, hvað þá heldur fjölskyldu. En er við ríkisstjórnina að sakast nema um launakjör ríkisstarfsmanna? Eru það ekki launþegarnir sjálfir sem semja um kaup og kjör? Þannig ætti það alla vega að vera. En því er ekki að heilsa hér á landi. Verkalýðsforustunni og vinnuveitendum hefur tekist að gera ríkisstjórnina samábyrga fyrir smánarkjarasamningum, ekki bara samábyrga, heldur þarf að greiða 1800 milljónir úr tómum ríkissjóði með samningunum.

Hver kemur til með að greiða þessar milljónir nema launþegar sjálfir í gegnum skatta? Ríkissjóði tókst að eyða 2500 milljónum umfram fjárlög á s.l. ári sem standa enn eftir ógreiddar. Það er lítil von til þess að hallanum frá síðasta ári eða væntanlegum halla á þessu ári verði að neinu leyti mætt með sparnaði opinberra aðila. Slíkur hugsunarháttur kemst ekki inn hjá stjórnvöldum.

Nú er aðalmál stjórnarsinna, þrátt fyrir umsamda tollalækkun á grænmeti, að leggja allt að 200% toll á innfluttar kartöflur. Það er ekki hægt að mati stjórnvalda að leyfa neytendum að njóta lægra kartöfluverðs yfir sumartímann þegar innlend framleiðsla annar ekki eftirspurn. Slíkt mundi auka kaupmátt launafólks og brýtur því í bága við stefnu stjórnvalda. Ríkisstjórnin sóar ekki fjármunum til að bæta lífsafkomu þegnanna.

Hlutverk hennar er að segja almenningi að herða sultarólina og axla ábyrgð á mistökum ríkisstjórna fjórflokkanna. Glappaskot ríkisstjórna undanfarinna ára eiga stærstan þátt í skertum lífskjörum íslenskrar alþýðu. Kjör aldraðra og öryrkja, sem þurfa að lifa af smánarbótum hins opinbera, eru vægast sagt þjóðfélaginu til háborinnar skammar. Á sama tíma og ekki er til fjármagn til þess að byggja heimili eða íbúðir fyrir aldraða er varið andvirði 350 meðalstórra íbúða í Seðlabankahöll. Hvar er réttlætið?

Óhæf ríkisstjórn sem nú situr er fangi fortíðarinnar. Í stað þess að breyta því ónýta kerfi sem við búum við leita þeir leiða fram hjá lýðræðinu og auka miðstýringu. Bandalag jafnaðarmanna berst gegn miðstýringu. Við viljum að sett verði á stofn fylki til að auka sjálfsforræði fólks. Hver er færari að taka ákvörðun um málefni héraða en íbúar þess? Hvers vegna er fólksflótti af landsbyggðinni á sama tíma og metaflaár er hér á landi ef það er ekki vegna rangs stjórnkerfis? Ef fjármagn fengist nýtt þar sem þess er aflað þyrfti landsbyggðin ekki að óttast um sinn hag. Hvers vegna eru stjórnmálamenn tregir til að dreifa valdi nema vegna þess að með því missa þeir spón úr sínum aski? Það er nákvæmlega sama hver af kerfisflokkunum situr við stjórnvölinn. Þeir hafa hvorki vilja né getu til þess að breyta því gjörspillta stjórnkerfi sem við nú búum við.

Góðir áheyrendur. Þessu verður ekki breytt fyrr en til valda komast stjórnmálamenn sem ekki eru flæktir í kóngulóarvef kerfisins. - Góðar stundir.