17.04.1986
Sameinað þing: 77. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 4049 í B-deild Alþingistíðinda. (3722)

Almennar stjórnmálaumræður

Kristín S. Kvaran:

Herra forseti. Góðir áheyrendur. Þá er komið að hinum árlega viðburði sem eru almennar stjórnmálaumræður. Það hefur tíðkast í áranna rás að í þessum umræðum beini hin svokallaða stjórnarandstaða spjótum sínum að ríkisstjórninni og gagnrýni störf hennar. Aftur á móti taka stjórnarliðar sig til og bera blak af aðgerðum ríkisstjórnarinnar og telja fram til tekna það sem að þeirra mati hefur verið vel gert. Nú ber hins vegar svo til að í ár sér þess ekki nokkurn stað að það þurfi að beina spjótum að ríkisstj. í þessum umræðum. Af hverju skyldi það nú stafa? Jú, það kemur til af því að réttara væri að spyrja hvort það sé stjórn í landinu.

Er stjórn í landinu? Jú, það á að heita að svo sé. En hvað er það þá sem hún hefur verið að aðhafast og hvar er frumkvæðið og hvar er ábyrgðin? Ég hef a.m.k. ekki orðið vör við að hér hafi verið að störfum ábyrg ríkisstj. sem hafi beitt sér fyrir nauðsynlegum efnahagsaðgerðum. Ég hef ekki heldur orðið vör við að hér hafi verið að störfum ábyrg ríkisstj. sem hafi haft frumkvæði að því að láta þegna landsins njóta þess góðæris sem staða þjóðarbúsins sýnir, eða að Ísland er jú sjötta ríkasta þjóð heims.

Það fer hins vegar ekkert á milli mála að það er til nokkuð í landinu sem heitir ASÍ og VSÍ eða þeir aðilar vinnumarkaðarins sem stóðu að hinum margfrægu samningum sem skemmst er að minnast, þeir sem stóðu að þeim efnahagsaðgerðum sem nýlega hafa verið framkvæmdar og síðast en ekki síst þeir sem urðu til þess að lækka bensínverðið og dekkin undir bílana, svo að ekki sé minnst á lækkun á tollum á bifreiðum og heimilistækjum sem þessir aðilar stóðu fyrir að yrði að veruleika.

En meðfram vegna þess að forustumenn aðila vinnumarkaðarins hafa nú komið öllu þessi til leiðar væri ekki úr vegi að leita eftir skýringu og svörum þeirra um það hvers konar framtíðarþjóðfélag þeir sjá fyrir sér. Reyndar er einnig þörf á að varpa þeirri sömu spurningu til þess meiri hluta sem virðist hafa allt sitt á hreinu, virðist vera ofan á, eins og það er kallað, þeir sem ekki hafa séð til þess ástæðu að mögla vegna útkomu þessara samninga. Enda hefur bilið breikkað milli þeirra og svo hinna sem vart hafa í sig og á.

Þeir sem höfðu það gott fyrir samninga hafa það að sjálfsögðu betra en ekki eftir þá, þar sem samningarnir gáfu þeim í kjarabót möguleika á að eignast m.a. bíl og eða heimilistæki. Hinir, sem höfðu átt við erfiðleika að etja fyrir þessa samninga, fengu bara enn stærri bita af erfiðleikum til að kyngja niður samningunum með. Þeir fengu í kjölfarið enn þá meira óréttlæti og vonleysi til að búa við til frambúðar. Það fengu þeir til frambúðar, vegna þess að nú þykir sýnt að það er ekki stefnt á þau mið að rétta hlut þeirra lægst launuðu.

Þessir samningar staðfestu einungis það bil sem orðið var. Þeir sem voru u.þ.b. að missa íbúðir sínar á nauðungaruppboðin misstu þær og hinir, sem áttu aðeins lengra í land með það, missa þær greinilega innan tíðar. Forustumenn aðila vinnumarkaðarins gleymdu að gera ráð fyrir því að launin duga lægst launaða fólkinu alls ekki fyrir brýnustu lífsnauðsynjum, hvað þá heldur að þau dugi til greiðslu afborgana og verðbótaþátta lána áhvílandi á íbúðum þeirra.

Svo voru til þeir sem lifað höfðu í þeirri trú að með þessum samningum fengju þeir leiðréttingu þess óréttlætis sem þeir hafa búið við. Þeir vonuðu til einskis. Með þessum samningum staðfestu forustumenn ASÍ og VSÍ einungis bilið milli hinna ríku og fátæku í þjóðfélaginu. Það bil var staðfest með því að samningarnir hljóðuðu nær einvörðungu upp á það að ná niður verðbólgu, sem auðvitað er gott og blessað út af fyrir sig ef tilraunin heppnast, en það er óþarft að láta niðurtalningu verðbólgunnar verða svo öra að hér skapist neyðarástand.

Samningarnir hljóðuðu upp á það að ná niður verðbólgunni en kjörin eru eftir sem áður óbreytt og verri hjá hinum verst settu og eftir stendur að launin hjá hinum lægst launuðu nægja ekki til framfærslu. Með því hafa samningarnir fært okkur fátæktarhugtakið í munn að nýju.

Góðir áheyrendur. Þegar þetta ástand, sem skapast hefur í þjóðfélaginu, eða fátæktin, var til umræðu hér inni á hv. Alþingi nú í lok febrúar fannst mér sem þessi annars virðulega stofnun setti ofan. Þá var það orðið aðalatriðið í umfjöllun manna að karpa um það hverjum það ástand, sem skapast hefur, sé að kenna. Það eina, sem hins vegar skiptir máli í þessu sambandi, er að þetta ástand skuli vera staðreynd. Þar af leiðandi átti umræðan auðvitað að snúast um það á hvern hátt ráðamenn þjóðarinnar mundu leysa og leiðrétta það og koma þar með fátæktarhugtakinu fyrir bí.

Það getur aldrei orðið aðalatriði hverjum sé um að kenna að svo er komið sem raun ber vitni. En slíkt karp um einskis nýt atriði eru næsta algengar uppákomur hér á hv. Alþingi. Það hafa tilheyrendur fengið að heyra í þessum umæðum hér í kvöld þar sem mikilvægið virðist liggja í því að koma höggi á persónulegan andstæðing.

Þeir sem létu sig hafa það að karpa á þennan hátt um þetta háalvarlega málefni, fátæktina, eru hinir sömu sem að því er virðist telja virðingu sinni misboðið með því að hlusta t.d. á umræður um dagvistarmál og önnur skyld mál, taka sjaldnast ef nokkurn tíma þátt í umræðum af þeim toga. Ekki veit ég hvort það er af því að þeir telji virðingu sinni misboðið með því, en sé því svo varið verð ég að segja að þá datt sá ímyndaði virðuleiki af og undir grímunni kom í ljós að sumir eru vart komnir af sandkassastiginu enn þá. Ég vek athygli á því að það er urmull slíkra mála, sem snerta jafnari aðstöðu og jafnrétti fólki til handa, sem liggja óafgreidd hér á þinginu í þinglok.

Það sem er þó alvarlegast í þessu sambandi er að á sama tíma gerði forsrh. þjóðarinnar sér lítið fyrir og gaf út um það yfirlýsingu að hann teldi sjálfstæði þjóðarinnar best borgið með því að ferðast um heiminn á kostnað skattborgaranna, ferðast um heiminn og eyða til þess fé þess fólks sem síðan þarf að taka við skömmtunarseðlum til brýnustu nauðþurfta.

Tugir milljóna fara til ferðalaga á vegum ríkisins. Ef aðeins eru teknar utanlandsferðir ráðherranna á s.l. ári er ljóst að þær samsvara árslaunum 34 launamanna, þeirra sem hafa 20 þús. kr. mánaðarlaun. sem sagt. árslaun þeirra allra. Þá eru ótaldar allar utanlandsferðir alþm., starfsmanna ráðuneytanna og allra stofnana ríkisins. En sé miðað við það að kostnaður við utanlandsferðir starfsmanna ráðuneytanna að meðtöldum ráðherrunum var á s.l. ári 40 millj. kr. mun láta nærri að ekki sé oftalið að heildarferðakostnaður á vegum ríkisins hafi þegar allt er talið, bankarnir og allar aðrar ríkisstofnanir, verið um 100 millj. kr.

Þetta er allt saman gott og blessað ef íslenska ríkið og þjóðarbúið hefði efni á þessu. En það hefur þjóðin ekki, ekki eins og nú árar. Þjóð sem hefur 25% launþega sinna undir fátæktarmörkum hefur ekki efni á því að senda fólk í löngum bunum á fundi og ráðstefnur erlendis. Það verður að gera um það kröfur að um leið og sett er fram krafa til almennings um að skera niður einkaneyslu, og sú skerðing hefur orðið sjálfkrafa að veruleika með því að lífskjörin hafa rýrnað, verður að gera um það kröfu að umsvif hins opinbera einkennist ekki af bruðli. Það verður að gera um það kröfur að þau verði dregin saman að því marki að a.m.k. sé ekki um að ræða að rándýrar utanlandsferðir séu farnar á kostnað launafólks í landinu.

Það er enginn að tala um það að 100 millj. skipti sköpum um afkomu launafólks. En safnast þegar saman kemur. Það er athyglisvert að þessi kostnaður við utanlandsferðirnar nemur 2000 kr. á hverja fjölskyldu í landinu, 2000 kr. í ferðaskatt á hverja fjölskyldu í landinu. En það samsvarar svo aftur u.þ.b. þeirri upphæð sem fólk er þessa dagana að fá í launabætur.

Þegar það nú hefur komið í ljós að svo miklu fé er eytt, og það aðeins í ferðalög, fer fólk að spyrja sig: Hvernig er þá ekki bruðlað með fé, okkar fé, á öllum mögulegum öðrum sviðum? Á meðan á öllu þessu stendur er launamanninum ætlað að sætta sig við kjararýrnun, sætta sig við það að ekki sé svigrúm til launahækkana.

Góðir áheyrendur. Svo eru menn undrandi á því að almenningur skuli ekki hafa trú á ráðamönnum. Það er í raun og veru eðlilegasta mál í heimi að svo skuli vera komið þegar fólk horfir upp á tvískinnunginn í nærfellt öllu tilliti. Það er greinilegt að það er kominn tími til þess að þróuninni verði snúið við. Það verður að hefja til hásætis það sem er ótvírætt hægt að ná samstöðu um, en það er að jafnrétti verði virt og frelsi allra gert mögulegt, en ekki aðeins þeirra sem búa svo vel að eiga fjármuni og eignir.

Góðir áheyrendur. Það er nú svo að frelsi getur aldrei náð lengra en þangað sem það fer að setja skorður við frelsi annarra. Það er þess vegna sem nú þarf að spyrna við fótum.

Ég þakka áheyrnina. Góðar stundir.